Ægir - 01.04.2013, Page 9
9
S J Ó M A N N A D A G U R I N N
Skoppa og Skrítla, skemmti-
sigling fyrir alla fjölskylduna,
töframaður, sjópulsan vinsæla
verður í höfninni, hægt að fá
reiðtúr með mótorhjóli, fara á
hestbak, vatnaboltar, sprell-
leiktæki, hoppikastalar og
trúðar verða á svæðinu og
margt fleira. Þá verður
keppnin Sterkasti maður á Ís-
landi á sínum stað en hún
hefur notið mikilla vinsælda.
„Við reynum að bæta um-
gjörð hátíðarinnar á hverju ári
í samvinnu við þá fjölmörgu
aðila sem koma að undirbún-
ingi hennar. Við vonumst
auðvitað til að fá sem flesta
gesti í heimsókn,“ segir Þor-
steinn og bendir á að nóg
pláss sé á glæsilegu tjald-
svæði í bænum.
Margt fleira er á boðstól-
um í Grindavík alla sjó-
mannadagshelgina. Allar
helstu upplýsingar um hátíð-
ina er hægt að nálgast á
www.sjoarinnsikati.is.
Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein helsta sjómannadagshátíð landsins.