Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Page 30
2 Fermingar 22.–24. febrúar 2013 Helgarblað Trommusett í fermingargjöf n „Maður var dubbaður upp í kjólföt“ Þ að er orðið svo langt síðan ég fermdist; drottinn minn dýri – 65 ár,“ segir Ragnar Bjarnason þegar hann er beðinn um að rifja upp fermingar- daginn. „Þetta var mjög mikill spenningur og ég gekk til prestsins sem hefur líklega verið séra Bjarni í Dómkirkjunni; það hefur verið séra Bjarni – þessi frægi prestur sem var í Dómkirkjunni. Alveg yndislegur húmoristi og góður prestur. Þetta var yndislegur dagur og ógleymanlegur en það er bara svo langt síðan að maður man ekki smáatriði. Ég man eftir fermingarveisl- unni sem var haldin heima hjá okkur í Meðalholtinu. Maður var dubbaður upp í kjólföt og var voða flottur. Ég man að mér var gefið trommusett í fermingargjöf og eftir það byrjaði ég að spila á skólaböllum; við vor- um orðnir fullorðnir menn eftir ferminguna og ég gat snúið mér að hugðarefnunum sem eru tónlistin.“ Ragnar segist vera trúaður – hann bað bænir áður en hann fermdist og það gerir hann enn. „Ég hafði mína barnatrú og mamma passaði upp á að við bæðum þegar við vorum krakkar.“ Uppáhaldsbæn: „Það er Faðir vorið. Svo bið ég persónulega. Ég fer töluvert í kirkju bæði til að syngja þar í brúðkaupum og jarðar- förum og til að hlusta enda eru margir prestar góðir vinir mínir.“ G-lykill á tertu n Sprellaði með félaga sínum í fermingarveislunni E yþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður segist hafa verið alinn upp við að biðja bænirnar. „Fermingin hafði því mikla þýðingu í mínum huga. Mér fannst ég vera kominn í, eins og gamla máltækið segir, full- orðinna manna tölu; eins og mað- ur væri kominn aðeins ofar en að vera bara krakki. Svo var þetta stað- festing á skírninni.“ Svo styttist í ferminguna í Dalvíkurkirkju fyrir áratug. „Þetta var mikið dæmi. Það voru versluð ægileg fermingarföt, nátt- úrulega löngu fyrr, skór og allar græjur; ég var græjaður upp í það fínasta. Það var eitthvað sérstakt við þessi jakkaföt; mig minnir að þetta hafi verið dökkbrún flauelsjakkaföt. Þetta var voða fínt.“ Ritningarorðin? „Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mín- um.“ Fermingarveislan var svo haldin í íþróttahúsi Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. „Það var bæði matur og kaffi í veislunni og lagðist öll fjöl- skyldan á eitt með kökur og kaffi og að græja kjöt, sósu, salat og allan pakkann. Það var boðið upp á kransaköku og marsípanhúð- aða fermingartertu; mig minn- ir að hún hafi verið skreytt með einhverjum tónlistarmerkjum svo sem g-lykli. Hvítur kúlu-Makki Ég var farinn að gaula helling á þessum tíma og var í bílskúrs- hljómsveitum og skreytti ég borðið með snúrum, míkró- fónum og geisladiskum. Þetta lúkkaði allt rosa flott. Þetta voru brenndir diskar með hljómsveitunum sem ég var í og lög með þeim – til dæm- is The Mashed Bananas og Reeflex sem var fyrsta hljómsveitin sem ég var í. Okkur fannst þetta rosa smart. Mig minnir að ég hafi sprellað eitthvað með félaga mínum í veislunni en við vorum á þessum tíma mikið með Ladda-eftirhermu- grín.“ Hvað með fermingargjafir? „Mig minnir að ég hafi aðal- lega fengið pening; ég held ég hafi fengið hellingspen- ing út úr þessu. Ég átti fyrsta i-Makkann, hvíta kúlu með hreyfiskjá og fylgdi með klippi- forrit, og svo keypti ég vídeó- kameru fyrir fermingarpen- ingana til þess að geta búið til stuttmyndir. Svo fékk ég með- al annars útivistarfatnað, bak- poka og kíki í fermingargjöf.“ Eyþór Ingi segir að hann hafi fundið fyrir ákveðinni til- finningu þennan dag. „Þetta voru einhver tímamót í lífinu og táknuðu breytingar í huga mér og jafnvel annarra og gagnvart guði. Mér fannst ég einhvern veginn vera búinn að viður- kenna trú mína af því að þegar ég var barn þá hafði ég ekkert um það að segja – þá kom mað- ur í heiminn og prestur skírði mann. Þarna var maður kom- inn með meira sjálfstæði og samþykkti trúna sem einstaklingur. Þetta var eins og grunnurinn að því að byrja að verða fullorðinn.“ n „Við vorum á þessum tíma mikið með Ladda- eftirhermugrín. Eyþór Ingi Gunnlaugsson „Þetta voru einhver tímamót í lífinu og táknuðu breytingar í huga mér og jafnvel annarra og gagnvart guði.“ Fermingarmyndin „Það voru versluð ægileg ferm-ingarföt, náttúrulega löngu fyrr, skór og allar græjur; ég var græjaður upp í það fínasta.“ Úr fermingarveislunni „Ég man að mér var gefið trommusett í fermingargjöf og eftir það byrjaði ég að spila á skólaböllum; við vorum orðnir fullorðnir menn eftir ferminguna og ég gat snúið mér að hugðar-efnunum sem eru tónlistin.“ Trúaður „Ég fer töluvert í kirkju bæði til að syngja þar í brúðkaupum og jarðarförum og til að hlusta enda eru margir prestar góðir vinir mínir,“ segir Ragnar Bjarnason. Mynd sIGTryGGur arI Minningarnar varðveittar Flestir vilja varðveita minn- ingarnar frá stóra deginum og það er hægt að gera á ýmsan hátt. Til dæmis með myndatöku, gestabókum, kertum og servíett- um. Nunnurnar í Karmelklaustr- inu í Hafnarfirði bjóða upp á fal- leg sérmáluð kerti, gestabækur og kort fyrir stóra daginn sem þá eru merkt með nafni fermingar- barnsins og dagsetningu ferm- ingarinnar og myndskreytt fal- lega. Kertin hafa verið sérstaklega vinsæl til margra ára og margir eiga enn kertin frá fermingardegi sínum. Gjöf sem gefur Sumir halda því fram að ferm- ingarbörn fermist bara fyrir gjaf- irnar. Líklega eru ástæður ferm- ingarinnar ólíkar en ef gefa á gjöf því ekki að gefa fermingargjöf sem gefur – öðrum? Inni á heimasíð- unni gjofsemgefur.is má finna gjaf- ir sem hjálpa öðrum. Þar er hægt að kaupa gjafir frá 1.600 krónum og upp í 180 þúsund. Gjafirnar koma öðrum til hjálpar og geta stuðlað að bættri heilsu barna, veitt þeim tækifæri til menntunar, útvegað þeim húsaskjól, húsbúnað eða annað sem kemur að góðum notum. Fjölmargir möguleikar eru inni á heimasíðunni og nokkuð víst að þetta er gjöf sem gleður og gefur af sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.