Fréttablaðið - 21.01.2016, Síða 16

Fréttablaðið - 21.01.2016, Síða 16
Í gær lækkaði Royal Dutch Shell afkomuspá sína um 300 millj- ónir dollara, jafnvirði 39 milljarða íslenskra króna. Olíufélagið á von á 1,6 milljarða dollara hagnaði, jafnvirði rúmlega 200 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórð- ungi 2015. Ef spáin gengur eftir mun fyrirtækið hagnast um rúm- lega helmingi minna en á fjórða ársfjórðungi 2014. Shell áætlar að tekjur ársins muni nema 10,4 til 10,7 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði 1.350- 1.390 milljarða íslenskra króna, sem er undir áætlun. Í kjölfar tilkynningarinnar féllu hlutabréf í Shell um 3,7 prósent í morgunviðskiptum í gær. Í kjöl- farið lækkaði hlutabréfavísitalan FTSE 100 í Bretlandi um 3,13 pró- sent í og mældist þá 5.692 stig í gærmorgun. Hún hefur ekki mælst lægri í þrjú ár. Tilkynnt var í apríl í fyrra að til stæði að Shell tæki yfir gas- fyrirtækið BG Group. Í næstu viku hittast hluthafar til að kjósa um yfirtökuna. Þegar tilkynnt var um yfirtökuna var hrávöruverð á olíu 55 dollarar á tunnu en er nú í kringum 28 dollara. Því er óvíst hvað verður. – sg Shell býst við verri afkomu Mercedes-Benz SL600 bifreið þakin Swarovski-kristöllum var til sýnis á Tokyo Auto Salon 2016 bílasýningunni í Japan um helgina. Sýningin er ein stærsta bílasýning í heimi þar sem fjölmargar sérhannaðar bifreiðar eru til sýnis. fréttablaðið/afp Glansandi glæsikerrur Ákvæði var í samningi um sölu Landsbankans á 38 prósenta hlut í Valitor til Arion banka í desember 2014 um að ef af kaupum Visa Inc. á Visa Europe yrði myndi Lands- bankinn fá þær greiðslur í sinn hlut. Sambærilegt ákvæði var ekki í sölusamningi Landsbankans, sem er í eigu ríkisins, á 31 prósents hlut í Borgun til hóps fjárfesta og stjórn- enda fyrirtækisins á 2,2 milljarða króna í lok nóvember 2014. Hvorug salan fór fram í gegnum opið útboð. Búist er við að íslensku korta- fyrirtækin fái milljarða í sinn hlut vegna væntanlegrar sölu Visa Inc. á Visa Europe. Söluandvirði nemur 21,2 milljörðum evra, jafnvirði 3.000 milljarða íslenskra króna. Ekki liggur enn fyrir hve mikið hvert kortafyrir- tæki fær greitt en upphæðin verður í hlutfalli við umsvif þeirra í Evrópu. „Maður getur alltaf verið vitur eftir á en við teljum að við höfum gætt okkar hagsmuna ágætlega í þessu máli, það er að segja að hagsmunir okkar vegna yfirtöku á Visa Europe séu ágætlega tryggðir,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Steinþór segir að samkvæmt upp- lýsingum bankans sé megnið af upphæðinni sem mun falla Borgun í skaut vegna sölunnar á Visa Europe, tilkomið vegna vaxtar Visa-við- skipta Borgunar á erlendri grundu eftir að Landsbankinn seldi hlut sinn í fyrirtækinu. Tekið hafi verið mið af áformum Borgunar um vöxt á erlendri grundu þegar fyrirtækið var selt. „Var meira verðmæti í hluta- bréfum Borgunar? Kannski. Höfðum við þessar upplýsingar 2014? Nei. Hvað höfum við gert við peninginn? Við höfum ávaxtað hann ágætlega,“ segir Steinþór. Landsbankinn hafi einnig haft takmarkað aðgengi að upplýsingum um Borgun vegna sáttar við Sam- keppniseftirlitið. Landsbankinn hafi til að mynda ekki mátt vera með stjórnarmann í fyrirtækinu. Þá hafi verið hætta á að vöxtur Borg- unar erlendis hefði endað illa. „Útrás íslenskra fjármálafyrirtækja er í eðli sínu mjög áhættusöm,“ segir Stein- þór. Hann bendir einnig á að helsta ástæðan fyrir sölu á hlutum í Valitor og Borgun hafi verið þrýstingur frá Samkeppniseftirlitinu um að ekki mætti fleiri en einn banki vera eig- andi að sama kortafyrirtækinu. Steinþór bendir einnig á að ekki hafi legið fyrir árið 2014 hvort eða hvenær af sölu Visa Inc. á Visa Europe yrði. „Við töldum að það gætu hugsanlega orðið háar fjár- hæðir,“ segir Steinþór. Hins vegar komi á óvart hve háar upphæðir líti út fyrir að bankinn muni fá vegna sölunnar. ingvar@frettabladid.is Tryggðu sig fyrir Visa samningi við sölu á Valitor en ekki Borgun Landsbankinn seldi Arion banka hlut í Valitor með ákvæði um að bankinn fengi greitt ef Visa Inc. seldi Visa Europe. Sambærilegt ákvæði var ekki gert við söluna á Borgun. Bankastjóri Landsbankans segir að tekið hafi verið mið af væntum vexti Borgunar við söluna en upphæðirnar hafi komið á óvart. landsbankinn seldi 31 prósents hlut í borgun í nóvember 2014. bankastjóri lands- bankans segir að tekið hafi verið mið af áformum borgunar um vöxt þegar samið var um kaupverð. fréttablaðið/ernir Maður getur alltaf verið vitur eftir á en við teljum að við höfum gætt okkar hagsmuna ágætlega í þessu máli. Steinþór Pálsson, bankastjóri Lands- bankans royal Dutch Shell lækkaði afkomuspá sína fyrir fjórða ársfjórðung 2015 um 39 milljarða íslenskra króna. fréttablaðið/Getty Páll Harðarson, forstjóri Kauphall- arinnar, vill að bankarnir verði að fullu einkavæddir. Hann vill ekki að ríkið eigi neinn hlut í bönkun- um. Þetta sagði hann á fundi félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga um einkavæðingu bankanna, sem fór fram í gær. „Aðkoma ríkisins að rekstri eins banka hefur verið rökstudd á grunni samfélagslegs ávinnings, einkum til að tryggja samkeppni á bankamarkaði. En reynslan af ríkisrekstri banka gefur ekki til- efni til bjartsýni að þessu leyti. Þótt meiningin geti verið góð býður þetta fyrirkomulag hættunni á pólitískri spillingu heim þegar til lengdar lætur,“ segir Páll. Páll telur ótrúverðuga stefnu að ríkið sé í stórum hluta bankakerfis- ins og efast um að það tryggi góða starfshætti. „Ekkert Evrópuríki hefur markað þessa stefnu. Öll ríki Evrópu sem fengu banka í fangið í kjölfarið á fjármálakreppunni eru byrjuð að selja eignarhluti sína.“ Þá hafi bankar og starfsumhverfi þeirra gerbreyst á undanförnum árum. „Hertar reglur í kringum bankastarfsemi sem mótaðar hafa verið á alþjóðavettvangi miða að því að draga úr áhættusækni og tryggja heilbrigða og trausta bankastarfsemi. Ég tel því skyn- samlegt að losa um ríkiseign í hóflegum skrefum með það að markmiði að ríkið verði í mesta lagi minnihlutaeigandi í einum banka.“ – sg, ih Kaup hallar stjóri vill bankana að fullu úr ríkiseigu páll Harðarson telur það ekki lík- legt til árangurs að ríkið eigi banka. Viðskipti 2 1 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r16 F r é T T I r ∙ F r é T T a B L a ð I ð 2 0 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 3 9 -3 A E 0 1 8 3 9 -3 9 A 4 1 8 3 9 -3 8 6 8 1 8 3 9 -3 7 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.