Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 28
Helgarblað DVFöstudagur 7. Nóvember 200828
HIN HLIÐIN
Bullandi námsmaður
Nafn og aldur?
„Jóhann Jónsson, 21 árs.“
Atvinna?
„Bullandi námsmaður,
stunda tónlist og fleira með-
fram því.“
Hjúskaparstaða?
„Á lausu.“
Fjöldi barna?
„Ekkert enn sem komið er.“
Áttu gæludýr?
„Nei, gerist kannski einhvern
daginn.“
Hvaða tónleika fórst þú á
síðast?
„ Ég spilaði á tónleikum
með Johnny And The Rest á
Dillon um daginn og var það
fínasta sjóv.“
Hefur þú komist í kast við
lögin?
„Nei, er löghlýðinn borgari.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín
og af hverju?
„Levi´s-náttbuxurnar mínar
því þær eru svo þægilegar.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei, hef ekki þurft þess
hingað til.“
Hefur þú tekið þátt í skipu-
lögðum mótmælum?
„Já, mótmælti síðast ein-
hverju í menntaskóla. Ég
man ekkert hvað það var en
ég held að stemningin sem
myndast alltaf þegar fólk
hittist hafi dregið mig með.
Annars er alltaf verið að
reyna að fá mann til að mót-
mæla efnahagsástandinu en
ég hef það bara fínt og svo
er bara svo kalt úti á þessum
árstíma.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já, klárlega.“
Hvaða lag skammast þú þín
mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Það heitir Stand out og er
með Þrumufleyg.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Útgáfutónleika Johnny And
The Rest sem haldnir verða
á Domo á laugardaginn. Það
verður geðveikt sjóv og feitt
partí. Hvet fólk til að mæta ef
það vill sjá einhverja snilld.“
Afrek vikunnar?
„Gefa út fyrstu plötu Johnny
And The Rest.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei, alltaf á leiðinni til spákon-
unnar.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Já, á píanó og bassa aðallega
en annars allt annað sem ég
kemst í.“
Styður þú ríkisstjórnina?
„Hvaða ríkisstjórn?“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„ Ástin.“
Hvaða fræga einstakling myndir
þú helst vilja hitta og af hverju?
„Roy Orbison til að fá svar við
stóru spurningunum í lífinu.“
Ertu með tattú?
„Er enn ekki nógu lífsreyndur til
að smella einni kóbraslöngu á
upphandlegginn.“
Hefur þú ort ljóð?
„Auðvitað.“
Hverjum líkist þú mest?
„Litla bróður.“
Ertu með einhverja leynda hæfi-
leika?
„Æfði eitt sinn dans og á það til
að breytast í atvinnudansara eft-
ir nokkra.“
Af hverju stafar mannkyninu
mest hætta?
„Sjálfu sér.“
Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Held að ölið sé alveg nóg bara.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn
þinn?
„Fyrir framan píanóið.“
Jóhann Jónsson er maðurinn á bak við hlJómsveitina Johnny and the rest.
hlJómsveitin sem hlotið hefur mikið lof er nýbúin að gefa út plötu og mun
halda útgáfutónleika næstkomandi laugardag á domo.
dv mynd kristinn
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
Fjarstýrðir bílar í
miklu úrvali.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
VESTURRjúpnaskot í VesturröstRemington og Winchester