Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Page 8

Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Page 8
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM ef til vill meiru máli fyrir góðan árangur áætlunargerðar og farsæla framþróun hennar en nokkurt annað atriði, að eðlilegt jafnvægi skapist frá upphafi á milli þessara aðila. Enda þótt eðlilegt sé, að mismunandi aðstæður og venjur hafi áhrif á það, hver lausn er valin á sambandinu á milli þeirra aðila, sem að áætl- unargerð standa, held ég þó, að í aðalatriðum geti lausnin ekki verið nema ein. Arangur áætlunargerðar er kominn undir því meir en nokkru öðru, að hinar einstöku einingar efna- hagslífsins séu færar um að gera áætlanir og noti áætlanir sem lið í starfsemi sinni. Sú stofnun, sem heildaráætlunina semur, getur ekki tekið að sér að semja áætlanir fyrir þessa aðila. Hennar starf er að hlaða úr múrstein- um, sem aðrir hafa búið til, en ekki að búa til sjálfa múrsteinana. Hafi einingarnar ekki vanizt skipulegri áætlunargerð, og ekki beitt henni í starfsemi sinni, er skjóts eða mikils árangurs af áætlunargerð ekki að vænta. Arangur áætlunargerðar er þannig kominn undir styrkleika hverrar einingar. Sá styrkleiki verður að skapast innan frá, en getur ekki orð- ið til af þrýstingi að utan, enda þótt sú stofn- un, sem heildaráætlunina semur, og ríkisstjórn- in sjálf geti stuðlað að eflingu hans. Þeir erfiðleikar, sem veikleiki hinna einstöku eininga skapa, hafa í þróunarlöndunum oft leitt til þess, að reynt hefur verið að styrkja sem mest þann aðila, sem um heildaráætlunargerð sér. Starfsemi hans hefur verið beint inn á verk- svið hinna einstöku eininga, hann hefur verið látinn taka að sér áætlunargerð fyrir þá, jafn- vel stjórn heillra málaflokka að meira eða minna leyti. Þetta hefur oft á tíðum leitt til al- varlegra árekstra og jafnvel glundroða innan stjórnarkerfisins. Því hefur ekki alltaf verið gefinn nægur gaumur, að vandamál þróunar- landanna eru ekki sízt fólgin í skorti á reynslu í stjórnun og skipulagningu á öllum sviðum, að hver einstök eining efnahagskerf- isins er veik, hvort sem er um að ræða atvinnu- fyrirtæki, samtök atvinnugreina, sveitarfélög. ríkisfyrirtæki, ríkisstofnanir eða ráðuneyti. Það getur virzt einföld og fljótvirk leið að reyna að bæta upp þennan skort með því að skapa sterka stofnun, er fjalli um heildarskipulagn- ingu atvinnulífs og ríkisstarfsemi, og hafi víð- tæk völd. En þetta er í raun og veru ekki nein lausn, því styrkleiki slíkrar stofnunar get- ur aldrei bætt upp veikleika hinna einstöku eininga, og getur meira að segja beinlínis orð- ið til þess að tefja fyrir þroska þeirra. Aætl- unargerð er því í sjálfu sér engin lausn á stjórnunarvandamálum þróunarlandanna, enda þótt hún geti tvímælalaust leitt til góðs, þegar henni er beitt af forsjá og skilningi. Aætlunar- gerð hentar fyrst og fremst í þróuðum lönd- um, þar sem stjórnun er á háu stigi og hver eining efnahagslífsins hefur náð miklum þroska. Aætlunargerð er því auðveldust og árangursríkust, þar sem hennar er ef til vill minnst þörf, en erfiðust og árangursminnst, þar sem svo gæti virzt, að hennar væri mest þörf. I Vestur-Evrópu hefur yfirleitt alls staðar verið lögð höfuðáherzla á hinn mikilvæga þátt hinna einstöku eininga efnahagslífsins í áætl- unargerðinni. Hlutverk þess aðila, sem um heildaráætlunargerðina sér, hefur verið að safna saman og samræma áætlanir hinna ein- stöku aðila. Hér hafa menn hins vegar rekizt á það vandamál, að áætlanir hvers aðila um sig verða að byggjast á ákveðnum forsendum um heildarþróun efnahagslífsins, forsendum, sem á liinn bóginn er erfitt að gefa sér, nema vitneskja sé fyrir hendi um fyrirætlanir hinna einstöku aðila. Þetta vandamál hefur verið reynt að leysa með því að hafa sem nánast samband meðan á áætlunargerðinni stendur á milli hinna einstöku eininga og þess aðila, sem um heildaráætlunargerðina sér. Þannig er smátt smátt og smátt hægt að endurskoða for- sendurnar og samræma þær. Það er þannig ekki hægt að gagnrýna áætl- unargerð í Vestur-Evrópu fyrir það, að of mikil áherzla hafi verið lögð á starfsemi þess 6

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.