Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 30
Föstudagur 7. Nóvember 200830 Helgarblað DV
„Mig dreymdi alltaf um að verða
hönnuður,“ segir Jónína Loftsdótt-
ir sem hannar litríkar og fallegar
húfur undir merkinu Nína fína.
Allt hófst þetta í kennaraverk-
fallinu árið 2004 en Nína starfar
sem kennari í Lágafellsskóla. „Ég
var svo eirðarlaus og fór því að
hanna og sauma húfur.“ Nína byrj-
aði að selja vinum og vandamönn-
um húfurnar en áður en hún vissi
af var hún hætt að anna eftirspurn.
„Þarna var boltinn farinn að rúlla
og ég ákvað því að freista gæfunnar.
Ég hafði samband við konu í Kína
og hófst þá mikið ferli sem endaði
með því að ég hannaði heila línu
og lét framleiða hana fyrir mig í
Kína.“ Nína segir það hafa verið erf-
itt að vera eingöngu í tölvusam-
skiptum við Kína og að í flestum
tilfellum þurfi fólk að fara utan til
að láta svona ganga upp. Allt gekk
þetta þó á endanum hjá Nínu og
húfurnar urðu eins og hún ósk-
aði sér. „Í kringum Kínaævintýrið
mitt stofnaði ég svo fyrirtækið
Nína fína eða í september
í fyrra.“
Hröð þróun
Þegar Nína byrj-
aði að sauma,
saumaði hún ein-
ungis húfur á börn
en það breyttist
fljótt er hún fór að fá
sérpantanir frá full-
orðnum. Upphaflega
ætlaði Nína sér að hafa
enga húfu eins en þegar
framleiðslan fór af stað varð
það erfitt viðureignar.
Nína lagði stund á nám í textíl-
deild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands á árunum 1990 til 1993 og
nýtist sú reynsla henni afar vel við
hönnun húfanna. Það eru þó ekki
einungis húfur sem Nína saumar
því eins og sjá má á heimasíðu fyr-
irtækisins, ninafina.is, saumar Nína
einnig fallegar peysur og kjóla.
Vörurnar fást ekki í verslunum
á höfuðborgarsvæðinu en víða úti
á landi má rekast á vörur frá Nínu
fínu, meðal annars í Leifsstöð, á
Gullfossi og Landnámssetrinu í
Borgarnesi.
Hins vegar geta áhugasamir
haft samband við Nínu í gegnum
heimasíðuna og pantað það sem
hugann girnist en þar má sjá allt
vöruúrvalið í heild sinni.
Hönnun fyrir alla
Húfurnar eru á mjög góðu verði
og þegar Nína er spurð út í það seg-
ist hún hafa lagt upp með það frá
byrjun að vera með hönnun fyrir
alla. „Ég vil að fólk úr öllum stétt-
um geti keypt hönnun mína. Svo
eru börn líka svo gjörn á að týna
húfunum sínum og þar af leiðandi
fannst mér nauðsynlegt að hafa
þær á góðu verði.“
Aðspurð hvað hún vilji ráðleggja
konum í hennar sporum sem eiga
sér draum segir Nína þeim einfald-
lega að láta vaða. „Ef það svo geng-
ur ekki upp ertu allavega ekki að
pirra þig á því að hafa ekki reynt
það sem eftir er. Lífið er stutt og
því á maður að vinna að því að láta
draumana sína rætast,“ segir Nína
að lokum.
Konan
Ræktaðu líkama og sál
skammdegið hefur ekki farið framhjá nokkrum manni
síðustu vikur og það sama má segja um kreppuna.
Hvort tveggja getur dregið fólk niður og haft áhrif á
andlega og líkamlega líðan. Hugið því vel að heilsunni
og reynið að rækta líkamann nokkrum sinnum í viku
með góðri hreyfingu. Hreyfing veitir fólki vellíðan og
losar meðal annars um streitu og stress.
umsjóN: kOLbrÚN pÁLÍNa HeLgadóttIr kolbrun@dv.is
Út er komin hjá Sölku falleg og fróðleg bók
um tarotspil og notkun þeirra. Hún heitir Tar-
ot, nútíð og framtíð og er eftir Heru Karlsdótt-
ur. Hera er sjálfmenntuð í tarotlestri, dulspeki
og talnaspeki en til þess að fá enn betri inn-
sýn í leyndardóma tarotspilannna lærði hún
stjörnuspeki hjá Gunnlaugi Guðmundssyni.
Í bókinni er saga spilanna stuttlega rakin,
spilunum lýst, merking þeirra túlkuð og að lok-
um sýndar einfaldar lagnir með fáum spilum
sem auðvelt og fljótlegt er að lesa úr þegar búið
er að læra táknin.Með notkun tarotspila sjáum
við okkar innri mann í nýju ljósi. Þau eru okkur
hvorki hliðholl né andstæð en geta opnað nýja
sýn á það sem er að gerast í kringum okkur.
Bókin er fallega myndskreytt, 90 bls og í kilju.
TaroT, núTíð og framTíð
DV0810312353
Kona Vikunnar
Hvað borðar þú í morg-
unmat?
„Ég blanda sjeik sem er
orkugefandi, sérstaklega
góður fyrir húð og fyrirbygg-
ir öldrun. Út í sjeikinn set ég
nokkrar tegundir af vítam-
ínum.“
Hvar líður þér best?
„Heima með dætrum mín-
um, heima hjá mömmu og
pabba og á Þingvöllum í bú-
staðnum. En ætli það sé ekki
í raun hvar sem er, bara að
ég sé með mínum nánustu,
þá líður mér vel.“
Hvernig heldur þú þér í
formi?
„Ég fer 4-5 sinnum í viku í
Sporthúsið í Kópavogi þar er
ég í þjálfun hjá Fannari Karv-
el sem er allra besti þjálf-
ari sem ég hef verið hjá. Svo
er það mataræðið sem mér
finnst skipta mjög miklu í
góðri líðan.“
Hvaða snyrtivörur notar
þú dagsdaglega?
„The Cream-rakakrem sem
mér finnst æðislegt. Liquid
Foundation, Sensitive-mask-
ara, Beam-sólarpúður, Lip
Wheel-varasalva. Í hárið set
ég efni sem heitir Shiny. Allt
auðvitað frá Make Up Store.“
Hvar kaupir þú helst föt?
„Ég er hrifin af fatnaðinum
frá Day Birger et Mikkelsen,
annars hef ég keypt föt meira
í utanlandsferðum og þá sér-
staklega Stokkhólmi þegar ég
fer út vegna vinnu.“
Hvað gerir þú þegar þú
vilt dekra við sjálfa þig?
„Ég tek frá 1-2 kvöld í mán-
uði og dekra við húðina og
hárið. Þá finnst mér æðislegt
að fara í heitt bað, gefa and-
litinu gufu og nota skrúbba
og maska úr Home SPA-lín-
unni frá Make Up Store.“
Hvert er þitt helsta
fegrunarráð?
„Ég hreinsa húðina ávallt á
morgnana og á kvöldin með
froðuhreinsi. Nota hann líka
sem rakfroðu í sturtunni. Ég
get ekki verið án kamillu-
vatns sem sótthreinsar og
dregur úr roða og C-vítam-
ín-serums. Nægur svefn og
vatnsdrykkja eru líka ofar-
lega á listanum.“
maRgRét R. JónasaR-
dóttiR, eigandi make up
stoRe á íslandi.
Mataræðið
skiptir öllu
K
on
a v
iku
nn
ar
Ákvað að
freista
gæfunnar
Í kennaraverkfall-
inu 2004 fór kenn-
arinn nína lofts-
dóttir að finna
fyrir eirðarleysi og
ákvað því að byrja
að hanna og
sauma húfur.
Þremur árum
síðar varð fyrir-
tækið Nína fína til.
Nína sagði DV frá
ævintýrinu.
litrík og skemmtileg
hönnunHúfurnar eru afar litríkar
og fallega skreyttar með hinum
ýmsu dýrum eða munstrum.
að störfum Nína byrjaði að
hanna og sauma húfur árið
2004. Húfurnar má nálgast á
heimasíðunni ninafina.is