Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Page 38
Föstudagur 7. Nóvember 200838 Helgarblað
Auk in ökurét t ind i - Mei rapróf
Næsta námskeið hefst 12. nóvember
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300.
Starfsemi skólans:
B-réttindi alla virka daga kl. 18–22
Helgarnámskeið
Dagnámskeið kl. 16–18
B-réttindi á pólsku, ensku og tælensku
Bjóðum einnig upp á önnur námskeið:
Vistakstur
Bifhjólanámskeið
Námskeið í samvinnu við Vegagerðina
Ökuskólinn í Mjódd hefur verið starfandi síðan 1968.
Hinir
Bond-
arnir
Sean Connery
skoska kyntröllið sean Connery lék
James bond í fyrstu bond-
myndinni, dr. No, árið 1962. Hann
hefur í gegnum tíðina að flestra
mati verið hinn eini sanni bond og
sporgöngumenn hans hafa allir
mátt þola samanburð við skoska
töffarann. samanburð sem vonlaust
var að standast þar til daniel Craig
mætti til leiks með látum í Casino
royale. síðan þá hafa alvöru
bondarnir verið tveir.
GeorGe Lazenby
Þessi ólánsami Ástrali fékk það
vanþakkláta verkefni að fylla skó
Connerys þegar hann hafði fengið
sig fullsaddan af bond. Lazenby
stóð sig með ágætum en aðdáend-
ur bonds sættu sig engan veginn
við hann sem arftaka Connerys og
hann varð frá að hverfa eftir eina
mynd.
roGer Moore
röðin kom að roger moore
ferskum úr sjónvarpsþáttunum um
dýrðlinginn eftir að Connery gafst
endanlega upp á bond. Nálgun
moores var í raun út úr kú sé horft
til þess sem áður hafði verið gert.
Léttleikinn var í fyrirrúmi og
trúðslætin í moore gerðu bond-
myndirnar nánast að gamanmynd-
um.
TiMoThy DaLTon
Þegar roger moore skilaði inn leyfi
sínu til að drepa fyrir aldurs sakir
tók timothy dalton, alvarlegur
shakespeare-leikari, við keflinu.
Hann skorti bæði töffið sem
Connery hafði og var of flatur og
litlaus til þess að geta fyllt skó
grínistans moore. Hann fékk tvö
tækifæri og svo var það búið.
PierCe broSnan
brosnan tók við af dalton og bond
varð aftur töffari. goldeneye var
ákveðið afturhvarf til Connerys.
grínið var til staðar en harkan var
aftur komin í kappann. Fyrstu tvær
brosnan-myndirnar
stóðu vel fyrir
sínu en síðan
fjaraði undan og
það verður vart
við leikarann
sakast en eftir
að daniel
Craig rúllaði
hlutverkinu
upp í Casino
royale efast
nánast
enginn um
að
tímabært
hafi verið
að skipta
brosnan
út.
EKKERT KISS KISS
BARA BANG BANG
James Bond, nafntogaðasti og líf-
seigasti njósnari hennar hátign-
ar, var kominn í tilvistarkreppu
með leikarann Pierce Brosnan í
smókingnum upp úr 2002. Die
Another Day stóð sína plikt og
rúmlega það í miðasölunni en
Bond var samt svolítið eins og
risaeðla í breyttum heimi. Tví-
buraturnarnir höfðu verið jafn-
aðir við jörðu og einhvern veg-
inn var ekki alveg málið að tæta
um íslenska jökla á ósýnilegum
bíl og drepa vonda kalla með
bros á vör. Þar fyrir utan stóð
hinum glaðbeitta Bond ógn af
hörkutólum nýrra tíma, Jack
Bauer og Jason Bourne, sem
gerðu sig líklega til þess að ýta
breska sjentilmanninum með
leyfið til að drepa til hliðar.
Framleiðendur Bond-mynd-
anna breyttu í kjölfarið algerlega
um stefnu og gerðu róttækar og
um leið stórkostlegar breytingar
á Bond sem skiliðu sér í bestu
Bond-myndinni frá upphafi,
Casino Royale, árið 2006. Spilin
voru stokkuð upp á nýtt og Bond
fór aftur á byrjunarreit í bók-
staflegri merkingu en myndin
byggðist vandlega á fyrstu skáld-
sögu Ians Flemming um Herra
Kiss Kiss Bang Bang.
Craig, Daniel Craig
Dramatískasta og heilladrýgsta
ákvörðunin í þessu breytinga-
ferli var svo tvímælalaust ráðn-
ing Daniels Craig í hlutverk
njósnarans. Leikarinn er eins
ólíkur forverum sínum í útliti og
hugsast getur og minnir frekar
á skúrk, handbendi Blofelds og
annarra drullusokka sem gömlu
Bondarnir börðu á. Craig þurfti
þó aðeins þessa einu mynd til
þess að varpa stórum skugga á
þá sem komu á undan honum og
alvöru Bondarnir voru allt í einu
orðnir tveir, Connery og Craig. Í
meðförum Craigs er Bond eng-
inn djóker. Hann er mannleg-
ur, þjáist, gerir mistök, lætur til-
finningarnar rugla dómgreind
sína og á í harkalegri innri bar-
áttu sem hefði aldrei rúmast í
kollinum á Roger Moore.
Auðvitað er það ekki heigl-
um hent að toppa Casino Roy-
ale þannig að framhaldið, Qu-
antum of Solace, er gert undir
gríðarlegri pressu á leikstjórann,
handritshöfundana og ekki síst
Craig sjálfan. Það er skemmst frá
því að segja að Craig er sá eini
sem stenst prófraunina fullkom-
lega. Quantum veldur nokkrum
vonbrigðum í samanburði við
Casino þótt hún sé í sjálfu sér
fyrsta flokks Bond-mynd. Kröf-
urnar til Bonds eru bara óhjá-
kvæmilega orðnar miklu meiri
eftir þá tímamótasprengingu
sem Casino Royale var. Bond
kýlir sem fyrr fast, er skjótari en
skugginn að skjóta á allt sem
hreyfist, keyrir eins og bandít
og drekkur rótsterka kokkteila
í akkorði. Samt vantar eitthvað
upp á og maður fær ekki sömu
fullnæginguna og entist manni í
hálfan mánuð eftir að hafa horft
á Casino Royale.
hertar kröfur
Nóg er af hasarnum þannig að
hér er fyrst og fremst við hand-
ritshöfundana að sakast og í
raun er það mesta furða að þeir
hafi ekki getað haldið styrk Cas-
ino Royale þar sem Quantum of
Solace er þráðbeint framhald
fyrri myndarinnar þannig að
varla hafa liðið nema nokkrar
klukkustundir í sögutímanum á
milli þess sem Bond skýtur hinn
dularfulla Herra White í fótinn í
lok Casino þar til hann brunar
um með hann í skottinu í geggj-
uðum bílaeltingaleik í byrjun
Quantum. Einhvern tíma hefði
krafan um heilsteyptan og góð-
an söguþráð í Bond-mynd þótt
fjarstæðukennd þar sem mynd-
irnar hafa í gegnum árin ver-
ið óttalegt bull. En með Casino
Royale er þessi krafa skýlaus ekki
síst þar sem við blasir að lagt er
upp með að segja sköpunarsögu
Bonds og lýsa því hvernig hann
verður smám saman sá kaldrifj-
aði morðingi sem Ian Flemming
skrifaði um.
Í Quantum of Solace rekur
hvert tryllingsatriðið annað þar
sem Bond slæst, hleypur, flýgur,
siglir hraðbátum, skýtur, spreng-
ir og bókstaflega drepur alla sem
verða á vegi hans og ekkert nema
gott um það að segja. Djöful-
gangurinn er að vísu slíkur að á
köflum sundlar mann yfir hröð-
um klippingum og töffarastæl-
um með myndavélina sem rekja
má til hins stórlega ofmetna
myndabálks um Jason Bourne.
Þegar Bond er annars vegar er
ofkeyrsla af þessu tagi óþarfi og
auðvitað á Bond ekkert að vera
að elta Bourne. Slíkt er fáránlegt
þar sem Daniel Craig er erki-
töffari sem þarf ekki ýktar flug-
eldasýningar til að halda áhuga
áhorfenda þótt krakkabjáninn
Matt Damon þurfi að treysta á
slík meðul.
Gellurnar á ís
Þessi tilkomumiklu atriði svín-
virka hvert um sig en það fer
í taugarnar á manni að sögu-
þráðurinn tengi þau ekki bet-
ur saman í jafnsterka heild og
boðið var upp á fyrir tveim-
ur árum. Ég ætla samt ekki að
halda þessu gegn Bond og hafa
af honum fjórðu stjörnuna fyr-
ir þessar sakir þar sem þessi
grautur býður upp á allt það sem
maður hefur í gegnum árin ætl-
ast til af kappanum. Fyrir utan
það þó að nú gengur svo mik-
ið á að þessi gamli kvennaljómi
má varla vera að því að sofa hjá.
Einhverjir breskir gagnrýnend-
ur hafa verið að væla yfir áhuga-
leysi Bonds á gellunum sínum
en þetta er bara hið besta mál.
Kyssa minna, drepa meira er
dagskipun sem virkar og ein-
hvern veginn skilur maður vel
að Bond hafi meiri áhuga á að
koma illmennum til heljar en að
sænga hjá föngulegum fljóðum.
Maðurinn er nú einu sinni í ást-
arsorg síðan í Casino Royale.
Langflottastur
Eins og áður segir er Craig sá
eini sem heldur öllu sínu frá
fyrri myndinni. Maðurinn er fá-
ránlega flottur í tauinu og brjál-
æðislega töff í alla staði og þeg-
ar handritshöfundarnir gefa
Craig ráðrúm til þess að túlka
tætta sál sem kastast á milli
væmni og tilfinningakulda skil-
ar Craig angistinni með prýði.
Hver annar gæti verið sannfær-
andi þegar hann hendir líki vin-
ar síns í ruslagám eftir að hafa
haldið utan um hann í dauða-
teygjunum? Handritshöfund-
arnir sleppa því með áminn-
ingu að þessu sinni og Craig
tryggir þeim fjórðu stjörnuna
ásamt nokkrum dásamlegum
atriðum og vísunum til fortíð-
arinnar þar sem hæst ber fárán-
lega flott bergmál af Goldfinger
sem kallar beinlínis fram gæsa-
húð. James Bond er ennþá flott-
asti útvörður hins frjálsa heims
en næstu skref þarf að hugsa
vandlega en ef næsta mynd
gengur upp kemur ekki að sök
þótt drápsvélin hafi aðeins hökt
á þessum vegarspotta.
Þórarinn Þórarinsson
kvikmyndir
QuANTum
of SolAcE
Leikstjóri: marc Forster
aðalhlutverk: daniel Craig, Olga
Kurylenko, mathieu amalric, Judi dench
James bond bond daniels
Craig heldur kúlinu alla
leið og er alveg
jafnbaneitraður töffari og
í Casino royale fyrir
tveimur árum.