Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Qupperneq 42
Örn fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1948, embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1953, öðlaðist hdl.-réttindi 1958 og
hrl.-réttindi 1963.
Örn var lögfræðingur og ráðunaut-
ur á Keflavíkurflugvelli 1953, forstjóri
Trípólíbíós 1953-57, starfrækti eigin
lögfræðiskrifstofu frá 1958 og ásamt
Guðrúnu Erlendsdóttur á árunum
1961-78.
Örn sat í kjaranefnd Lögmanna-
félags Íslands í nokkur ár og var for-
maður hennar um skeið.
Örn æfði og keppti í frjálsum
íþróttum á árunum 1946-51, setti
samtals tíu Íslandsmet í grindahlaup-
um og tugþraut, sigraði í tugþraut á
Norðurlandamóti í Stokkhólmi 1949,
setti Norðurlandamet í tugþraut 1951,
vann silfurverðlaun í tugþraut á Evr-
ópumeistaramótinu í Brussell 1950 er
Torfi Bryngeirsson varð Evrópumeist-
ari í langstökki og Gunnar Huseby
varð Evrópumeistari í kúluvarpi, og
náði næstbesta árangri í heimi í tug-
þraut 1951.
Fjölskylda
Eiginkona Arnar er Guðrún Er-
lendsdóttir, f. 3.5. 1936, fyrrv. hæsta-
réttardómari. Hún er dóttir Erlendar
Ólafssonar, f. 9.2. 1894, d. 30.8. 1980,
sjómanns, og Jóhönnu Vigdísar Sæ-
mundsdóttur, f. 30.11. 1899, d. 19.11.
1981, húsmóður.
Börn Arnar og Guðrúnar eru Ól-
afur, f. 18.7. 1963, rekstrarhagfræð-
ingur í Reykjavík; Guðrún Sesselja,
f. 23.8. 1966, lögmaður í Reykjavík;
Jóhanna Vigdís, f. 26.5. 1968, leik-
kona og söngkona í Reykjavík.
Synir Arnar og fyrri maka, Önnu
Þóru Thoroddsen, f. 3.12. 1930:
Haukur Skúli, f. 3.8. 1952, búsettur
í Reykjavík; Árni C.Th., f. 18.7. 1954,
forritari og starfsmaður Eimskips;
Örn, f. 9.11. 1955, d. 2007; Ingvi Þór,
f. 6.8. 1957, kerfisstjóri í Reykjavík;.
Hálfbróðir Arnar, samfeðra: Al-
freð Clausen, f. 7.5. 1918, d. 26.11.
1981, söngvari og málarameistari í
Reykjavík.
Tvíburarbróðir Arnar: Haukur, f.
8.11. 1928, d. 1.5. 2003, tannlæknir.
Foreldrar Arnar voru Arreboe
Clausen, f. 5.11. 1892, d. 8.12. 1956,
bifreiðastjóri í Reykjavík, og k.h.,
Sesselja Þorsteinsdóttir Clausen, f.
28.12. 1904, d. 6.12. 1996, húsmóðir.
Ætt
Arreboe Clausen var bróðir Óskars
rithöfundar og Axels Clausen kaup-
manns, afa Andra heitins Clausen,
leikara og sálfræðings, og Michaels
Clausen barnalæknis. Arreboe var
sonur Holgeirs Peters Clausen, gull-
grafara, kaupmanns og alþm. Hans-
sonar A. Clausen, borgarráðsmanns
í Kaupmannahöfn Holgerssonar,
kaupmanns í Hæstakaupstað á Ísa-
firði. Móðir Holgeirs Peters var Ása,
dóttir Óla, kaupmanns í Reykjavík
Sandholt. Móðir Óla var Anike, dótt-
ir Ola sænska og Carinu grænlensku.
Móðir Ásu var Guðrún Árnadóttir,
kaupmanns í Reykjavík Jónssonar.
Móðir Arreboe var Guðrún, syst-
ir Einars, afa Lúðvíks Kristjánssonar
rithöfundar. Guðrún var dóttir Þor-
kels, prófasts á Staðastað Eyjólfs-
sonar, pr. í Garpsdal Gíslasonar, pr.
á Breiðabólstað Ólafssonar, biskups
í Skálholti Gíslasonar. Móðir Þor-
kels var Guðrún Jónsdóttir, pr. og
skálds á Bægisá Þorlákssonar. Móð-
ir Guðrúnar var Ragnheiður, systir
Páls, langafa Péturs Sigurgeirssonar
biskups. Annar bróðir Ragnheiðar
var Páll yngri, langafi Harðar Einars-
sonar, hrl. og Róberts Arnfinnssonar
leikara. Ragnheiður var dóttir Páls,
prófasts í Hörgsdal, Pálssonar, ætt-
föður Pálsættar Jónssonar.
Móðir Sesselju Þorsteinsdótt-
ur var Arnheiður, systir Böðvars á
Laugavatni, langafa Guðmundar
Steingrímssonar vþm.. Arnheiður
var einnig systir Ragnhildar, móður
Gunnars Bergsteinssonar, fyrrv. for-
stjóra Landhelgisgæslunnar. Arn-
heiður var dóttir Magnúsar, b. á
Holtsmúla á Landi Magnússonar, b.
á Stokkalæk á Rangárvöllum, bróður
Guðrúnar, langömmu Ingva Ingvars-
sonar sendiherra. Magnús var sonur
Guðmundar, b. í Króktúni á Rangár-
völlum, bróður Þorsteins í Núpakoti,
langafa Þórhildar Þorleifsdóttur,
Eggerts Haukdal og Benedikts Boga-
sonar. Móðir Arnheiðar var Arnheið-
ur Böðvarsdóttir, b. á Reyðarvatni á
Rangárvöllum Tómassonar. Móðir
Arnheiðar var Guðrún Halldórsdótt-
ir, b. á Reyðarvatni Guðmundssonar.
Móðir Halldórs var Guðbjörg Sigurð-
ardóttir, systir Salvarar, ömmu Tóm-
asar Sæmundssonar Fjölnismanns,
langafa Þórhildar, móður Sigurðar
Líndal lagaprófessors. Bróðir Guð-
bjargar var Jón prestur á Hrafnseyri,
afi Jóns forseta.
80 ára á laugardag
Örn Clausen
hæstaréttarlögmaður
Ættfræði
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson kgk@dv.is
Kjartan Gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra
Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
Íslendinga. Lesendur geta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is
Óttarr Ólafur Proppé
tónlistar- og verslunarmaður í Reykjavík
Óttarr fæddist í Reykja-
vík en ólst upp í Hafn-
arfirði. Hann var í Öldu-
túnsskóla, stundaði nám
við Flensborg, lauk stúd-
entsprófi frá Pennridge
High School í Pensil-
vaníu í Bandaríkjunum.
Óttarr sinnti verka-
mannastörfum með
skóla á sumrin. Hann
hefur verið verslunar-
maður hjá Eymundsson
og Mál og menningu frá
1987.
Óttarr stundaði lúðr-
anám við Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar og lauk þaðan burtfara-
prófi. Hann hefur verið söngvari
með ýmsum hljómsveitum, s.s.
HAM, Funkstrasse, Rass, og Dr.
Spock.
Allar þessar hljómsveitir hafa
gefið út hljómdiska og sumar
þeirrar nokkra en Óttarr hefur
samið fjölda laga í samvinnu við
hljómsveitarfélaga sína.
Óttarr hefur samið handrit
fyrir heimildarmyndir, s.s. Bítla-
bærinn Keflavík. Þá hefur hann
leikið í nokkrum kvikmyndum,
s.s. Sódómu Reykjavík;
Nóa Albínóa; Skrapp út
og Óskabörnum þjóðar-
innar. Hann er varamað-
ur í stjórn STEF.
Fjölskylda
Kona Óttars er Svan-
borg Sigurðardóttir, f.
5.2. 1967, verslunarmað-
ur og söngkona.
Systkini Óttars eru
Jón Proppé, f. 1962, list-
heimspekingur og gagn-
rýnandi í Reykjavík;
Hulda Proppé, f. 1971,
mannfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Óttars eru Ólafur Jó-
hann Proppé, f. 1942, fyrrv.rekt-
or KHÍ, og Pétrún Pétursdóttir, f.
1942, fyrrv. forstöðumaður Hafn-
arborgar.
Ólafur er sonur Óttars Proppé
forstjóra, og Guðrúnar Huldu
Gísladóttur Proppé húsmóður.
Pétrún er dóttir Péturs Árna-
sonar skipstjóra og Maríönnu
Ingibjargar Elíasdóttur húsmóð-
ur.
Óttarr fagnar afmælinu með
fjölskyldunni.
40
ára á
föstudag
Margrét Bogadóttir
sérhæfður starfsmaður á leikskóla
Margrét fæddist í Reykja-
vík og ólst upp í Ár-
bæjarhverfinu þar sem
áður voru svonefnd-
ir Árbæjarblettir. Hún
lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla verk-
náms 1965, stundaði
nám við Follo Folkehog-
kole í Vestby í Noregi og
stundar nú nám sem
leikskólaliði hjá Mími -
Símenntun.
Margrét hóf störf hjá
Barnavinafélaginu Sum-
argjöf, sem síðar varð
Dagvist barna, og starfaði þar á
árunum 1969-78, starfaði í verk-
smiðjum Álafossi 1981-91 og hef-
ur starfað hjá Dagvist barna (síð-
ar Leikskólar Reykjavíkurborgar)
frá 1991.
Margrét var trúnaðarmað-
ur starfsfólks á vinnustað er hún
starfaði hjá Álafossi, var trúnað-
armaður hjá Eflingu við leikskóla
um skeið og sat í stjórn Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks 1988-91.
Fjölskylda
Margrét giftist 15.6. 1968 Gísla
Þór Þorbergssyni, f. 21.10. 1945,
húsverði við Sæmundarskóla.
Hann er sonur Þorbergs Gísla-
sonar, verkamanns á Ólafsfirði
og í Reykjavík, og Kristínu Soffíu
Magnúsdóttur, húsmóður á Ól-
afsfirði en þau eru bæði látin.
Börn Margrétar og Gísla Þórs
eru Álfheiður, f. 13.11. 1968, leik-
skólakennari í Kópavogi, en mað-
ur hennar er Arnar Þór Reynis-
son matreiðslumaður og eiga þau
tvö börn, Ásgeir Má, f. 2.11. 1991,
og Margréti Ósk, f. 13.3. 2000;
Herdís, f. 12.9. 1970, hjúkrunar-
fræðingur við Landsspítalann en
maður hennar er Vilhelm S. Sig-
mundsson, kennari við VÍ, og
eiga þau þrjú börn, Hrafnhildi, f.
26.12. 1993, Birtu Margréti, f. 5.2.
2002, og Martein Þór, f. 20.7. 2004;
Þorbergur, f. 1.3. 1974, kerfisfræð-
ingur í Noregi en kona hans er
Lilja Sighvatsdóttir, starfsmað-
ur við leikskóla í Noregi
og eiga þau þrjú börn,
Oddlaugu Marín, f. 14.6.
1999, Oliver Breka, f.
19.5. 2003, og Ölmu Liv,
f. 28.11. 2007; Svanborg,
f. 6.4. 1978, MA í líf-
fræði, búsett í Kópavogi
en maður hennar er Ní-
els Birgir Níelsson fram-
kvæmdastjóri og er dótt-
ir þeirra Heiðdís Perla, f.
20.12. 2007.
Hálfbróðir Margrétar
er Björn Sævar Bogason,
f. 28.6. 1937, bifvélavirki
í Reykjavík. Fósturbróðir Mar-
grétar er Benedikt Bjarni Kristj-
ánsson, f. 26.9. 1935, fyrrv. bif-
reiðarstjóri í Reykjavík.
Fóstursystir Margrétar er
Guðbjörg Ágústsdóttir, f. 31.3.
1952, starfsmaður við Árbæjar-
skóla. Foreldrar Margrétar: Bogi
Sigurðsson, f. 27.8. 1906, d. 14.11.
1979, kennari og framkvæmda-
stjóri Sumargjafar, og Álfheiður
Bjarnadóttir, f. 5.10. 1906, d. 23.8.
1953, saumakona.
Fósturforeldrar Margrétar
voru Ágúst Filippusson, f. 1.8.
1904, d. 11.2. 1995, húsvörður við
Árbæjarskóla, og Svava Bjarna-
dóttir, f. 2.6. 1910, d. 16.9. 1989,
matráðskona við Árbæjarskóla.
Ætt
Ágúst og Bogi voru fóstur-
bræður. Þeir ólust upp hjá séra
Vigfúsi Þórðarsyni og k.h., frú
Sigurbjörgu Bogadóttur, að Ey-
dölum í Breiðdal. Svava og Álf-
heiður voru systur, dætur hjón-
anna Bjarna Eyjólfssonar og
Margrétar Benediktsdóttur, frá
Hólabrekku á Mýrum í Horna-
firði. Önnur systkini Svövu og
Álfheiðar voru Ingunn, Sigur-
bergur, Torfhildur, Ásta, Mar-
grét, Sigríður, Eyjólfur, Ásta,
Benedikt og Helga.
Álfheiður, dóttir Margrétar,
verður fertug þann 13. n.k. Mar-
grét og dætur hennar verða í
London á afmælisdaginn.
60
ára á
sunnudag
FöstUdaGUr 7. nóvember 200842 Ættfræði