Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Qupperneq 44
Föstudagur 7. Nóvember 200844 Helgarblað DV
umsjóN: kolbrúN pálíNa helgadóttir kobrun@dv.is
Sjóðandi Súpur
á köldum vetrarkvöldum er fátt
betra í kroppinn en sjóðandi heit
og matarmikil súpa. tilvalið er að
gera stóra uppskrift og njóta
afganganna daginn eftir. dv tók
saman nokkrar einfaldar og
gómsætar haustsúpur sem allir
ættu að geta eldað.
Mexíkönsk súpa
hráeFNi:
n 2 stk. sellerí stilkar - smátt
skornir
n 1 stk. rauð paprika
n 1 stk. rauðlaukur
n 1 stk. laukur
n 500 g nautahakk eða kjúklingur
n steikt og kryddað með salti og
pipar
n 8 dl vatn
n 200 g rjómaostur
n 5 dl matreiðslurjómi
n 1 dós tómatkraftur
n 1 dós hakkaðir tómatar
n 1 dós chilibaunir/nýrnabaunir
aðferð: grænmeti léttsteikt á
pönnu
steikið kjötið og kryddið með salt
og pipar. setjið í pott ásamt
grænmeti og baunum. kryddið
með grænmetiskrafti, hvítlauks-
kryddi, salti, pipar og sætri
chilisósu (má sleppa) berið fram
með: Nachos-snakki, sýrðum
rjóma, rifnum osti og heitu brauði.
Gúllassúpa
hráeFNi:
n 700 g nautagúllas
n 2 laukar
n 3 hvítlauksrif
n 3 msk. olía til steikingar
n 1 ½ msk. paprikuduft
n 1 ½ l vatn
n 2 msk. kjötkraftur (eða 2
teningar )
n 1 tsk. kúmenfræ
n 1-2 tsk. merian
n 700 g kartöflur (8 meðalstórar)
n 2-3 gulrætur
n 2 paprikur
n 4-5 tómatar eða 1 dós niður-
soðnir (400 g).
aðferð: saxið lauka og pressið
hvítlauksrif. steikið kjötið í olíunni
í potti ásamt lauk og hvítlauk. strá-
ið paprikuduftinu yfir kjötið og
bætið vatni út í pottinn ásamt
kjötkrafti, kúmeni og meriani.
látið sjóða við vægan hita í 40
mín. Flysjið kartöflurnar. skerið
kartöflur, gulrætur, papriku og
tómata í litla bita. bætið kartöfl-
um, gulrótum og paprikum út í
pottinn og látið sjóða við vægan
hita í 30 mín. kryddið ef með þarf.
GrænMetissúpa
hráeFNi:
n 1 stór púrrulaukur
n 1 stór gulrót
n 2 stórar kartöflur
n 1 lítill hvítkálshaus
n 75 g beikon
n 2 stk. tómatar
n 1 stk. laukur
n 2 msk. söxuð steinselja
n 2 lítrar soð eða vatn
salt
n 2 msk. smjör eða smjörlíki
aðferð: hreinsið grænmetið og
skerið í litlar ræmur. bræðið
smjörið í mátulega stórum potti
og látið beikonið og laukinn
krauma í því smástund. setjið
vatnið í pottinn og síðan allt græn-
metið. látið sjóða í 1 klukkustund.
Þá er súpan tilbúin, bragðbætið
hana með salti og kjötkrafti ef
með þarf.
& ínMatur
Púrtvínsgljáð-
ar appelsínur
og ferskjur Gestgjafinn heldur áfram að deila með lesendum DV
gómsætum uppskriftum úr
glæsilegu Villibráðarblaði
sínu sem enn má nálgast í
verslunum. Að þessu sinni
fáum við eina gómsæta úr
þættinum Meðlætið með
villibráðinni. Í þættinum
má finna mikið af
skemmtilegum hugmynd-
um að meðlæti sem hentar
vel með villibráð.
Þessi ómótstæðilegi réttur
bræðir hvern sem er og ef
afgangur verður af réttin-
um er tilvalið að bera hann
fram sem eftirrétt og þá
með þeyttum rjóma.
UPPskrift fyrir 4:
n 1-2 msk. smjör
n 1 appelsína, skræld og
skorin í bita
n 2 ferskjur, skrældar og
skornar í báta
n 1-2 msk. sykur
n 1 kanilstöng
n 4-5 negulnaglar
n 1 dl portvín
bræðið smjör á pönnu og
steikið appelsínu- og
ferskjubita í 1-2 mín. stráið
sykri yfir, bætið kanilstöng
og negulnöglum út í og
blandið vel saman. steikið
áfram í 1-2 mín., hellið þá
portvíni yfir og hitið áfram í
1 mínútu.
Buff og partímatur
„Danskt“ hakkabUff
n 500 g hakk (blandað 250 g
nautahakk og 250 g grísahakk).
n 2 ristaðar brauðsneiðar
n 1 egg
salt, pipar, paprika
laukurinn og ristaða brauð eru
smásöxuð
öllu er hrært saman og útbúnar
buffsneiðar, 5-6 stk.
steikt á pönnu í smjörlíki með
lauksneiðum (Því meiri laukur því
betra)
borið fram með soðnum kartöflum,
grænum baunum, rauðkáli, rauðrófum
og rifsberjasultu.
Næturmatur eFtir partí:
n 4 svínakótelettur
n 2 epli
n 1 laukur
n 100 g brauðmylsna
n 2 egg
n 50 g hveiti
n rúgbrauð
n smjörlíki
n 1 kjötteningur eða svolítill rjómi.
svínakótelettunum er velt upp úr
hveiti, síðan þeyttu eggi og brauð-
mylsnu. brúnaðar í smjörlíki og steiktar
á lágum hita í 10 mínútur.
Þegar kóteletturnar eru orðnar kaldar
eru þær skornar í þunnar sneiðar á ská.
kjötið er lagt ofan á smurt rúgbrauð.
lauksneiðar og eplabátar soðið
smástund í smjöri á sömu pönnu og
kóteletturnar voru steiktar á.
Þetta er lagt ofan á kjötið. kjötkrafti
eða rjóma er hellt yfir pönnuna og
heitur krafturinn borinn fram með.
„Ég skora á Erling Hannesson, bílasala í Njarðvík.
Erlingur er meistarakokkur og lipur í eldhúsinu.
Hann galdrar örugglega fram gómsæta rétti eins
og honum er einum lagið.“
uppskriFt: guðrúN hruNd
myNd: karl petersson
Í boði Gestgjafans
Matur GeGn kvefi
á löngum köldum vetrum vill kvef oft staldra
lengi við og angra okkur. gott ráð við þrálátu
kvefi er að skera nokkrar lauksneiðar og setja
á disk og leyfa þeim að vera á náttborðinu yfir
nóttina. hvítlaukur er einnig talinn virka vel við
ýmsum kvillum, sem dæmi við eyrnabólgu. leggið
hvítlauk í grisju við eyrað og látið liggja yfir nótt.
„Ég ætla að bjóða upp á tvenns
konar góðgæti, annars vegar
danskt hakkabuff og hins veg-
ar ljúffengan mat sem gott er að
gæða sér á að loknu partíi.“
M
atg
æð
ing
ur
inn