Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Síða 18
Föstudagur 7. Nóvember 200818 Helgarblað Vestmannaeyjabær lætur kanna kosti þess að segja skilið við Eignar- haldsfélagið Fasteign hf. og leysa til sín þær eignir sem bæjarfélagið hef- ur lagt inn í félagið. EFF hf. byggist á samstafi sveitar- félaga við einkaaðila um samfélags- leg verkefni og hefur Vestmannaeyja- bær lagt fjölda fasteigna inn í félagið og leigir þær síðan aftur. Þar á meðal eru tveir grunnskólar, tveir leikskólar og íþróttahús. Á móti eignast bæjar- félagið hlut í Fasteign. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum , segir að leigan hafi hækkað um allt að 60 prósent á skömmum tíma. Vestmannaeyja- bær greiði EFF hf. 14 til 15 milljónir króna á mánuði í leigu eða sem svar- ar um 175 milljónum króna á ári í stað liðlega 100 milljóna króna fyrir gengishrun krónunnar. Leigan bundin genginu Hækkun leigunnar má fyrst og fremst rekja til þess að leigugjaldið er að 55 prósentum bundið erlendum gjald- miðlum. Svipuð staða er uppi í Reykjanes- bæ, sem hefur þó engin áform um að ganga út úr EFF. Ólafur Thorder- sen, bæjarfulltrúi minnihlutans, seg- ir að leigugjöld til EFF hafi hækkað á skömmum tíma um 200 milljónir króna vegna gengishruns krónunn- ar. Heildargreiðslur Reykjanesbæjar til EFF árið 2007 námu 600 milljón- um króna. Samkvæmt upplýsingum skrifstofu Reykjanesbæjar eru leigu- gjöld áætluð um 800 milljónir króna á því næsta. Áætluð hækkun er því 35 prósent á næsta ári að teknu tilliti til þess að við bætist nýr leikskóli og búningsaðstaða við knattspyrnuvöll. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ telja að ef bærinn hefði átt sjálf- ur alla skóla og önnur mannvirki hefðu erlend lán vegna viðhalds og framkvæmda numið 7,5 milljörðum króna sem hefði einnig verið mjög íþyngjandi fyrir bæjarfélagið. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, telur þannig að Reykjanesbær hafi notið hás gengis krónunnar undanfarin ár. Erlend lán fyrir nýbyggingum á vegum bæjarins hefðu einnig orðið íþyngjandi. Einkareknar fasteignir Bergur Hauksson, framkvæmda- stjóri Fasteignar hf., segir að varla hafi nokkur maður gert ráð fyrir 90 prósenta falli krónunnar frá síðustu áramótum. Fram að þeim tíma hafi sveitarfélög, sem kosið hafi að fara einkarekstrarleið með fasteignir sínar, notið hás gengis krónunnar. Hann bendir á að staðan sé slæm miðað við ástandið í augnablikinu en gera verði ráð fyrir því að gengi krónunnar hækki á ný. Að teknu tilliti til allra þátta telur Bergur að raunveruleg hækkun leigunnar sé 25 prósent en ekki 50 prósent. Umsvif Eignarhaldsfélagsins Fasteignar eru mikil. Helstu eigend- ur þess eru Glitnir, sem nú er í eigu ríkisins, en EFF á og leigir Glitni höfuðstöðvar bankans við Kirkju- sand í Reykjavík. Hlutur Glitnis er um 24 prósent. Reykjanesbær á um 22 prósent í félaginu. Vestmanna- eyjabær, Álftanesbær, Sparisjóður Mýrasýslu og Háskólinn í Reykjavík eru einnig stórir hluthafar. Hlutur HR fer stækkandi, en Fasteign verð- ur eigandi að nýbyggingum háskól- ans við Öskjuhlíð í Reykjavík og leigir skólanum þær næstu áratugi. Bergur segir að fjármálakreppan hafi ekki enn haft truflandi áhrif á byggingarframkvæmdirnar við Öskjuhlíð. Jóhann hauksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Eyjamönnum nóg boðið Leiga á einkareknum fasteignum sveitarfélaga og fyrirtækja hefur hækkað á skömmum tíma um tugi prósenta vegna gengisfalls krónunnar. Vestmannaeyjabær íhugar að leysa til sín skóla og önnur mannvirki sem bærinn seldi Fasteign hf. og leigir af félaginu. Vestmannaeyjar bærinn seldi Fasteign hf. skólabyggingar, leikskóla og íþróttahús og kannar nú hvort hagkvæmara sé fyrir bæjarbúa að kaupa byggingarnar aftur. Árni sigfússon Framkvæmda- og viðhaldskostnaður hefði hvílt á erlendum lánum. Elliði Vignisson Leigan hefur hækkað um sextíu prósent á skömmum tíma. Ekki fluttur þrátt fyrir tilmæli lækna: „Ég er eins og bleikur jólasveinn“ „Ég er búinn að vera í hungurverk- falli síðan á föstudag og þau segja að það komi þeim ekki við en þau bera ábyrgð á mér meðan ég er inni í fangelsinu,“ segir Þór Óliv- er Gunnlaugsson, fangi á Litla- Hrauni. Eins og DV greindi frá í september hefur Þór Óliver farið í tvær hjartaþræðingar á skömmum tíma og ítrekað beðið um flutning þar sem hann telur að aðstæður á Litla-Hrauni séu ekki sjúklingi sæmandi. Í gögnum sem DV hefur undir höndum, frá tveimur læknum sem hafa skoðað Þór Óliver, er eindregið mælt með því að Þór verði fluttur í ann- að fangelsi vegna veikinda hans. Þór skilur ekkert í yfirmönnum fangelsisins og gagnrýnir þá harðlega. „Páll Winkel sagði mér í símaviðtali að hann yrði fyrstur manna til að vista mig á sjúkrastofnun þeg- ar hann fengi gögnin. Nú eru tvö læknisvottorð fyrir framan hann og það virðist ekki nægja honum,“ segir Þór sem hefur lítið sem ekkert borðað síð- an á föstudag til að mótmæla að- gerðaleysi fangelsisyfirvalda. „Ég hef borðað eina jógúrtdós á dag, svona mun ég næra mig fyrstu vikuna og minnka það smátt og smátt.“ Páll Winkel fangelsismála- stjóri segir að hann geti ekki tjáð sig um einstaka fanga en annað- hvort sé fangi hæfur til að vera í fangelsi eða ekki. Hann gat ekki svarað því hvers vegna Þór Óliver væri ekki færður um fangelsi þrátt fyrir vottorðin frá læknunum. „Í raun og veru ætti Fangelsismála- stofnun fyrir löngu að vera farin að aðlaga mig samfélaginu í stað þess að vera linnulaust að áreita mig með alls konar aðgerðum,“ segir Þór og bendir á að hann kvíði því að fara út í samfélagið. „Ég er eins og bleikur jólasveinn með sautj- ánda júní fána, eins og segir í text- anum hans Ladda, í þeim dagsleyf- um sem ég hef farið í hef ég verið í hálfan mánuð að undirbúa mig til að fara út og annan hálfan mánuð að jafna mig.“ Var dæmdur fyrir morð Þór óliver hefur setið inni í tólf ár og á tvö eftir af afplánun. Eitt meginmarkmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er að vinna gegn launamisrétti og annarri mismunun á grundvelli kynferðis á vinnumarkaði. Í lögunum segir m.a: Mismunun á grundvelli kyns er bönnuð. Það gildir að sjálfsögðu einnig um uppsagnir. Atvinnurekendur og stéttarfélög eiga að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Sérstaklega á að leggja áherslu á að jafna hlut kynjanna í stjórnunar – og áhrifastöðum. Konur og karlar hjá sama atvinnurekanda eiga að fá jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólk má alltaf skýra frá launakjörum sínum. Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið jafnt konum sem körlum. Við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga á hlutfall kynjanna að vera sem jafnast og ekki minna en 40% þegar fulltrúar eru eiri en þrír. Sama gildir um stjórnir opinberra hlutafélaga og fyrirtækja sem ríki eða sveitarfélag er aðaleigandi að. Jafnréttisstofa Stöndum vörð um jafnrétti kynjanna Að gefnu tilefni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.