Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Blaðsíða 28
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM
Jón Sigurðsson orðið ökonomia með bústjórn-
arfrœði. Árið 1850 birtist síðan í Nýjum félags-
ritum grein eftir Gísla Brynjúlfsson. Nefndist
hún Þjóðmegunarfræði. Kveður hann það heiti
vera þýðingu á political economy eða öko-
nomiu, og fjallar greinin um efni þeirra fræða.
Hefur Gísli Brynjúlfsson liklega mvndað orðið
þjóðmegunarfræði, og var það siðan lengi
notað sem heiti á ökonomi. í bókaskrá Lands-
bókasafnsins, sem samin var 1887 og notuð er
enn í aðalatriðum, er ökonomi nefnd þjóð-
megunarfræði, og sömuleiðis í rithöfundatali
Jóns Borgfirðings 1884. Séra Arnljótur Ólafs-
son notar einnig þetta orð. Inclriði Einarsson
notaði það sömuleiðis, er hann þýddi rit eftir
Maurice Block og nefndi það Ágrip af þjóð-
megunarfræði. í blöðum er þetta orð og oft
notað, en einnig orðið þjóðmeganfrœði. Hef ég
rekizt á það orð í Fjallkonunni 1885 og í Skuld
1882, og enn fremur i Almanaki frá 1885. Árið
1909 kom út bók um þessi efni eftir Jón ólafs-
son. Var hún ætluð sem kennslubók fyrir Verzl-
unarskólann. Þýddi Jón þar orðið ökonomi
með viðskiptafræði, en bókin hét Stafróf við-
skiptafræðinnar og var sniðin eftir enskri bók.
Statistík: hagfræði
Á orðið hagfræði hef ég fyrst rekizt í rit-
gerð eftir séra Arnljót Ólafsson í Skýrslum um
landshagi á íslandi, sem út lcomu 1857. Nefnir
hann ritgerðina: Um landshagsfræði íslands,
efni hennar og niðurskipun. Ritgerðin hefst
á þessum orðum: „Hagfræðin er skýring á
högum lands og lýða, framsögð í tölum.“ Telur
hann þætti hennar vera sjö: Landið, lands-
menn, atvinnuvegi, viðskipti manna (kaup-
skap og samgöngur), bókmenntir, stjórnskipun
alla og sveitarstjórnina. Liklegast þykir mér,
að séra Arnljótur hafi myndað orðið hag-
fræði. En svo sem sést á efni þeirra fræða,
sem liann nefndi hagfræði, var þar ekki um
að ræða þá fræðigrein, sem nefnd var ökonomia
á erlendum málum, heldur önnur fræði, sem
kölluð voru statistik i öðrum löndum, enda er
orðið hagfræði bein þýðing á orðinu statistik,
en stofn þess er orðið stato, sem þýðir ástand
eða hagur.
Þýzka háskólastatistíkin
Á 18. öld og nokkuð fram á 19. öld var
stunduð við þýzka háskóla fræðigrein, sem
nefnd var statistik, síðar oft kölluð þýzka há-
skólastatistikin og gjarnan kennd við Göttingen.
Viðaði hún að sér efni úr stjórnarfarsrétti,
landafræði, sögu o. s. frv. Þar eð lítið var á
þeim tímum um töluupplýsingar, var þessi
fróðleikur ekki settur fram i töluskýrslum,
heldur rituðu máli. Upprunalega táknaði því
orðið statistík alls ekki töluupplýsingar, svo
sem nú á sér stað, heldur almennan fróðleik
um rikið og ástand þess, þ. e. þau fræði, sem
stjórnmálamönnum var sérstök nauðsyn að
kunna skil á, enda orðið statistik samstofna
orðinu statista, sem þýðir stjórnmálamaður.
Síðar rann saman við þýzku háskólastatistíkina
fræðigrein, sem lögð hafði verið stund á í
Bretlandi og verið nefnd þar pólitísk arit-
metík. Var þar um að ræða töluathuganir á
mannfjölda, fæðingum, manndauða o. s. frv.
Þegar smám saman fór að verða meira um
töluupplýsingar um ýmsa þætti þjóðarbúskap-
arins, varð statistíkin að ríkis- eða þjóðhags-
lýsingu, sem einkum var sett fram i tölum.
Sveinn Skúlason og ríkisfræði hans
Islenzkum menntamönnum á 19. öld var auð-
vitað ekki siður kunnugt um þessi fræði,
statistikina, en ökonomíuna. Um miðja öldina
ritaði A. F. Bergsöe prófessor við Kaupmanna-
hafnarháskóla bók, er liann nefndi „Den
danske Stats Statistik". Var þar einn kaflinn
um ísland. Þennan kafla þýddi séra Sveinn
Skúlason og nefndi hann „Lýsing Íslands, kafl-
ar úr rikisfræði". Kom bæklingurinn út 1853.
í inngangi lýsir liann hlutverki þeirrar fræði-
greinar, sem hann nefnir rikisvisindi, og
segir: „Ríkisvísindin eru þau visindi, sem
skýra frá eðli, ásigkomulagi og tilgangi rikis-
ins, sýna hvað útheimtist til þess að ná þess-
um tilgangi og kenna mönnum, hvernig honum
verði bezt náð.“ Segir hann siðan, að öll rikis-
vísindi skiptist i fjórar greinar:
1) Ríkisvisi (statsphilsopliie). 2) Stjórnvisi
(politik). 3) Rikisfræði eða ríkislýsingu (stat-
istik) og 4) Stjórnarsögu (statshistorie). Enn
fremur segir hann, að rikisfræðin, þ. e. statist-
íkin, ætti eiginlega að heita ríkishagsfræði, en
það nafn sé þó of langt og óþjált. Orðið ríkis-
hagsfræði gæti þannig verið fyrirrennari orðs-
ins hagfræði, en á það má lika minna, að orðin
landshagir og landshagsskýrslur höfðu áður
verið notuð. í eins konar inngangi segir séra
26