Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Síða 30

Úr þjóðarbúskapnum - 01.02.1965, Síða 30
ÚR ÞJÓÐARBÚSKAPNUM Vegamálastjomin. Mildð vantar á að vegamálastjórnin hafi yfir nægu starfsliði að ráða. Hinn fámenni starfs- hópur þar á að framkvæma áætlunargerð og verkumsjón vegna allra vega- og brúafram- kvæmda á landinu. Þótt hægt sé að fá verktaka til framkvæmdar verkanna sjálfra, dregur slíkt ekki úr þörf fyrir sérmenntað starfslið til áætlunargerðar og eftirlits. Skortur tæknifræðinga og landmælinga- mannna er einnig mikill. Slíkt starfslið getur tekið við miklum hluta hinna einfaldari starfa verkfræðinganna. Þá gætu verkfræðingar helg- að sig hinum þýðingarmiklu áætlunargerðar- og hagræðingarstörfum, en mikil nauðsyn er á aukningu slíkrar starfsemi. Auk tæknimennt- aðra manna er þörf á fólki með t. d. verzlunar- menntun til úrvinnslu úr skýrslum. Slík störf hafa mikla þýðingu í sambandi við kostnaðar- reikninga, svo og í sambandi við umferðar- talningar og gerð umferðaráætlana. Það er lítil hagsýni í því að auka fjármagn til vegagerðar frá ári til árs, án þess samtímis að auka við það starfslið, sem sjá á um ráðstöf- un peninganna. I nútímavegagerð er ekki hægt að byrja undirbúningslaust að grafa og ryðja. Aður en vinna hefst verður að gera ýtar- legar áætlanir. Þýðingarmikið er, að skilning- ur aukist á þessum grundvallaratriðum. Strandferðimar. í sérstökum kafla hér að framan er greint frá því, hvaða rannsóknir virðast nauðsynleg- astar við endurskipulagningu strandferða. Er þar aðallega um að ræða athuganir á farþega- og vöruflutningum, þ. e. a. s. hvaðan og hvert straumarnir liggja. Ef millilandasiglingum verður breytt þannig, að inn- og útflutningur fari um fleiri aðalhafnir en nú er, mun það hafa veruleg áhrif á vöruflutninga innanlands. Þörf er á samvinnu hinna ýmsu flutningafyrirtækja til þess að finna beztu lausn þessa máls. Hið hlutfallslega mikla vörumagn, sem flutt er innanlands á ári hverju, gerir það að verk- um, að mildð er að vinna með hagkvæmari vörumeðferð. Hér er þörf á sérstökum athug- unum, byggðum á samstarfi skipafélaganna og annarra, sem hlut eiga að máli. Ef einingakerfi í sjóflutningum á að ganga á hagkvæman hátt, verður að laga allt flutningakerfið, skip, vöru- geymslur og flutningatæki í höfn, að kerfinu. Þar sem slíkt kerfi útheimtir ákveðið lágmarks- vörumagn í hverri höfn, ef það á að vera hag- kvæmt, hefur það áhrif á skipulagningu sigl- ingaleiða. Af þessu leiðir, að koma verður á samvinnu á milli flutningafyrirtækja, við- skiptavina þeirra og stjórnarvalda, ef hag- kvæmar og fullnægjandi lausnir eiga að fást. Flugmálastjómin og Flugfélag Islands. Nauðsynin á tæknimenntuðu starfsliði er söm hjá Flugmálastjóminni, og hjá Vegamála- stjórninni. Nauðsynlegt er að sérmenntaður starfsmaður geti algjörlega helgað sig áætl- unarstörfum vegna endurbóta flugvallanna. Hjá Flugfélagi Islands virðist mest þörf á ráðningu sérmenntaðs starfsmanns til að sjá um kostnaðarreikninga. Hér er um að ræða starf, sem hefur grundvallarþýðingu í sam- bandi við flugreksturinn, ákvarðanir um gerð og stærð flugvélastólsins o. s. frv. Sé unnið úr reikningum og umferðarskýrslum með þetta fyrir augum, geta þessi gögn orðið þýðingar- mikil hjálpargögn fyrir stjórn félagsins, bæði þegar um er að ræða fjárfestingu og daglegan rekstur. 28

x

Úr þjóðarbúskapnum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.