Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Side 46
Föstudagur 7. Nóvember 200846 Á ferðinni
Á ferðinni
Hlaupið um Reykjavík
Í reykjavík og nágrenni má finna fjölbreyttar
göngu- og hlaupaleiðir. Þeir sem hafa áhuga á
skokki ættu að kíkja inn á vef reykjavíkurborgar.
Þar má finna skemmtilegar hlaupaleiðir sem búið
er flokka eftir hverfum og mæla þær allar í kíló-
metrum. Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á skokki er
einnig hægt að labba þessar leiðir rösklega. Nán-
ari upplýsingar má finna inni á reykjavik.is.
umsjóN: Ásgeir jóNssoN asgeir@dv.is
Gott að GanGa
í kreppunni
Bjart fram undan er skemmtilegt samstarfsverkefni Íslenskra fjallaleiðsögumanna og
66° Norður. Boðið er upp á vikulegar gönguferðir í kringum borgarmörkin. Gönguferð-
irnar gefa fólki aukinn kraft í skammdeginu.
Ég held að það sé alveg nauðsyn-
legt núna að fólk stundi útivist,“
segir Dagný Indriðadóttir, leið-
sögukona hjá Íslenskum fjalla-
leiðsögumönnum. En Íslensk-
ir fjallaleiðsögumenn í samvinnu
við 66° Norður bjóða upp á viku-
legar gönguferðir innan og í kring-
um bæjarmörkin sem heita því
skemmtilega nafni Bjart fram und-
an.
lýsir upp skammdegið
„Þessar göngur eru hugsað-
ar sem skammdegisgöngur. Í síð-
ustu göngu sem ég fór í lögðum
við af stað klukkan 18 og vorum
ekki komin í bæinn fyrr en um 23.
Drjúgan hluta göngunnar göngum
við í myrkri og Bjart fram undan
vísar til þess að göngugarparnir
eru með höfuðljós sem vísar veg-
inn,“ útskýrir Dagný.
„Annaðhvort erum við að ganga
um fjalllendi í nágrenni Reykjavík-
ur eða innan borgarmarkanna,“
segir Dagný og bætir við. „Í síðustu
viku fórum við í frábæra göngu.
Við gengum á svæðinu í kringum
Stóru Eldborg og upp á fjall sem
heitir Geitahlíð sem er 385 metrar
á hæð.“
Veðurspáin fyrir tiltekna göngu
átti ekki að vera sú besta, en Dag-
ný segir að lítið sé hægt að treysta
á þær spár fyrir svona göngur. „Við
fengum æðislegt veður. Það var
stjörnubjart og við sáum rosaleg
norðurljós.“
kraftur í göngunni
Hún segir það gefa fólki mikinn
kraft að fara í göngur í skammd-
eginu. „Þegar myrkrið er komið
er svo gott að labba úti í náttúr-
unni. Og ég tel það nauðsynlegt
eins og staðan í þjóðfélaginu er
að fólk kúpli sig aðeins út úr um-
ræðunni. Það er ekki verið að ræða
efnahagsmálin í þessum göngum.
Við erum að skoða norðurljósin,
Pólstjörnuna og í raun fer maður í
allt annan gír í þessum gönguferð-
um. Þær eru alveg endurnærandi,“
segir Dagný. Síðasta vor var hald-
ið uppi sviðaðri dagskrá sem bar
heitið Toppaðu með 66°Norður og
miðaði hún að því að komast upp
á Hvannadalshnjúk. Næsta vor er
markmiðið að vera með sérstaka
göngudagskrá.
Útivist fyrir alla
Dagný segir viðbrögð við
göngudagskránni hafa verið mjög
góð og hafa Íslendingar sýnt þessu
mikinn áhuga. „Við fáum mik-
ið af vinahópum sem og vinnu-
staðahópum í göngurnar okkar.
Það þægilega við göngurnar er að
maður þarf einungis að eiga góða
skó og góðan klæðnað. Göngur
eru ekki sport heldur sérhæfð úti-
vist og allir geta tekið þátt,“ segir
Dagný.
„Það er stefnan hjá okkur í
vor að fá sem flesta með okkur
og á öllum aldri því þetta er ekki
íþróttakeppni,“ útskýrir hún. „Það
er einn karlmaður sem er byrjað-
ur í Bjart fram undan. Hann ætlar
upp á Hvannadalshnjúk næsta vor
í tilefni af 75 ára afmæli sínu,“ bæt-
ir hún við.
Göngudagskrá Bjart fram und-
an er opin öllum, en Dagný mælir
með því að fólk skrái sig á heima-
síðu Íslenskra fjallaleiðsögu-
manna. Nánari upplýsingar má
finna á fjallaleidsogumenn.is.
Á slóðum
Seans Connery
eftir að hafa húkkað far með
hippanum dane á flugvöllinn í
Krabi, tók við klukkutíma flug yfir til
Kuala Lumpur í malasíu. Þangað var
ferðinni heitið til að heimsækja vini
okkar þau völu og óskar sem hafa
verið þar í námi síðan í janúar. við
bjuggumst síst við því að komast í
sama lúxus og á taívan en raunin
varð önnur. vala og óskar búa í
Little india-hverfinu í fínni
íbúðarblokk með góðri öryggis-
gælsu, sundlaug, gufubaði,
veitingastað og síðast en ekki síst
loftkælingu og heitri sturtu. Það er
ekki að ástæðulausu sem íslensku
nemarnir búa við svona fínar
aðstæður en þau hafa orðið vitni að
barsmíðum og stunguhótunum.
Næstu dagar fóru í afslöppun og
menningarlegar skoðunarferðir um
Kuala Lumpur í fylgd með
skötuhjúunum. við kíktum að
sjálfsögðu á helstu kennileiti
borgarinnar, tvíburaturnana sem
Catherine Zeta jones og sean
Connery klöngruðust á í entrap-
ment, og hinn himinháa tv tower.
Það vakti athygli okkar að dag
nokkurn voru fjölfarnar götur
hverfisins nánast tómar og allar
búðir lokaðar. Ástæðan var
deepavali sem segja má að séu
jólin hjá indverjum. Komu jólanna
var fagnað með háværum
heimatilbúnum rörsprengjum og
flugeldum sem héldu fyrir okkur
vöku.
Í malasíu er mjög blönduð
menning. enska er mikið töluð því
malasíubúar, Kínverjar og indverjar
ganga hverjir í sinn skólann og læra
mismunandi tungumál og tala því
flestir saman á ensku. öll samskipti
voru því töluvert auðveldari hér en í
taívan og taílandi.
Sólveig og Bryndís skrifa frá
malasíu:
Bjart fram undan
Íslenskir fjallaleiðsögumenn í
samstarfi við 66° Norður bjóða
upp á skemmtilega göngu-
dagskrá í skammdeginu.
miðvikudagur 12. nóv. kl. 20.00
Fræðslufundur í húsnæði 66° Norður í
Faxafeni.
laugardagur 15. nóv. kl. 17.30
vífilsfell. Hist við 66° Norður í Faxafeni.
miðvikudagur 19. nóv. kl. 17.30
Haukafjöll, stardalshnúkar, tröllafoss. Hist
við 66° Norður í Faxafeni
miðvikudagur 26. nóv. kl. 17.30 –
Heiðmörk, búrfellsgjá. Hist við 66°NorÐ-
ur Faxafeni
laugardagur 6. des. kl. 09.00
esja, Þverfellshorn. Hist við 66°NorÐur í
Faxafeni.
miðvikudagur 10. des. kl. 17.30
Húsfell og Helgafell. Hist við 66° Norður í
Faxafeni.
miðvikudagur 17. des. kl. 17.30
Kerlingarskarð, Þríhnúkar og stóra
Kóngsfell. Hist við 66° Norður í Faxafeni
laugardagur 27. des. kl. 08.00
Hafnarfjall. Hist í húsnæði ÍFLm á
vagnhöfða 7.
miðvikudagur 7. jan. kl. 17.30
umhverfis Kleifarvatn. Hist við 66° Norður í
Faxafeni.
laugardagur 17. jan. kl. 08.00 –
botnssúlur. Hist í húsnæði ÍFLm á
vagnhöfða 7.