Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Blaðsíða 9
EFNAHAGSMÁL 1954
B. Um atvinnuvegina
Sjávarútvegur — Landbúnaður — Iðnaður
6. Sjávarútvegur
Heildarfiskaflinn 1954 var hærri en 1953 og
undanfarin ár. Markaösskilyrði fyrir sjávaraf-
uröir voru og góð á árinu. Má segja, að ytri skil-
yrði hafi verið sjávarútvegnum í hag 1954, en
þó áttu einstakar greinar þessa atvinnuvegar
við örðugleika að stríða. Síldaraflinn var jafn-
vel enn minni en á árinu 1953, sem þó var
lélegt síldarár. Þá var rekstursafkoma togar-
anna slæm og þurfti að grípa til sérstakra
bjargráða þeim til handa.
Heildaraflinn 1954 var 388 þúsund tonn. Var
það 25 þúsund tonnum meira en 1953 eða um
7% aukning. Þessi aukning stafaði af 16%
aukningu aflans á þorskveiðum1). Hins vegar
minnkaði síldaraflinn um 30% miðað við 1953.
Eins og sjá má af töflu 7, stafar nær öll
aukning aflans á þorskveiðum 1954 af auknum
bátafiski, en hann var 221 þúsund tonn 1954
samanborið við 202 þúsund tonn 1953 og 166
þúsund tonn 1952. Siðan 1952 hefur þvi afli
bátanna farið vaxandi ár frá ári og var 57%
af heildaraflanum 1954. Friðunarráðstafanir
þær, sem íslenzk stjórnarvöld gerðu með út-
vikkun landhelginnar 1952, hafa þannig aukið
mjög afköst bátaflotans, enda var þá mjög að
honum sorfið vegna aflaleysis. — Meðalafli
Tafla 7. Fiskaflinn 1952 til 195í
í þúsundum tonna
1952 1953 1954
Bátar Togarar Alls Bátar Togarar Alls Bátar Togarar Alls
Afli á þorskveiðum 135 170 305 133 160 293 174 165 339
Afli á síldveiðum . 31 1 32 69 1 70 47 2 49
166 171 337 202 161 363 221 167 388
Tafla 8. Hagnýting fiskaflans 1952—1954
i þúsundum tonna og hundraðshlutum
Þorskveiðar ísfiskur Til frystingar —• herzlu — söltunar Annað 1952 1953 1954
1000 tonn 28.8 124.9 14.7 127.1 9.3 % 8.6 37.0 4.4 37.7 2.8 1000 tonn 8.2 105.9 79.0 95.1 4.8 % 2.3 29.3 21.9 26.3 1.3 1000 tonn 10.8 179.4 53.3 86.2 9.2 % 2.8 46.3 13.8 22.2 2.3
Alls þorskveiðar 304.8 90.5 293.0 81.1 338.9 87.4
1952 1953 1954
SildveiSar 1009 tonn % 1000 tonn % 1000 tonn %
Til söltunar 16.2 4.8 31.2 8.6 18.4 4.8
— frystingar 8.1 2.4 11.2 3.1 7.4 1.9
— bræðslu og mjöl-
vinnslu 7.7 2.3 25.6 7.1 21.8 5.6
Annað - - 0.1 0.1 1.0 0.3
Alls sild 32.0 9.5 68.1 18.9 48.6 12.6
Samtals 336.8 100.0 361.1 100.0 387.5 100.0
1) Hér er fylgt málvenju Fiskifélags íslands, „þorskveiSar" eru allar aSrar veiðar en sildvciSar.
7