Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Qupperneq 13

Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Qupperneq 13
UM ÁÆTLUNARGERÐ hann til þess að framkvæma þá stefnu eins og áætlunin lýsti. Þannig er þessu einnig varið í öðrum löndum, þar sem svipaður opinber stuðningur við einkaframkvæmdir er þýðing- armikill, svo sem í Frakklandi og í Noregi. En hér á landi gegnir öðru máli. Tækið er ekki notað. Lán úr fjárfestingarsjóðum eru veitt eftir vélrænum, ósveigjanlegum reglum. Til sumra tegunda framkvæmda er hægt að fá ótakmörkuð lán, til annarra engin. Framtíð áætlunargerðar hér á landi Þær sérstöku aðstæður, sem hér að framan hefur verið lýst, gera það að verkum, að hlut- verk áætlunargerðar hlýtur að vera mjög tak- markað hér á landi og miklu takmarkaðra en það er í nálægum löndum. Framtíð áætlunar- gerðar hér á landi er undir því komin, hvaða breytingar geta orðið á þessum aðstæðum. I fyrsta lagi, að hve miklu leyti, og á hve skömmum tíma geta einingar efnahagslífsins eflzt og styrkzt, bæði þær, sem eru innan ríkis- geirans, og þær, sem eru utan hans. í öðru lagi, að hve miklu leyti og á hve skömmum tíma er hægt að smíða þau tæki, sem í öðrum löndum eru notuð við stjórn efnahagsmála, og læra að beita þeim tækjum. Hvorugt af þessu getur skeð skjótt, en það getur skeð hægt og hægt, og að þeirri þróun er hægt að stuðla með margvís- legu móti, þar á meðal með áætlunargerðinni sjálfri. Til þess, að þróunin geti gengið í þessa átt með nokkrum hraða, þarf þó umfram allt pólitískan vilja. Sá vilji er á hinn bóginn að verulegu leyti ávöxtur almenns þjóðfélags- þroska. Niðurlagsorð Ég hefi hér að framan reynt að gera nokkra grein fyrir eðli áætlunargerðar og þeim jarð- vegi, sem hún er sprottin upp úr á Vestur- löndum. Ég hefi enn fremur reynt að gera í stórum dráttum grein fyrir þeirri reynslu, sem hér á landi hefur fengizt af áætlunargerð. Ég vil nú reyna að draga saman í örstuttu máli skoðanir mínar á hlutverki áætlunargerðar hér á landi. Þau markmið, sem stefnt er að í íslenzkum efnahagsmálum, eru þau sömu eins og í ná- lægum löndum: full atvinna, ör hagvöxtur samfara efnahagsjafnvægi, félagslegt öryggi, réttlát tekjuskipting. A hinn bóginn hefur okkur íslendingum gengið ver en öðrum ná- lægum þjóðum að ná heilbrigðu jafnvægi á milli markmiðanna og haga sókninni í áttina til þeirra á skipulegan og hagkvæman hátt. Það er eðlilegt, að menn spyrji, hvort áætlunar- gerð geti ekki hér eins og annars staðar verið þýðingarmikið hjálpartæki í sókninni að þess- um markmiðum, og þeirri hugsun geti jafnvel skotið upp, að hún geti að verulegu leyti verið lausnin á þeim vandamálum, sem við höfum svo lengi verið að glíma við. Jafnframt því, sem menn gera sér vonir um gagnsemi áætl- unargerðar, skiptir miklu máli, að menn meti á raunsæjan hátt þá erfiðleika, sem beitingu hennar eru samfara. Þeir erfiðleikar eru í eðli sínu þeir sömu og þeir erfiðleikar, sem við höfum verið að glíma við í efnahagsmálum yfirleitt. Einingar hins íslenzka efnahagskerfis eru veikar og lítt þroskaðar, og þá ekki síður það ríkisvald, sem á að leiðbeina þessum ein- ingum og samræma starfsemi þeirra. Aætlun- argerðin sem slík getur ekki bætt upp þessa veikleika. Þroskaferillinn er langur og erfiður, hvort sem maður eða þjóðfélag á í hlut, og á þeim ferli er ekki hægt að stytta sér leið með neinum töfrabrögðum. Aætlunargerð, sem beitt er af forsjá og skilningi, getur hins vegar stuðlað að auknum styrkleika. Hún getur verið liður í viðleitninni til almenns þroska. 3 11

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.