Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Qupperneq 23

Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Qupperneq 23
Gylfi Þ. Gislason prófessor: r Islenzk hagfræði Hagfræðin og skipting hennar Mannlegt samfélag mótast í ríkum mæli af því, að menn geta ekki fengið ókeypis nema lítinn hluta þess, sem menn þarfnast, og verða því að afla sér flestra þeirra gæða, sem þeir girnast, með fyrirhöfn. Af slíkri starfsemi við framleiðslu gæða og liagnýtingu þeirra leiðir margs konar félagsfyrirbrigði. Þau vísindi, sem um þau fjalla, hafa verið nefnd hayfræði. Viðfangsefni hagfræði eru svo margvísleg og margbrotin, að henni hefur verið skipt i grein- ar. Sérhvert heimili glímir við efnahagsvanda- mál. Þann þátt hagfræði, sem fjallar um slík vandamál, mætti nefna heimilishagfræði eða neyzluhagfræði. Nú á timum eru framleiðsla og viðskipti yfirleitt stunduð af fyrirtækjum. í sambandi við rekstur þeirra cr auðvitað um fjölmörg efnahagsvandamál að ræða. Sá þáttur liagfræðinnar, sem fjallar um þessi vandamál, hefur verið nefndur rekstrarhagfræði. En auk licimilanna og fyrirtækjanna er í þjóðfélaginu þriðja tegund efnahagsstofnana, þ. e. opinberir aðilar, ríki og sveitarfélög. Þessar stofnanir annast mikilvæga þjónustu, hafa af henni gjöld og afla sér tekna til þess að standa straum af þeim. Sá þáttur hagfræðinnar, sem um þessi vandamál fjallar, er nefndur fíármálafræði. Milli hinna einstöku efnahagsstofnana og ein- slaklinga i þjóðfélaginu eru að sjálfsögðu margvisleg tengsl, þessir aðilar eiga viðskipti hver við annan og hafa margvísleg víxláhrif hver á annan. Þegar rannsökuð eru þau ótelj- andi bönd, sem tengja þá saman, og víxláhrifin, sem um er að ræða, er talað um þjóðhagfræði. Áherzlu ber þó að leggja á, að öll slík skipting í þætti eða greinar er gerð út frá hagnýtum sjónarmiðum eingöngu. Grundvallarviðfangs- efnin eru sameiginleg. Allt er þetta hagfræði. í nánum tengslum við hagfræðina eru tvær aðrar greinar, haglýsing og tölfræði. Þegar lýst er efnahagslífi þjóðar og atriðum þeim, sem máli skipta i þvi sambandi, og einkum stuðst við töluupplýsingar og hagskýrslur, er það nefnt haglýsing. Fræðin um það, hvernig talnaupplýsinga er aflað, hvernig úr þeim má vinna og setja fram niðurstöður, eru hins vegar nefnd tölfræði. Upphaf nútímahagfræði Hagfræðin er ung visindagrein, einna yngst þeirra fræðigreina, sem nú eru mikilvægar taldar og rík áherzla er lögð á i hinum mennt- aða heimi. Telja má hana um tveggja alda gamla. Höfundar hennar sem visindagreinar i nútimaskilningi eru venjulega taldir franski læknirinn Francois Quesnay og þó einkum brezki rökfræðiprófessorinn Adam Smith. Quesnay gaf 1758 út rit um liringrás auðsins („Tableau économique"), en 18 árum siðar eða 1776 kom út rit eftir Adam Smith um rann- sókn á eðli og orsökum velmegunar þjóðanna. Er þar í raun og veru i fyrsta skipti beitt hreinum visindaaðferðum við rannsókn efna- hagsvandamála og leitað að reglu eða lögmál- um i efnahagslífinu. Áður hafði þó auðvitað mikið verið ritað um ýmsa þætti efnahagsmál- anna og þó einkum á sviði liaglýsingar. Hafði rit þetta mikil áhrif á næstu áratugum. Fyrstu hagskýrslur Islendinga Hér á íslandi hafði fyrr á öldum litið verið ritað um efnahagsmál. Ýmislegt var þó skráð af því tagi, sem við mundum nú telja til hag- lýsingar eða hagskýrslna. Gizur biskup í Skál- holti lét um 1100 telja alla bændur á íslandi, og eru helztu niðurstöður þeirrar talningar í íslendingabók Ara fróða. Er hér um að ræða elztu hagskýrslu islenzka. Reyndust þá 4560 búendur á landinu, þeir er þingfararkaupi áttu að gegna. Páll bislcup i Skálholti hafði og hundrað árum síðar tölu á öllum prestum í biskupsdæmi sínu. Enn voru skattbændur 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.