Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2013, Side 49
Viðtal 33Helgarblað 22.–24. febrúar 2013 frá sama tíma og þá standa þeir í lopaklæðum fyrir utan torfbæ. Á meðan ættingjar mínir frá Srí Lanka eru í öllu ríkulegri aðstæð- um, hefðarklæddir og með þjóna. Þetta er allt saman mjög skrýtið,“ segir hún og hlær létt. „Ég hef því miður ekki farið á þessar slóðir en mig langar rosalega mikið að fara,“ segir hún. „Einhvern tímann geri ég það.“ Stelpugenið Lovísa og móðir hennar eru afar nánar. „Við erum rosalega góðar vinkonur, hún er sennilega ein krúttlegasta mann- eskja sem ég þekki núna. Við að minnsta kosti náum rosalega vel saman og höfum alltaf gert. Æska mín með henni var yndisleg, hún verður alltaf svolítil stelpa. Amma mín í móðurætt var þannig líka og ég býst við að ég sé það líka. Það er eitthvað unglegt stelpugen í ættinni sem ég vona að ég búi líka að, þó að ég taki líkamlegum þroskamerkjum fagnandi,“ segir hún. „Amma er rosa- lega ung í anda, hún er í betra formi en ég, og ég vona að ég verði jafn hraust og hún á efri árum.“ Giftist besta vini sínum Lovísa hóf tónlistarferil sinn með vinum sínum í Benny Crespo’s Gang, þeim Helga Rúnari, Birni Sig- mundi og Magnúsi Öder. Sveitin er enn starfandi og þau eru í upptökum þessa dagana á milli anna. „Þetta var ótrúlega skemmtilegt tímabil, og fyrsta skiptið sem ég fór af alvöru að vinna í frumsaminni tónlist. Við erum eiginlega ennþá að þótt að við séum ekki búin að spila lengi saman. En við erum með áætl- anir og erum búin að vera að semja fín lög. Eiginlega þá er það satt best að segja ótrúlega pirrandi hvað við erum búin að fresta því lengi að vinna lögin meira, þau eru svo fín.“ Hún og Magnús, bassaleikari sveitarinnar, voru gift um tíma. Sam- bandið gekk ekki upp og þau skildu. „Þetta er ekkert stórmál. Við vorum ung og hugrökk. Við giftum okkur mjög ung og skildum líka mjög ung. Við ákváðum að halda vináttunni og sem betur fer, því við vinnum enn þann dag í dag saman að tónlist. Samband okkar þróaðist mjög fljótt í vinasamband, það má eiginlega segja að ég hafi gifst besta vini mín- um.“ Nýtt líf Lovísu Lovísa varð stjarna á skömm- um tíma. Lag sem hún setti inn á Myspace undir nafninu Lay Low vakti svo mikla hrifningu að ekki varð aftur snúið. Hún átti erfitt á þessum tíma – árið var 2005. Hún var nýstigin upp úr erfiðum veik- indum og nýskilin við besta vin sinn. Á þessum tíma sagði Lovísa einnig ástvinum sínum frá samkyn- hneigð sinni og velti mikið fyrir sér tilgangi lífsins. Hún leitaði á náðir tónlistarinnar við að finna tilfinn- ingum sínum farveg og á næturnar vakti hún og samdi lög. Lay Low varð til og út kom metsöluplatan Please Don´t Hate Me er seldist í yfir tíu þúsund eintökum. Hún segist forðast að nota hug- takið að koma út úr skápnum. Hún hafði einfaldlega ekki fundið rétt- an farveg fyrir tilfinningar sínar fyrr en á þessum tíma. „Þetta var búið að vera að böggast í mér svolítið lengi. Ég hafði ekki fundið réttu leiðina til þess að koma þessu frá mér. Þetta var svolítið erfitt að því leytinu til að ég var ennþá í sam- bandi við Magnús þegar þetta var allt að koma í ljós. Ég var honum al- gjörlega trú, ég var ekkert að halda framhjá til þess að kanna málin „Ég hafði átt nokkur ár sem ég var rosalega veik. Þau ár voru eins og þeytivinda. Fluttar í sveitina „Okkur langaði að losna úr þessum aðstæðum og vorum jafnvel að pæla í því að flytja út,“ segir Lovísa en hún og kærasta hennar eru fluttar úr miðborginni í sveitina. myNd eyþór árNasoN Í fangi langömmu Frá vinstri: Halldóra Geirsd óttir, Lovísa í fangi langömmu sinnar, Þórunn Elísabet Guðnadóttir, amma Lovísu , og Sigrún Einarsdóttir, móðir hennar. Forfeður á srí Lanka Hér eru langamma og afi Lovísu til hægri og langalangamma og og afi hennar í miðju. „Amma mín í föðurætt er þarna yngsta barnið sitjandi uppi á borði næst lengst til vinstri,“ segir Lovísa sem hefur gaman af því að grúska í gömlum myndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.