Fréttablaðið - 21.01.2016, Side 42

Fréttablaðið - 21.01.2016, Side 42
Fangaðu augnablikið með Símanum Síminn er stoltur styrktaraðili Reykjavik International Games Upplifðu Reykjavík International Games með Símanum, fangaðu öll ótrúlegu augnablikin og deildu þeim jafnóðum. Á m.rig.is finnurðu dagskrá leikanna, myndastraum, fréttir og allar upplýsingar. #RIG16 SiminnIsland — Er stoltur samstarfsaðili — Fótbolti Geir Þorsteinsson og stjórn KSÍ hafa ákveðið að kjósa Gianni Infantino í forsetakjöri Alþjóða­ knattspyrnusambandsins, FIFA, þann 26. febrúar. Þetta staðfesti Geir í samtali við Fréttablaðið í gær. „Við þekkjum mjög vel til starfa hans sem framkvæmdastjóra UEFA [Knattspyrnusambands Evrópu],“ segir Geir en því starfi hefur Infant­ ino gegnt síðan 2009. „Hann nýtur mikillar virðingar innan UEFA.” Geir segir að ákvörðunin hafi í raun verið auðveld. „Hann er sá maður sem stendur okkur næst og er að okkar viti mjög góður maður. Við þurftum ekki miklar sannfæringar.“ Fimm eru í framboði en Infantino er annar tveggja Evrópumanna og sá eini sem er nú starfandi í UEFA. Hann ákvað að bjóða sig fram eftir að Michel Platini, sem enn er forseti UEFA, var dæmdur í bann.” Miklir hagsmunir fyrir Evrópu Geir segir mikilvægt að staðinn verði vörður um sjónarmið knatt­ spyrnusambanda í Evrópu innan FIFA og að það sér stærsta ástæðan fyrir stuðningnum við Infantino. „Það er auðvitað mikilvægt og jákvætt að knattspyrnan verði áfram þróuð um allan heim en það eru hins vegar miklir hagsmunir í húfi fyrir Evrópuþjóðirnar,“ segir Geir sem hefur hitt alla fimm frambjóð­ KSÍ styður Infantino Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, styður Gianni Infantino í framboði hans til forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA. Hann segir bannið á Michel Platini mikið áfall fyrir knattspyrnuna í Evrópu. endurna að máli. „Ég hef kynnt mér stefnuskrá hans og þau málefni sem hann stendur fyrir hugnast okkur vel,“ segir Geir enn fremur. Vill fjölga liðum á HM Meðal þess sem mikið hefur verið rætt um er framtíð heimsmeistara­ keppninnar. Infantino hefur sagt að hann vilji fjölga liðum í lokakeppni HM úr 32 þjóðum í 40. „Það er mik­ ill þrýstingur um að fjölga liðum á HM til að fleiri lið komist að. Það var sami þrýstingur á UEFA áður en liðum á EM var fjölgað [úr 16 í 24],“ segir Geir. Hann segir að þessi þrýstingur snúist ekki síst um að koma fleiri liðum frá öðrum heimsálfum en Evr­ ópu að á HM. Það sé nú þegar vilji að koma fleiri liðum að á kostnað Evr­ ópuþjóða, sem í dag eiga 13 fulltrúa í hverri heimsmeistarakeppni. „Evrópa vill ekki sjá eftir þessum sætum á HM enda sýnir lokastaðan á HM hverju sinni að Evrópa á fullan rétt á þeim,“ segir Geir en lausn Infantino er að fjölga liðum á HM til að sætta öll sjónarmið. Evrópa fengi samkvæmt hans áætlunum fjórtán sæti á 40 liða HM. „Það þarf líka að huga að keppn­ inni sjálfri enda risastór viðburður sem nýtur gríðarlegra vinsælda. Þetta myndi öruggleg auka tekjur FIFA af keppninni. Að sama skapi má ekki gleyma að á hinum end­ anum eru félögin sem líta ekki á það sem jákvætt að HM lengist og stækki,“ segir Geir. Bann Platini áfall Michel Platini var ásamt Sepp Blatt­ er, fráfarandi forseta FIFA, dæmdur í átta ára bann frá afskiptum af knatt­ spyrnu vegna greiðslu sem FIFA greiddi Platini árið 2011. Það var að sögn þeirra fyrir störf sem Platini vann fyrir FIFA og Blatter frá 1999 og 2002 en hins vegar eru engin gögn til sem styðja það. Geir segir að það hafi verið mikið áfall að sú mikla umræða um spill­ ingu innan FIFA sem verið hefur undanfarin ár hafi teygt anga sína inn í UEFA og alla leið til forseta sambandsins. „Það var mikið áfall að sjá hversu víðtæk spillingin var í FIFA. Við á Norðurlöndunum höfum rætt um hversu stórtækt vandamál væri í löndum Suður­ og Mið­Ameríku eins og komið hefur í ljós,“ segir Geir sem vill ekki meta hvort dómurinn sem Platini fékk hafi verið réttlátur. „Við fengum kynningu á þessum munnlega samningi. Eitt er að það sé til munnlegur samningur og svo annað mál að það hafi ekki verið upplýst um greiðsluna þegar hún var loks innt af hendi,“ bætir hann við. Hann óttast ekki að Infantino sé smitaður af þeirri umræðu sem verið hefur um spillingu innan forystu­ menn knattspyrnuhreyfingarinnar. „Ég trúi því að þar fari stálheiðar­ legur maður og við höfum ekki ástæðu til að ætla neitt annað. Hann er einn reyndasti og færasti stjórn­ andinn í knattspyrnuheiminum – er inni í öllum málum og ótrúlega klókur.“ eirikur@frettabladid.isGianni Infantino er þekkt andlit í evrópsku knattspyrnuhreyfingunni. AFP Hann er einn reyndasti og færasti stjórnandinn í knattspyrnu- heiminum – er inni í öllum málum og ótrúlega klókur. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ 2 1 . j a n ú a r 2 0 1 6 F i M M t U D a G U r26 s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 2 0 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 3 9 -8 0 0 0 1 8 3 9 -7 E C 4 1 8 3 9 -7 D 8 8 1 8 3 9 -7 C 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.