Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Side 42
14 Fermingar 22.–24. febrúar 2013 Helgarblað Létt og ferskt á fermingardaginn n Einföld förðun er best að mati Hörpu Káradóttur hjá MAC É g ráðlegg fermingarstúlkum og foreldrum þeirra að leyfa æskuljómanum að vera í for- grunni á fermingardaginn. Í dag má fá mikið af vönd- uðum en léttum farða og lituðu dagkremi sem hleypir ljóman- um í gegn,“ segir Harpa Káradóttir, förðunarfræðingur hjá MAC. Ferm- ingarstúlkurnar Mist Grönvold og Harpa Líf Hallgrímsdóttir settust í stólinn hjá Hörpu og fengu förðun við hæfi fermingarstúlkna. Lítið er betra „Á Mist notaði ég litað dagkrem, bleikan kinnalit og setti gljáa á kinnbein og augu. Ég vildi draga fram grænan lit í augum hennar og því notaði ég bronslit og annan ljósari með.“ Harpa notaði fáein stök gervi- augnahár og festi á báðar stúlkurn- ar. „Það getur verið fallegt að nota eitt og eitt hár til þess að draga fram fegurð augnanna. Ég er hrifnari af því en að nota of mikið af maskara. Lítið er betra,“ leggur hún áherslu á. Fáar en vandaðar vörur Á nöfnu sína notaði Harpa skemmti- legan gylltan augnlínupenna. „Mér fannst þetta litla smáatriði draga fram dökka augnumgjörð hennar og ramma hana inn. Þetta er fín- legt aukaatriði sem er líka svolítið hátíðlegt. Ég notaði svo léttan farða á hana og eins og á Mist notaði ég bleikan kremkinnalit. Mér finnst góð kaup í slíkum á fermingarstúlk- ur þar sem nota má hann bæði á augu og varir. Ég bendi foreldr- um á að nota frekar færri en fleiri förðunarvörur en velja vel. Velja léttan farða en alls ekki þungan og ljósa liti sem eru auðveldir í notkun. Það er líka fallegra.“ Æskan er falleg Harpa fær stundum til sín ferm- ingarstúlkur sem biðja um ráðgjöf. „Þær hlusta lítið á mæður sínar,“ segir hún og hlær. „En ég gef þeim góða ráðgjöf ef þær koma til mín. Ég bendi þeim á að æskan sé falleg. Þær eigi ekki að fela hana og ég reyni að sýna þeim fram á hið sanna, sem er að húð þeirra er fallegust á þess- um tíma, sama hvað þær halda um sig. Þegar þær verða 25 ára eiga þær eftir að horfa til baka og sjá að þetta var satt. Förðun á aldrei að fela, hún er til þess að hafa gaman af,“ segir Harpa. Allir búa yfir fegurð Hún segist stundum taka eftir óöryggi þeirra og reynir þá að sýna þeim hvernig þær geta leitað að því sem er jákvætt í eigin fari. „Það er hollt að skoða sig með jákvæðum augum og leggja áherslu á kostina. Allir búa yfir fegurð og hana má alltaf draga fram. Ég sendi stelpur sem koma til að kaupa meik oft með léttan hyljara til baka og segi þeim að njóta þess að vera ungar.“ n Mist Mist er með fallega húð og brúngræn augu. Harpa leggur áherslu á að foreldrar ferm­ ingarbarna noti tækifærið. Myndir PressPHotos.biz Harpa Líf Gylltur augnlínupenni dregur fram brún og falleg augu Hörpu Lífar. Lítið smá­ atriði sem skiptir máli. Nokkur ráð n Notið léttan farða eða litað dagkrem n Ekki nota mikið púður n Ekki nota mikla skyggingu á augu n Notið létt gloss á varirnar fremur en varalit n Kaupið fáar en vandaðar vörur n Notið ekki fleiri en tvo augnskugga, einn ljósan og einn sem hæfir augnlit n Notið lítið af maskara n Ef notaður er hyljari, veljið léttan n Kaupið ljósan kinnalit með bleikum tóni og berið lítið og létt á kinnar n Nota má glært augnháragel í stað maskara, bæði á augnhár og augn­ brúnir „En ég gef þeim góða ráðgjöf ef þær koma til mín. Ég bendi þeim á að æskan sé falleg. Léttir litir Á fermingardaginn er viðeigandi að nota fáar en góðar vörur. Léttan farða og ljósa liti sem draga fram það besta í fari hverrar stúlku. bleikir og gylltir tónar Harpa vildi draga fram grænan lit í augum Mistar og notaði til þess kopartóna. Á húðina notaði hún létt dagkrem og á kinnar bleikan kinnalit. Frumlegar og heimagerðar Hægt er að spara með því að baka sjálfur. Verð á kransaköku er afar mismunandi eftir bakaríum og æ fleiri kjósa að gera hana sjálfir heima við. Í sumum bakaríum er hægt að kaupa kransakökumassa eða deig og í Húsasmiðjunni og á fleiri stöðum má kaupa mót fyrir kransa kökur þótt margir bregði á það ráð að fá slík mót lánuð. Það má skreyta kransakökur á mismunandi hátt. Það má hand- sprauta á þær súkkulaði eða flór- sykurblöndu. Sumir skreyta með Mackintosh‘s-konfekti þar sem það er skrautlegt og einhverjir raða síðan kransakökubitum í kring á bakka. Sumir nota þetta allt við að skreyta og jafnvel eitt- hvað fleira eins og knöll. Litlar kökur og önnur form Ýmis önnur form má reyna en hinn hefðbundna turn. Það má einfaldlega laga litlar en fal- legar kökur úr kransakökumassa, skreyta með marsípanblómum, súkkulaði og berjum. Þá má reyna við skemmtilegri form, hér að ofan má til dæmis sjá köku sem er hefur á sér lag fjögurra blaða smára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.