Úr þjóðarbúskapnum - 01.03.1956, Page 31
ISLENZK HAGFRÆÐI
málanna. Svo mikil störf við lausn hagnýtra
viðfangsefna hafa jafnan beðið úrlausnar, að
fáir hafa fengizt við hrein fræðistörf. Stærsta
ritið, sem íslenzkur hagfræðingur hefur sam-
ið, er bók dr. Benjamíns Eirikssonar banka-
stjóra, Outline of an economic theory eða
Meginatriði hagfræðikenningar. Kom hún út
á ensku 1954, en hafði i aðalatriðum verið
samin á árunum 1945—46, sumpart sem
doktorsritgerð höfundar. Er í bókinni fjallað
á frumlegan hátt um grundvallarvandamál
nútímahagfræði. Er aðaltilgangur höfundar að
fella kenningar um eðli fjármagns, vaxta og
peninga inn i hina almennu jafnvægiskenn-
ingu, og setur hann fram nýtt fræðikerfi, í
því skyni að ná slikri samhæfingu.
Þá hefur Jónas H. Haralz hagfræðingur, sem
er starfsmaður Alþjóðabankans i Washington,
samið ásamt bandarískum starfsbróður sínum
mikið rit um efnahagsmál Mexíkó, en höfund-
arnir dvöldu þar alllengi við hagfræðirann-
sóknir á vegum Alþjóðabankans. Nokkur rit
hafa verið samin sem fræðileg rannsókn á
ákveðnum efnahagsvandamálum. Ber þar fyrst
og fremst að nefna bók Jóns Þorlákssonar,
Lággengið, sem út kom 1924. Hún fjallaði um
gengismálið, sem höfundur hafði kynnt sér
mjög rækilega. Dr. Benjamín Eiríksson gaf og
árið 1938 út bók um Orsakir erfiðleikanna í
atvinnu- og gjaldeyrismátunum, þar sem hann
ræddi um efnahagsvandamálin á árunum fyrir
styrjöldina. Á sjötugsafmæli dr. Þorsteins Þor-
steinssonar, 1950, gáfu íslenzkir liagfræðingar
út afmælisrit, honum til heiðurs, og voru þar
15 ritgerðir um hagfræðileg efni. Ýmis nefnd-
arálit hafa verið samin um rannsóknarstörf,
sem unnin hafa verið. Stærst þeirra er „álit
og tillögur" skipulagsnefndar atvinnumála,
sem skipuð var 1934, og kom álitið út 1936.
Hafði nefndin ráðið hingað sænskan hag-
fræðing, dr. Erik Lundberg, sem ritaði ýmsar
álitsgerðir fyrir nefndina. En aðalhöfundar
nefndarálitsins voru þeir Arnór Sigurjónsson,
Emil Jónsson og Steingrimur Steinþórsson. Af
öðrum slíkum ritum má nefna Álit hagfrœð-
inganefndar, sem skipuð var af þingflokkun-
um 1946, en í lienni áttu sæti Jónas H. Haralz,
Klemens Tryggvason, Ólafur Björnsson og Gylfi
Þ. Gislason. Ári siðar gerðu þeir Pétur Magn-
ússon, Klemens Tryggvason og Gylfi Þ. Gísla-
son nákvæma rannsókn á afkomu ýmissa
greina sjávarútvegsins fyrir rikisstjórnina, en
sú skýrsla var ekki prentuð. Enn fremur samdi
dr. Benjamin Eiríksson ýtarlega álitgerð um
hagmál fyrir ríkisstjórnina 1949, og var sú rit-
gerð afhent ríkisstjórn og alþingismönnum, en
ekki prentuð. Ýmis meginatriði hennar voru
tekin upp í hagfræðilega álitsgerð þeirra dr.
Benjamins Eiríkssonar og Ólafs prófessors
Björnssonar, er fylgdi gengislækkunarfrum-
varpinu 1950.
íslenzk hagskýrslugerð
Þrjár opinberar stofnanir fást nú við hag-
skýrslugerð og athuganir á efnahagsmálum. Ber
þar fyrst að nefna Hagstofu íslands, sem stofn-
uð var 1914. Gefur hún út verzlunarskýrslur,
búnaðarskýrslur, fiskiskýrslur- og hlunninda,
iðnaðarskýrslur, mannfjöldaskýrslur og skýrsl-
ur um Alþingiskosningar, auk Hagtiðinda,
mánaðarblaðs um efnahagsmál. Hefur Klemens
Tryggvason verið hagstofustjóri síðan 1951.
1952 hófst Hagstofan, í umboði nokkurra opin-
berra stofnana, handa um að koma á fót vél-
spjaldskrá yfir alla landsmenn, og hefur Hag-
stofan siðan 1953 látið sveitarstjórnum og öðr-
um opinberum aðilum í té íbúðaskrár og aðrar
skrár. Þá hefur Landsbanki íslands og komið
á fót hagfræðideild. Var Klemens Tryggvason
fyrsti forstöðumaður hennar, en nú veitir
lienni forstöðu dr. Jóhannes Nordal. Um all-
langt skeið gaf Landsbankinn út árbók sem
fylgirit með reikningum sínum, og var þar
margvislegur fróðleikur um efnahagsmál næst-
liðins árs. Síðan 1954 hefur hagfræðideildin
gefið út tímarit um efnahagsmál, Fjármálatið-
indi. Birta þau ritgerðir um hagfræði og efna-
hagsmál, fréttaþætti og ýmsar hagskýrslur. Við
Framkvæmdabanka íslands hefur pg verið
komið á fót hagfræðideild, en Framkvæmda-
bánkanum hefur með lögum verið falið að
annast samningu þjóðhagsreikninga, og er nú
unnið að þvi að koma því starfi í fast horf.
Er Torfi Ásgeirsson deildarstjóri þeirrar deilcj-
ar. Hefur Framkvæmdabankinn einnig hafið
útgáfu timarits um efnahagsmál, og nefnist
það Úr þjóðarbúskapnum.
Þá hefur Beykjavíkurbær eigin hagfræði-
deild, þar sem unnin eru ýmis hagskýrslustörf
fyrir bæjarfélagið og athuganir gerðar i efna-
hagsmálum fyrir stjórn bæjarins. Var dr. Björn
29