Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 22.–24. febrúar 2013 Helgarblað
S
tarfsmenn eignarhaldsfé
lagsins Milestone létu eitt
af dótturfélögum trygginga
félagsins Sjóvár, K9 ehf.,
fjármagna ýmiss kon
ar kostnað við rekstur félagsins, til
dæmis kostnað við fatahreinsun og
leigubíla. Þetta herma heimildir DV.
Milestone var eigandi Sjóvár og var
K9 ehf. stýrt af fjármálastjóra Mile
stone, Arnari Guðmundssyni. Mile
stone lenti í verulegum fjárhags
erfiðleikum í árslok 2007 og leitaði
í auknum mæli til Sjóvár eftir fjár
mögnun á árinu 2008. Viðskipti K9
ehf. hafa verið til rannsóknar hjá
eftir litsaðilum hér á landi.
Heimildir DV herma að fram
kvæmdastjóri K9 ehf. hafi árið 2008
millifært milljónir króna af reikn
ingi félagsins og inn á reikning Mile
stone. Fjármunirnir voru svo not
aðir til að greiða fyrir áðurnefndan
rekstrarkostnað Milestone. K9 ehf.
átti reiðufé upp á meira en 176 millj
ónir króna í árslok 2007 en í árslok
2008 var þessi tala komin niður í
61,5 milljónir. Félagið tapaði ríflega
231 milljón króna árið 2008 og fóru
eignir félagsins úr ríflega 485 millj
ónum króna og niður í ríflega 117
milljónir.
„Stórt núll“
DV hefur ekki heimildir fyrir því
hver staðan er á rannsókn eftirlits
aðila á málefnum K9 ehf. en það
mun hafa þótt óeðlilegt að fjármunir
félagsins hafi verið notaðir til að
greiða rekstrar kostnað Milestone.
Rannsókn sérstaks saksóknara á
Sjóvá hefur staðið yfir síðastliðin ár
en ekki hafa verið gefnar út ákærur
í málum tryggingafélagsins. Greint
hefur verið frá því nokkrum sinn
um að það styttist í ákærurnar en
þær hafa ekki litið dagsins ljós.
Rannsóknin snýst meðal annars
um meinta misnotkun á bótasjóði
tryggingafélagsins.
Heimildirnar um notkun Mile
stone á K9 ehf. ríma við aðrar heim
ildir um stöðu Milestone á þessum
tíma. Samkvæmt skýrslu sem ráð
gjafafyrirtæki í eigu tveggja fyrr
verandi starfsmanna sérstaks sak
sóknara, Jóns Óttars Ólafssonar og
Guðmundar Hauks Gunnarssonar,
vann um gjaldþol Milestone fyrir
þrotabú félagsins var staða þess
orðin það slæm á fyrri hluta árs
2008 að Arnar Guðmundsson
lýsti henni sem einu „stóru núlli“ í
tölvupósti til Guðmundar Ólasonar
í maí það ár. Í skýrslunni segir einnig
að í lok apríl 2008 hafi „greiðslu
vandræði Milestone ehf. verið orðin
það mikil að forsvarsmenn félagsins
ræddu þau opinskátt í tölvupóstum
sín á milli.“
Þá liggur jafnframt fyrir að á fyrstu
sex vikum ársins 2008 voru rúmlega
1.500 milljónir króna lagðar inn á
reikning eignarhaldsfélagsins Mile
stone í Glitni af reikningum trygginga
félagsins Sjóvár vegna þess að staðan
á reikningi félagsins var orðin nei
kvæð. Þetta kom fram í skýrslu sem
endurskoðendafyrirtækið Ernst og
Young vann fyrir þrotabú Mile stone
árið 2010.
Þegar þarna var komið sögu
hafði Milestone gert árangurs
lausar tilraunir til að endurfjár
magna félagið frá því um sumarið
2007 með því leita til tuga fjármála
fyrirtækja eftir lánafyrirgreiðslu.
Enginn vildi hins vegar lána Mile
stone peninga nema Glitnir og Sjó
vá, sem Milestone átti að fullu eða
hluta.
Lánasamningar í leigubílum
DV hefur einnig greint frá því að
tengsl Milestone við Sjóvá hafi verið
það mikil að Milestone hafi sent
lánasamninga til undir
ritunar hjá Sjóvá með
leigubílum. Skrifstofur
Mile stone voru á
Suðurlandsbraut
og skrifstofur
Sjóvár eru í
Kringlunni.
Forsvarsmenn
Sjóvár þurftu að
undirrita lána
samninga fyrir
hönd trygginga
félagsins til að þeir myndu öðlast
gildi. Heimildir DV herma að leigu
bílarnir hafi verið látnir bíða fyrir
utan skrifstofur Sjóvár í Kringlunni á
meðan skrifað var undir lánasamn
ingana og þeir síðan fluttir aftur á
Suðurlandsbrautina til Milestone.
Þessi saga stemmir við frásögn
Steingríms Wernerssonar, annars
aðaleigenda Milestone, en hann bar
því við í yfirheyrslum hjá saksóknara
að bótasjóði Sjóvár hefði verið stýrt
af skrifstofum Milestone á Suður
landsbrautinni. n
„Forsvars-
menn
félagsins ræddu
þau opinskátt í
tölvupóstum
sín á milli
Létu Sjóvá borga
LeigubíLa og
hreinSun
n Lánasamningar fluttir frá Milestone til Sjóvár í leigubílum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Leigubílar til
Sjóvár Eftirlitsaðilar
hafa rannsakað fjár-
mögnun dótturfélags
Sjóvár, K9 ehf., á móð-
urfélagi trygginga-
félagsins, Milestone.
Guðmundur Ólason var
forstjóri Milestone.
Milljónir í
verktaka-
samninga
Menntamálaráðuneytið gerði
verktakasamninga við þrettán
aðila á tímabilinu 1. maí 2011
til 20. janúar 2013. Samn
ingarnir voru að andvirði tæp
lega 52 milljóna króna. Hæstu
greiðslurnar fóru til fyrirtæk
isins Attentus ehf., sem gerði
úttekt á leik, grunn og fram
haldsskólum, og félagsins Gát
sf., sem gerði úttekt á grunn og
framhaldsskólum. Attentus fékk
12,9 milljónir og Gát 10,3.
Þetta kemur
fram í svari
Katrínar Jakobs
dóttur, mennta
og menningar
málaráðherra, við
fyrirspurn Vigdís
ar Hauksdóttir,
þingkonu Framsóknarflokksins.
Þar segir einnig að verktaka
samningarnir séu allir vegna
ýmissa sérhæfðra verkefna sem
tengjast starfsemi og verkefnum
ráðuneytisins. Flestir samning
anna hljóða upp á greiðslur yfir
einni milljón króna en þó eru
tveir samningar upp á 75 þús
und krónur og einn upp á 600
þúsund krónur.
Háskóli Íslands er meðal
þeirra aðila sem ráðuneytið
gerði verktakasamning við á
tímabilinu en skólinn gerði mat
á starfsbrautum framhaldsskóla
og úttekt á málefnum barna
með tal og eða málþroska
frávik. Skólinn fékk tæpar 5,7
milljónir króna fyrir verkið.
Sex einstaklingar eru í hópi
þeirra sem fengu verktaka
samning hjá menntamála
ráðuneytinu; Björk Ólafsdóttir,
Elín Thorarensen, Svanhild
ur Sverrisdóttir, Unnar Her
mannsson, Þóra Þórðardóttir
og Þóra Björk Jónsdóttir. Fjórir
lög aðilar voru með verktaka
samning á umræddu tímabili
auk þeirra þriggja sem áður hafa
verið nefndir. Það eru Capacent
Gallup, Íslenskir endurskoðend
ur ehf., Ísmat ehf. og Maskína.
Úr öndunarvél og er vöknuð
Þ
etta lítur allt vel út í augnablik
inu, hún er komin úr öndunar
vélinni og vöknuð,“ segir Anna
Stefanía Jóhannesdóttir, systir
Hönnu Grétu Jóhannesdóttur en saga
hennar var sögð hér í DV á miðviku
dag. Hanna sem er aðeins 36 ára fékk
alvarlegt hjartaáfall eftir að hafa heim
sótt dóttur sína sem situr í fangelsi úti í
Tékklandi fyrir fíkniefnasmygl. Hún fór
fyrst að kenna sér meins þegar hún var
stödd úti og leitaði sér læknishjálpar
tveimur dögum eftir að hún kom heim.
Hún var sett í hjartaaðgerð og ástandið
reyndist alvarlegra en fyrst var haldið.
Tvísýnt var um ástand hennar og
henni haldið sofandi í öndunarvél. Nú
eru horfurnar betri, Hanna er vöknuð,
komin úr öndunarvélinni og fjölskyld
an er að vonum í skýjunum. „Eins og
þetta lítur út núna þá er þetta eiginlega
bara ótrúlegt en læknarnir segja okkur
að það geti komið bakslag en þeir vita
það ekki. Þetta lítur vel út eins og stað
an er núna. Hún hefur reynt að setjast
upp og tala við okkur og þetta virðist
allt vera að koma,“ segir Anna.
Eftir umfjöllun DV lögðu fjölmargir
fjölskyldunni lið en þau höfðu stofnað
styrktarreikning fyrir Hönnu og börnin
hennar þrjú. Fjölskyldan er afar hrærð
og þakklát yfir viðbrögðunum og vilja
koma þökkum á framfæri. „Okkur
langar bara að skila þakklæti til allra
þeirra sem hafa hjálpað okkur og lagt
þeim lið,“ segir Anna. n
viktoria@dv.is
n Hanna Gréta er á batavegi eftir erfitt hjartaáfall
Fengu góðar
fréttir Móðir
Hönnu, Árný, systir
hennar, Anna, og
sonur Hönnu,
Ármann, halda hér á
mynd af Hönnu.