Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Blaðsíða 8
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
4. Hreinar tekjur einstaklinga
Eftirfarandi tafla 5 sýnir endanlegar tölur
um hreinar tekjur einstaklinga samkvæmt
skattframtölum 1952 til 1954. Tölur fyrir 1954
eru þó að nokkru áætlaðar og geta breytzt
frá því, sem hér er.
Tafla 5. Hreinar tekjur einstaklinga samlcvæmt skattframtölam 1952—1954
í milljónum króna.
Samkvæmt skattframtölum hvers árs: 1952 1953 1954
Reykjavik 775 907 (1027)
Kaupstaðir 365 416 (492)
Sýslur 447 509 (561)
Alls Aukning frá fyrra ári, % 1587 1832 15.4 2080 13.5
Á verðlagi 1954:
Hreinar tekjur einstaklinga alls Aukning frá fvrra ári, % 1590 1851 16.4 2080 12.4
Taflan sýnir ljóslega, að um raunverulega
aukningu hreinna tekna hefur verið að ræða
bæði 1953 og 1954.
Þótt engar beinar upplýsingar liggi fyrir um,
hvernig þessari tekjuaukningu hefur verið
varið, má draga ýmsar ályktanir um það. Þrátt
fyrir aukinn innflutning neyzluvarnings og
aukna sölu landbúnaðarafurða hefur sparnaður
bersýnilega einnig aukizt á árunum 1953 og
1954. Spariinnlög í bönkum og sparisjóðum
jukust um 181 m. kr. 1953 og 185 m. kr. 1954
og er það um það bil tvisvar sinnum meiri
aukning hvort árið en verið hafði 1952. Þá er
það og tvímælalaust, að samtíma sparnaður
hefur að töluverðu leyti staðið undir hinum
miklu byggingaframkvæmdum bæði árin og þó
einkum 1954.
5. Atvinnutekjur launþega
Eins og undanfarin ár hefur að tilhlutan
Hagstofu íslands verið gerð úrtaksrannsókn
uin atvinnutekjur giftra verkamanna, iðnaðar-
manna og sjómanna.
Á grundvelli þessara úrtaka hafa svo verið
reiknaðar út meðaltekjur þessara stétta á öllu
landinu. Tölur fyrir árið 1954 eru birtar ásamt
sambærilegum tölum fyrir árin 1952 og 1953
í töflu 6.
Meðaltekjur fyrir allt landið hafa verið
fundnar á þann hátt að tekið hefur verið vegið
meðaltal með tilliti til mannfjölda í Reykjavílc,
kaupstöðum og kauptúnum. Á árinu 1954 juk-
ust meðaltekjurnar um kr. 3579 eða 8.6%
miðað við 1953. Milli 1952 og 1953 var aukn-
ingin kr. 5028 eða 13.7%.
Tafla 6. Atvinnutekjur giftra verkamanna, iðnaðarmanna og sjómanna 1952—1954
1982 _______1953__________ 1954
Hækkun Hækkun
Meðaltekjur Meðaltekjur frá fyrra ári Meðaltekjur frá fyrra ári
kr. kr. % kr. %
Reykjavik........... 37 608 43 609 16.0 46 687 7.1
Kaupstaðir.......... 37 444 40 690 8.7 45 271 11.3
Kauptún ............ 32 244 37 367 15.9 40 843 9.3
Allt landið 36 636 41 664 13.7 45 243 8.6
6