Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2008, Blaðsíða 54
Föstudagur 7. Nóvember 200854 Tíska
Partí í
Gyllta
Verslunin Gyllti kötturinn í Aust-
urstræti hefur svo sannarlega sett
sinn svip á tískulíf borgarinnar
síðastliðin ár
en verslun-
in fagnar um
þessar mundir
þriggja ára
afmæli. Af því
tilefni verður
haldið hörk-
upartí í versl-
uninni á laug-
ardaginn milli klukkan ellefu og
fimm. Léttar veigar verða í boði
fyrir gesti og gangandi og ýmsar
skemmtilegar uppákomur. Með-
al annars mun hljómsveitin Jeff
Who? spila í versluninni klukkan
þrjú, hárgreiðslukonan Tinna á
Mojo verður á staðnum og fléttar
þær dömur sem þess óska og ljós-
myndarar Reykjavík looks verða á
staðnum og mynda stemninguna.
Ekki má svo gleyma því að allar
vörur verða með tíu til þrjátíu
prósenta afslætti.
FíGúra á
lauGa-
veGinum
Verslunin Fígúra sem áður var til
húsa á Skólavörðustígnum hefur
nú opnað svokallaða Pop-up
store á Laugavegi 40 en verslun-
in mun eingöngu vera opin í
nóvember og desember. Versl-
unin selur meðal annars vörur
frá American Apparel, danska
hönnuðinum Bibi Chemnitz og
íslenska hönnun. Í versluninni
verður hægt að sérpanta merk-
ingar á fatnað með óskaprenti
kúnnans og verður hægt að fá
hvaða mynd sem er prentaða á
boli, kjóla, peysur eða jafnvel
rúmföt á meðan beðið er.
Tilvalin gjöf í jólastressinu fyrir
þann sem á allt.
Fatamark-
aður Svölu
oG DraFnar
Slúðurbloggarinn Dröfn Ösp
Snorradóttir, betur þekkt sem
DD unit, og söngkonan Svala
Björgvinsdóttir ætla að halda
glæsilegan fata- og skómarkað
laugardaginn 8. nóvember á efri
hæð Laugavegs 21. Geggjaðir
pallíettukjólar, vintage-háhælað-
ir skór og pelsar eru meðal þess
sem tískudrottningarnar ætla
að selja á góðu verði. Báðar hafa
þær Svala og Dröfn verið iðnar
við að kaupa fatnað í gegnum
heimasíðuna ebay og ætti því að
vera hægt að finna margt spenn-
andi í fatahrúgum stúlknanna.
Ókeypis förðunarkennsla Í nóvember ætlar
make up store að bjóða upp á ókeypis förðunarnám-
skeið. Námskeiðin hafa þótt mjög skemmtileg og lær-
dómsrík og tilvalin fyrir konur á öllum aldri til að læra,
sjá nýjar aðferðir, nýja tískustrauma og fá innblástur.
20% afsláttur er veittur af öllum vörum ef um hópa
er að ræða en hvert námskeið er ætlað 8 - 10 konum.
Það eina sem þú þarft að gera er að hringja og skrá
þig. Fyrstir koma fyrstir fá.
Rokkaradressið
á djamminu
skjöldur eyfjörð hárgreiðslumaður, fatahönnuður, stílisti, listamaður og nú síðast
söngvari á í miklum erfiðleikum með að kaupa sér föt á Íslandi og er duglegur að búa sér
sjálfur til fatnað sem hann fílar. Hönnun Skjaldar er til sölu á hárgreiðslustofunni hans,
101 Skildi í Pósthússtræti.
KúrekadressiðHversdags-
dressið
skyrta: Zara
Bindi: Keypt í New York
peysa: Hönnuð af skildi sjálfum
Buxur: Levi‘s
skÓr: Kós
„Ég tek rosalega oft föt og breyti þeim og
bý til eitthvað sem mig langar í. Ég á
rosalega erfitt með að kaupa mér föt á
Íslandi. Það er ekkert hérna nema Jack &
Jones fyrir stráka og allir í því sama. Þessir
skór eru ástin í lífi mínu, ég gjörsamlega
elska þá.“
Hvíti riddarinn
Jakki: gK
Bolir: 101 skjöldur
Buxur: Keyptar í New York
HettuJakki: 101 skjöldur
skÓr: Kós
„Ég færi aldrei í jakkafötum á djammið. ekki
nema þá bara ef ég væri í pilsi við eða
einhverju allt öðru en hefðbundnum
jakkafötum. einu skiptin sem ég í rauninni
fæst til að fara í jakkaföt er ef ég neyðist til
að fara í jarðarför.“
skyrta: 101 skjöldur
Bolur: Keyptur í New York
Vesti: Fékk það lánað hjá selmu ragnars
Buxur: Levi‘s
skÓr: Keyptir í London
„Ég klæði mig eingöngu eftir skapi. Það er
ofboðslega misjafnt hvort mig langar bara
að vera í einhverju ofboðslega þægilegu og
kósí eða einhverju töffaralegu og öðruvísi.
vegna vinnunnar á ég orðið alveg rosalega
mikið af svörtum fötum en áður en ég
byrjaði í hárgreiðslunni átti ég nánast enga
svarta flík.“
skyrta: Hjálpræðisherinn í danmörku
Belti: 101 skjöldur
Buxur: Levi‘s
„Ég er ennþá brjálað Levi‘s-fan. Þegar ég var
unglingur tók ég ástfóstri við Levi‘s og hef
nánast bara gengið í Levi‘s-buxum síðan. Ég
kaupi þær mikið erlendis en vegna
vinnunnar þarf ég oft að fara til útlanda og
þá kaupi ég mér alltaf mikið af fötum.“
tíska
Umsjón: Krista Hall Netfang: krista@dv.is
Mynd GunniGunn
Aldrei í
jAkkAfötum Mynd GunniGunn
Mynd GunniGunnMynd GunniGunn