Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.01.2016, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 21.01.2016, Qupperneq 56
l Morgunmatur í rúmið. l Splæsa í blómvönd. l Út að borða (má vera Bæjarins bestu, skiptir ekki öllu) l Fara í rómantískan göngutúr um nærumhverfið. Getur kallað þetta óvissuferð í tilefni dagsins. l Bjóða honum í bíó. l Skella kippu af uppáhaldsdrykknum hans í kæli og kalla það bara gott. l Draga fyrir gluggana, slökkva á símanum og skella uppáhaldsmyndinni hans í tækið (þó þér finnist hún leiðinleg). l Þorrabakki hentar vel fyrir þá þjóðræknu. l Fara með hann í keilu, og rúlla honum upp. Eða grúttapa. Fer eftir týpunni. l Draga fram spilastokkinn og bjóða honum í spil. Fatapóker gæti heillað einhverja. Bóndadagurinn er iðulega haldinn hátíð- legur hér á landi, en hann markar upphaf þorra, líkt og konudagur markar upphaf góu, í gamla norræna tímatalinu. Þykir mörgum dagurinn til þess fallinn að makar dekri við húsbóndann, sem getur verið ansi teygjan- legt hugtak þennan dag. Fréttablaðið fór á stúfana, degi áður, til að forða sem flestum frá svæsnu svekkelsi. „Eftir að vera hressilega minnt á bóndadaginn af blaðamanni rétt í þessu held ég að ég fari og finni ein- hverja geggjaða uppskrift og eldi fyrir kærastann,“ svarar Greta Sal- óme, söngkona og fiðlusnillingur,  og hlær. „Við erum bæði svo ótrúlega önnum kafin og hittumst lítið yfir vikuna þannig að ég held að samveran sé langmikilvægust. „Ég hef annars alltaf staðið mig ágæt- lega í svona, en hann klikkar aldrei á neinu svona,“ útskýrir Greta, sem viðurkennir þó fúslega að þau séu ekki sérlega mikið bóndadags- eða Valentínusardagsfólk. „Við gerum alltaf eitt- hvað, en ég held að þegar maður lifir svona hröðu lífi þá læri maður að nota bara þann tíma sem gefst h v e r s d a g s l e g a í svona,“ bendir hún á. Greta segir kær- astann ekki svoleiðis að hann sé kröfuharður á dekrið á morgun, þó svo hún fái alltaf sitt dekur á þar til gerðum dögum. „Eins og staðan er núna eru fimmtíu prósent líkur á að við sjáumst,“ skýtur hún að, og er hreint ekkert að stressa sig á bónda- deginum. Fimmtíu prósent líkur á dekri „Ég fæ kannski kótelettur, mér finnst það gaman,“ segir Niels Thibaud Girerd, betur þekktur sem Nilli, aðspurður hverslags dekri hann eigi von á í tilefni bóndadags. „Annars á kærastan án efa eftir að gera eitthvað, hún er reyndar svo yndisleg að hún tjaldar oft ein- hverju til þó dagurinn heiti ekki neitt sér- stakt.“ Nilli mun eyða deg- inum í vinnunni, og fá þannig einhverju áork- að  í þágu samfélagsins að eigin sögn, en hann vinnur hjá Íslensku óperunni. Nilli segist reyndar oft gleyma bóndadeginum, og hafa því stundum skemmt sér best við að renna yfir dagskrána í lok dags og haft gaman af að sjá hvað hann hefði geta haft fyrir stafni. „Fyrir mér er bóndadagurinn samt hálfgert aukaatriði, konu- dagurinn er minn dagur. Þá tjalda ég öllu til, enda alinn upp af fjórum konum og svo á ég kærustu sem er kona. Ég er mjög hrifinn af konudegi.“ Hefði gaman af að fá kótelettur „Á hverjum bóndadegi fer ég á veitingastaðinn Friðrik fimmta, á sérstakan Friðriksdag sem þar er haldinn ár hvert,“ segir Friðrik Ómar Hjörleifsson. Þar eyðir hann kvöldstund með fjölmörgum öðrum bændum, en upp úr stendur samveran við Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmann. „Ég sit alltaf til borðs með honum, og þar er mín bóndadagsrómantík,“ bendir Friðrik Ómar á og hlær. Segir Friðrik Ómar Friðriksdaginn ómissandi á bóndadegi, og hafi hann mætt sam- viskusamlega í mörg ár. „Við höldum svo uppi dagskrá og Friðrik fer með gamanmál og svo er brugðið út af hefðbundnum matseðli, og það er alltaf uppselt á þetta.“ Friðrik Ómar segist hæstánægður með fyrirkomulagið enda sé Friðrik Þór í miklu uppáhaldi hjá honum. „Friðrik Þór er með skemmtilegri mönnum sem ég hitti, og ég veit að það er gagnkvæmt, hann elskar að hitta mig á þessum degi,“ út- skýrir hann og verður ekki fram hjá því litið að hann er orðinn spenntur. Óhjákvæmilegt er þó að spyrja um maka þeirra Friðriks Ómars og Frið- riks Þórs á þessum degi. „Þeir koma með, en maður sinnir þeim ekkert á þessum degi,“ segir hann að lokum og skellir upp úr. Dagurinn snýst um Friðrik „Ég er búin að bíða spennt eftir þessum degi, ég elska svona daga þar sem ég get planað eitthvað sniðugt og komið karlinum á óvart,“ segir dansarinn knái, Hanna Rún Bazev Óladóttir. Hún segir bóndadaginn skipta miklu máli á hennar heimili, en það hafi pabbi hennar kennt henni. „Morgunmat- ur í rúmið er eitthvað sem aldrei klikkar, og svo er ég í þann mund að plana eitthvað sætt sem ég ætla að gera fyrir hann. Ég mun nýta daginn í dag í það, en ég er svo sannarlega ákveðin í að gera eitthvað skemmti- legt fyrir hann,“ útskýrir Hanna, sem segir Nikita, eiginmanninn, alsælan með að fá íslenskan bóndadag í ofanálag við þann rússneska. „Hann er frá Rússlandi þar sem bónda- dagurinn er haldinn hátíðlegur 23. febrúar, hann fær því auðvitað tvo.“ Aðspurð hvort eitthvað hafi slegið meira í gegn en annað á undanförn- um bóndadögum hjá hjónakorn- unum segir Hanna Nikita sérlega hrifinn af fjárjóðsleit nokkurri sem hún hafi undirbúið fyrir hann. „Ég faldi lítinn pakka ofan í fjársjóðskistu sem hann varð svo að finna, með sérlegu fjársjóðskorti með vísbendingum á. Honum fannst það mjög skemmti- legt.“ Bóndadagur til fjársjóðsleitar Örvæntið ekki, bóndadagurinn er ekki fyrr en á morgun BuDDuvænn hugmynDalisti í janúarlok – Það er nóg að velja eitt atriði. „Ég get ekki sagt að mikið hafi verið um að vera á bóndadegi hjá mér hingað til. Kærastan segir reyndar að hún hafi eldað fyrir mig í fyrra, en ég man ekki eftir því,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, einn þríeykisins sem myndar StopWaitGo, og skellihlær. Aðspurður um hvort hann vonist til að morgundagurinn verði með öðru sniði og bresti þ a n n i g á með mikilli bóndadags- stemningu segist hann ekki endi- l e g a e i g a von á því. Þau séu í raun  meira Valentínusar- d a g s f ó l k .   „ Ég held hún geri þenn- an bóndadag ekki sérstaklega eftirminni- legan, en hún er í Kaupmanna- höfn,“ útskýrir Ásgeir og bætir við: „Ég gæti svo sem gert eitthvað á hennar kostnað, gert mér glaðan dag hérna heima og sent henni svo bara reikninginn.“ Sendir kærustunni reikninginn 2 1 . j a n ú a r 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r40 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð Lífið Guðrún Ansnes gudrun@frettabladid.is 2 0 -0 1 -2 0 1 6 2 2 :2 3 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 3 9 -7 B 1 0 1 8 3 9 -7 9 D 4 1 8 3 9 -7 8 9 8 1 8 3 9 -7 7 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.