Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2016, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 21.01.2016, Qupperneq 28
Þurr húð í andliti er einn af fylgi- fiskum vetrarveðursins. Andlitið er oftast berskjaldað fyrir veðri og vindum. Yfir veturinn ætti að forðast hreinsivörur sem innihalda alkóhól þar sem þau þurrka húð- ina. Nota ætti mildari hreinsivör- ur yfir veturinn og meira rakagef- andi krem en venjulega yfir hlýrri mánuði. Til að breyta aðeins til við morgunrútínuna mætti hreinsa andlitið með grískri jógúrt einu sinni í viku. Það hljómar kannski furðulega en mjólkursýran í jóg- úrtinni virkar eins og mildur skrúbbur á efsta lag húðarinnar og leysir upp dauðar húðfrumur. Hún er sögð gagnast vel gegn bólum og minnka fínar línur. Þá er jafnvel mælt með að stappa nokkur bláber saman við jógúrtina en þau inni- halda C- og E-vítamín sem þykja hafa góð áhrif á húðina. Haframjöl er einnig gott út í jógúrtina til að búa til grófari skrúbb. Jógúrtmaski með hunangi 1 msk. af fínu haframjöli 1 msk. af grískri jógúrt 1 tsk. af hunangi Hrærið saman og berið á hreint andlitið. Látið bíða á húðinni í 15 til 20 mínútur, nuddið þá maskanum létt með hringlaga strokum áður en hann er hreinsaður af með volgu vatni. Berið rakakrem á andlitið eftir hreinsun. Jógúrt á andlitið Prófið að hreinsa andlitið með grískri jógúrt einu sinni í viku. Þrátt fyrir að Grace ætli að stíga til hliðar mun hún taka að sér ákveðin verkefni fyrir blaðið, að minnsta kosti fjórar ritstjórnar- greinar á ári. Þá mun hún hafa skrifstofu til afnota á Vogue-skrif- stofunni í One World Trade Center. Þess utan mun hún vinna að því að koma nýju ilmvatni á markað í samstarfi við Comme des Garçons. Grace er einn þekktasti tísku- blaðamaður heims. „Mér þykir einstaklega vænt um Vogue, tíma- ritið hefur verið stór partur af lífi mínu lengi,“ segir Grace. „Blað- ið uppgötvaði mig sem fyrirsætu þegar ég var 19 ára. Vogue hefur opnað margar dyr fyrir mig. Ég er samt ekki að setjast í helgan stein,“ segir þessa dugmikla kona. Grace Coddington sem er frá Wales á Englandi hóf feril sinn hjá breska Vogue. Eftir 19 ár þar flutti hún til New York til að starfa fyrir Calvin Klein. Fljótlega gerð- ist hún listrænn stjórnandi hjá bandarísku útgáfu Vogue. Ritstjóri blaðsins, Anna Wintour, og Grace hafa starfað saman frá árinu 1988 með góðum árangri. Grace hafði ekki mikinn áhuga á viðskiptahlið fyrirtækisins og Litrík persóna stígur tiL hLiðar Tilkynnt var í gær að Grace Coddington, listrænn stjórnandi ameríska tískutímaritsins Vogue, væri að stíga til hliðar. Grace hefur starfað hjá Vogue í 28 ár og hefur átt glæstan feril. Grace er 74 ára. Grace Coddington er litrík kona og sterkur persónuleiki sem tískuheimurinn hefur dáð. Grace Coddington, Penelope Cruz leikkona og Anna Wintour ritstjóri saman á tískusýningu í New York. Tímaritið hefur verið stórt partur af mér lengi og hefur opnað margar dyr fyrir mig. tölvur eða tölvupóstur heilla hana ekki. Listræn sköpun er henni í blóð borin og hún hefur mark- að stórt spor í tískuheiminum. Sjálf er hún litríkur persónuleiki og vekur athygli hvar sem hún kemur. Grace er sú ein af fáum sem hefur þorað að standa í hárinu á Önnu Wintour. 4 Fólk 21. janúar 2015tíska 2 0 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 3 9 -6 C 4 0 1 8 3 9 -6 B 0 4 1 8 3 9 -6 9 C 8 1 8 3 9 -6 8 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.