Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Blaðsíða 32
4 Fermingar 22.–24. febrúar 2013 Helgarblað
Verndar og hjálpar
n Hera Sóley biður faðir vorið á kvöldin
É
g trúi á Guð og að hann verndi
okkur og hjálpi í gegnum lífið,“
segir Hera Sóley Sölvadóttir
sem segist stundum biðja Fað
ir vorið á kvöldin. „Ég trúi því að
hann sé með okkur á hverjum degi
og í hjarta okkar. Presturinn hefur
vakið með mér meiri áhuga á trúnni
og fengið mig til þess að hugsa um
hvernig við lifum hvern dag.“
Um Jesú segir hún: „Hann var
mjög góður og gaf öllum það sem
þeir áttu skilið.“
Þegar Hera Sóley er spurð um
væntingar varðandi fermingar
daginn segir hún: „Ég vona að þetta
verði frábær dagur. Ég staðfesti
skírnina og hlakka til þess að verða
komin í fullorðinna manna tölu.“
Hún segir að það sé búið að
kaupa fermingarkjólinn sem er
kremlitaður blúndukjóll.
„Ég ætla að fara í hárgreiðslu um
morguninn, láta krulla endana, gera
eitthvað rosalega flott við hárið.“
Fermingarveislan verður í safn
aðarheimili kirkjunnar þar sem
Hera Sóley fermist og segir hún að
hún og móðir hennar séu búnar að
skipuleggja veisluna, velja servíettur
og skraut.
„Það verður fjólublátt og túrkis
blátt þema og það verður alls kon
ar skraut, meðal annars skreyttar
krukkur á borðunum.
Við bjóðum veislugestum upp
á alls konar dýrindis góðgæti; kaffi,
kökur, ístertu og fleira gómsætt og
ég er viss um að það muni allir sam
gleðjast mér á þessum degi.“
Hera Sóley veit um eina ferm
ingargjöf: „Ég fæ utanlandsferð frá
foreldrum mínum til Englands. Ég
hlakka til og ég held ég heimsæki
frænku mína í London.“
Reif blómin
úr hári sínu
n Þórunn Högnadóttir kveið fermingardeginum n Var stjörf á myndum
É
g kveið svolítið fyrir þessum
degi af því að ég var stærst
af fermingarbörnunum og
stærsta fermingarbarnið átti
að fara með vers í athöfn
inni,“ segir Þórunn Högnadóttir.
„Mér fannst rosalega erfitt að þurfa
að standa fyrir framan alla í kirkj
unni og fara með þetta vers sem ég
man ekkert hvað var. Ég kveið of
boðslega fyrir því. Það sést greini
lega á myndunum en ég er stjörf á
þeim. Pabbi sagði að ég hefði ekki
einu sinni litið upp. Ég man lítið
eftir þessum degi þangað til ég
kom í veisluna.“
Hvað með fermingarfötin. Jú,
dragt: Sítt, bleikt pils og bleikur
jakki. Eiginlega beibíbleikt,“ segir
Þórunn. „Það var voðalega mikið
í tísku á þessum tíma. Svo var ég í
hvítri skyrtu með slaufu á, í hvítum
blúndusokkabuxum og í mokka
síum. Mér fannst ég vera
voðalega fín.“
Svo fór tilvonandi
fermingarbarnið í hár
greiðslu. „Það voru sett
hvít blóm í hárið á mér en
ég fílaði það ekki þannig
að ég reif þau úr hárinu.
Ég hef alltaf haft sterkar
skoðanir á hlutunum
en auðvitað hefði ég
kannski ekki átt að gera
þetta.“
Þær voru þrjár
frænkurnar sem fermd
ust sama daginn og
héldu þær sameiginlega
fermingarveislu. Boðið
var upp á tertur og kök
ur í veislunni og kran
sakakan var punkturinn
yfir iið.
„Ég fékk græjur frá
mömmu og pabba og
rosalega mikið af skart
gripum.“ Þórunn seg
ir að græjurnar standi
upp úr hvað gjafirnar
varðar. „Það var eitt
hvað sem mig var búið að langa í í
einhvern tíma og ég á þær ennþá.“
Þórunn segir að fermingin sé
hluti af því að þroskast. „Og ef
maður er trúaður þá er þetta eitt
hvað sem maður gerir.
Ég vildi að ég myndi
meira eftir þessum degi og
að ég hefði ekki verið svona
kvíðin þar sem ég þurfti að
lesa í kirkjunni. Ég var eig
inlega reið. Ég var fúl út í
prestinn að hafa látið mig
gera þetta.“
Það var svo fyrir stuttu sem móð
ir Þórunnar lét hana fá blúndu
hanskana, klútinn og sálmabókina
sem hún var með í fermingunni.
„Og það geymi ég.“ Svava Jónsdóttir
„Ég var fúl út í
prestinn að hafa
látið mig gera þetta.
Þórunn Högnadóttir
„Og ef maður er trúaður
þá er þetta eitthvað
sem maður gerir,“ segir
Þórunn sem kveið fyrir
fermingardeginum því
hún átti að fara með vers
í athöfninni.
Fín í bleiku „Mér fannst ég vera voðalega fín,“ segir Þórunn Högnadóttir sem klæddist bleiku pilsi og bleikum jakka, en blómin reif hún úr hárinu, enda strax með ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Fáránlega
hollt á borðið
Það eru alltaf einhverjir gestir
sem lifa ógurlegu meinlætalífi og
geta ekki hugsað sér að borða þær
dýrðlegu (og oft og tíðum hitaein
ingaríku) veitingar sem einkenna
hina einu sönnu fermingarveislu.
Svo eru aðrir sem einfaldlega
mega ekki borða rjómatertur
eða sykurmikinn mat heilsunnar
vegna.
n Það er því ekki
úr vegi að huga
að því og bjóða
upp á einfalda
og holla smárétti
svona rétt til að
friða samviskuna.
n Einfalt er að
skera nið
ur grænmeti
og bera fram
með púrru
lauksídýfu.
Ídýfan er einföld.
Það fer ein matskeið
af púrrulauksúpudufti í eina dós
af sýrðum rjóma. Hún er sett í skál
og skálin svo sett til hliðar eða á
bakka og hún umkringd græn
meti. Það tekur tíma að skera
grænmetið en til dæmis væri hægt
að nota gúrkur, gulrætur, paprikur
í öllum litum og kirsuberjatómata.
n Ávaxtabakkar eru
líka kærkomin til
breyting frá hna
llþórum. Á þess
um árstíma er oft
hægt að fá margar
gerðir af melón
um og hægt að skreyta
með þeim og niðurskornum an
anas auk vínberja.
n Þá er sniðugt að
útbúa humm
us og bera fram
með fallegu
hrökkbrauði.
Hummus er
frekar ódýrt að
gera sjálfur og hægt
að finna mjög einfaldar uppskrift
ir á netinu.
Hera Sóley Sölvadóttir „Það verður
fjólublátt og túrkisblátt þema og það verður
alls konar skraut, meðal annars skreyttar
krukkur á borðunum.“