Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Qupperneq 48
Föstudagur 7. Nóvember 200848 Helgarblað DV
Sakamál
Tvær lesbíur - eiTT lík
valerie og Jessica kysstust af ástríðu. Á gólfinu lá stacey
mitchell, sextán ára ensk stúlka sem nýlega hafði gerst sam-
leigjandi þeirra í Perth í Ástralíu. Hún var í dauðateygjunum.
Í tæpan klukkutíma var hægt að heyra dauðahryglurnar í
stacey og valerie og Jessica voru á valdi lostans.
var stacey fórnarlamb ofbeldis, hafði valerie framið óhugnanleg-
an verknað til að færa sönnur á ást sína í garð Jessicu? Hver sem ástæðan var
nutu lesbíurnar ásta á meðan líf stacey fjaraði út.
Lesið um lesbíur á valdi lostans í næsta helgarblaði dv.umsJóN: KoLbeiNN ÞorsteiNssoN kolbeinn@dv.is
Illskan holdI klædd
Afbrýðisemi getur leitt til geggjunar. Sú varð raunin hjá Dinu rodrigues, ungri suðurafrískri konu sem
var vön að fá það sem hún vildi. Hún vildi ekki að Neil Wilson, heitmaður hennar, ætti fortíð, og að fortíðin
væri í barnsmynd. Því ákvað Dina að þurrka út fortíð Neils á hvern þann máta sem mögulegt væri. Fyrir
vikið var sex mánaða stúlka stungin í hálsin og henni látið blæða út.
Neil Wilson var hvítur, millistéttar-
maður í Höfðaborg í Suður-Afríku.
Hann hafði notið forréttinda, var í
þokkalegum efnum, myndarlegur
og eftirsóttur af kvenfólki. En það
var ekki fyrr en hann hitti Dinu Ro-
driques að hann sannfærðist um
að hann hefði hitt þá einu réttu
og léttúðardögum hans væri lok-
ið. Dina Rodrigues hafði til að bera
allt það sem prýtt gat lífsförunaut
að hans mati. Hún var dökkhærð.
þokkafull og ástúðleg.
Dina Rodrigues féll einnig mar-
flöt fyrir Neil og taldi sig himin
höndum hafa tekið. Hún hafði alist
upp við dekur og þrátt fyrir skynjun
Neils á henni hafði hún aldrei dýft
hendi í kalt vatn; til þess voru þjón-
ar. Hún sá fyrir sér að þau myndu
giftast fljótlega og eignast börn og
þegar Neil bar upp bónorðið eitt
sinn þegar þau voru í fríi fannst
henni að lífið gæti ekki orðið full-
komnara.
reiðarslagið
Hugur Dinu var fullur af áætlun-
um þegar þau óku heim til Höfða-
borgar að fríinu loknu, en þá kom
reiðarslagið. Vinkona hennar sagði
henni að Neil ætti stúlkubarn með
annarri konu. Dina spurði Neil um
barnið og hann viðurkenndi fús-
lega að hann ætti dóttur með fyrr-
verandi kærustu sinni, Natöshu
Norton, en dóttirin hefði enga þýð-
ingu fyrir hann. Hann hefði sam-
þykkt að borga meðlag en að öðru
leyti kæmi hún honum ekki við.
Dina ákvað að láta þar við sitja,
en þrátt fyrir að reyna að hugsa ekki
um dóttur Neils varð hún smám
saman í heljargreipum afbrýði-
semi. Að hennar mati hvíldi skuggi
fortíðar Neils yfir því sem hún hafði
ætlað að yrði björt framtíð.
Svo djúpt risti afbrýðisemin að
í eitt sinn þegar hún hugðist hitta
vinkonur sínar á Cosomo-veitinga-
staðnum sendi hún þeim öllum
sms-skilaboð með þeim fyrirmæl-
um að Natasha Norton skyldi ekki
nefnd á nafn það kvöld. Það gekk
eftir og síðar um kvöldið fluttu vin-
konurnar sig um set og fóru á Cu-
bana-næturklúbbinn.
Þar sem þær sátu þar kom Nata-
sha Norton gangandi inn með vin-
um sínum. Dina varð náföl í fram-
an og að endingu hljóp hún út úr
klúbbnum og runnu tárin í stríðum
straumum niður kinnar hennar.
sex mánaða stúlka myrt
Níu dögum síðar fékk Neil þær
hörmulegu fréttir að Jordan, sex
mánaða dóttir hans, hefði verið myrt.
Hún hafði verið stungin í hálsinn.
Þrátt fyrir að í fyrstu hefði verið álit-
ið að um innbrot hefði verið að ræða,
fékk lögreglan fljótlega efasemd-
ir. Ódæðismennirnir, fjórir blökku-
menn, höfðu borið árituð merki frá
sendlaþjónustu, og höfðu ekki haft
margt eða merkilegt á brott með sér.
Barnfóstra Jordan sagði lögregl-
unni hvernig mennirnir höfðu bund-
ið hana og síðan hefði einn þeirra
haldið barninu niðri og stungið það.
Hún sagðist hafa heyrt stúlkuna
kveina líkt og sært dýr. Jordan var síð-
an skilin eftir í rúmi sínu og blæddi
út, en morðinginn og kumpánar hans
höfðu sig á brott. Barnfóstran sagði
að engu líkara hefði verið en menn-
irnir vissu að barnið væri þarna og
þeir hefðu leitað að því.
Innbrot eru ekki óalgeng í Suð-
ur-Afríku en óalgengt að brotist sé
inn og lítið sem ekkert verðmætra
hluta sé tekið. Og af hverju breyttist
afhending bögguls í innbrot? Nat-
asha Norton sagðist ekki hafa átt
von á neinni sendingu, en kvöld-
ið áður hefði kona hringt í hana og
sagt að hún ætti von á sendingu.
Lögreglan rakti það símtal til Dinu
Rodrigues.
eitt morð á 120.000 krónur
Neil Wilson og Dina Rodrigu-
es voru sett í varðhald. Neil neit-
aði nokkurri vitneskju um morðið,
en viðurkenndi að Dina hefði ver-
ið afbrýðisöm vegna dóttur hans.
En Neil sagðist elska Dinu og efað-
ist um að hún væri fær um svona
verknað. Sönnunargögn gegn Dinu
hlóðust upp. Hún hafði skrifað af-
hendingarseðilinn sem mennirn-
ir höfðu notað til að fá inngöngu á
heimili Natöshu. Eftir að lögregl-
an hafði yfirheyrt Dinu fylgdist hún
með ferðum hennar og þá kom í
ljós að hún hitti fjóra karlmenn á
bar í Boys Town, niðurníddu hverfi í
Höfðaborg, og afhenti þeim umslag.
Lögreglunni var til efs að hvít stúlka
væri fastagestur á viðlíka bar.
Ekki leið á löngu áður en búið
var að handtaka Sipho Mfazwe,
leigubílstjóra sem einnig rak fyrr-
nefndan bar. Hann játaði fljótlega
aðild að morðinu og gaf upp nöfn
samverkamanna sinna. Mfaza-
we sagði að „falleg, hvít“ kona
hefði boðið honum 10.000 Rand,
um 120.000 krónur, fyrir verkið og
greitt 5.000 strax og afganginn átti
að greiða að verki loknu. Upphæð-
in er rúmlega helmingur venju-
legra meðallauna í Suður-Afríku.
Dina Rodrigues og karlmenn-
irnir fjórir voru handtekin.
„Hataðasta kona landsins“
Fjölmiðlar kölluðu Dinu „höt-
uðustu konu landsins“ og sögðu
hana hafa nýtt forréttindi sín og
fjármagn til að leigja fjóra févana
menn til viðurstyggilegs glæps.
Möguleikar Dinu við réttarhöldin
voru ekki miklir. Fingraför henn-
ar fundust á afhendingarseðlin-
um. Neil Wilson bar að Dina hefði
hringt í hann daginn sem dóttir
hans var myrt og sagt honum að
dóttirin væri dauð, að hún „hefði
greitt 10.000 Rand svo hún hætti að
vera til“. Neil sagði að vegna áfalls-
ins sem hann varð fyrir hefði hann
haldið þessu leyndu fyrir lögregl-
unni í fjóra daga. Hann sagði einn-
ig að eftir að lögreglan sleppti þeim
eftir fyrstu yfirheyrsluna hefði Dina
brotnað saman fyrir utan lögreglu-
stöðina og sagt: „Ó Guð minn góð-
ur, hvað hef ég gert? Ég fer í fang-
elsi?“
Vitnisburður fjórmenninganna
og sönnunargögn nægðu kviðdómi
til að sakfella þá og Dinu. Þegar
dómarinn las Dinu dóminn sagði
hann að hún væri „illskan holdi
klædd“ og „leikbrúðustjórnandi“
sem hefði skipulagt og framkvæmt
þennan viðbjóðslega glæp. „Þetta
var eins og að fara í stórmarkað
og leggja inn pöntun á eitt morð,“
sagði dómarinn.
Sipho Mfazawe, sem réð sam-
verkamennina, og Mongezi Bo-
botyane, sem framdi morðið fengu
lífstíðardóm, hinir tveir fengu
fimmtán ár. Dina Rodrigues hafði
haft rétt fyrir sér fyrir utan lög-
reglustöðina. Hún fór í fangelsi til
lífstíðar.
Barnfóstra Jordan
sagði lögreglunni
hvernig mennirnir
höfðu bundið hana og
síðan hefði einn þeirra
haldið barninu niðri og
stungið það. Hún sagð-
ist hafa heyrt stúlkuna
kveina líkt og sært dýr.
Dina rodrigues Þoldi ekki að
heitmaður hennar ætti fortíð.
Neil Wilson og Natasha Norton
Foreldrar Jordan yfirgefa réttarsalinn
að réttarhöldum loknum.
Jordan sex mánaða gömul varð hún
fórnarlamb afbrýðisemi dinu
rodrigues.