Ægir - 01.04.2013, Side 18
18
30 árum síðan í tengslum við
rannsóknarverkefni í Háskóla
Íslands, þar sem kannaðir
voru möguleikar á að nýta
rafeindatækni við vigtun og
skráningu í sjávarútvegi.
Fyrsta rafeindavogin sem
kom á markað var notuð til
að að vigta fisk, síðar kjúk-
ling og annað kjöt. Í dag
framleiðir Marel lausnir til
vinnslu á fiski, kjöti, kjúklingi
og unnum kjötvörum.
Eins og í flestum sprotafyr-
irtækjum voru aðeins örfáir
starfsmenn sem lögðu krafta
sína í að gera upphaflegu
hugmyndina að veruleika, en
í dag eru starfsmenn Marel
ríflega 4.000 um allan heim.
Á Íslandi starfa um 500
manns og þar af um 200 í
framleiðslu. Marel er með um
15 framleiðslueiningar víðs-
vegar um heiminn, hverja
með sína sérstöðu. Starfsemi
Marel á Íslandi er því einung-
is einn tíundi af heildinni.
„Framleiðsla á þeim lausn-
um sem Marel selur út um
allan heim byggir á því að
við höfum höfum fólk með
iðnmenntun. Dæmi um þá
menntun sem fyrirtækið þarf
á að halda eru stálsmíði,
málmsuða, rennismíði, vél-
virkjun, rafvirkjun og raf-
eindavirkjun.
Þessi þörf fyrirtækisins fyr-
ir iðnmenntað fólk er megin-
ástæða þess að við stefnum á
að setja skólann á laggirnar.
Kennslan mun að stórum
hluta fara fram í vinnutíma
starfsmannsins, það teljum
við að ætti að hvetja okkar
fólk enn meira til dáða,“ segir
Þórður en Mímir símenntun
verður helsti samstarfsaðili
Marel í verkefninu.
Úr sex milljónum í 112
milljarða!
Marel er stærsta almennings-
hlutafélag landsins og það
félag sem lengst hefur verið á
íslenska hlutabréfamarkaðn-
um. Fyrirtækið er í dag mark-
aðsleiðtogi á heimsvísu í þró-
un og framleiðslu á háþró-
uðum búnaði og kerfum til
vinnslu á fiski, kjöti og kjúk-
lingi. Tekjur félagsins árið
1983 voru rúmar 6 milljónir
króna en á síðasta ári ríflega
112 milljarðar kr. Þar af
myndast 99% af veltu utan Ís-
lands.
Framleiðsla Marel á Íslandi
er byggð upp á 12 fram-
leiðsluliðum. Hugmyndin á
bak við liðin á skírskotun til
íþróttaliða þar sem þar sem
hver starfsmaður er með
skýrt hlutverk og hvert lið er
leitt af fyrirliða.
Starfsfólk Ísfells óskar
öllum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
til hamingju með
Sjómannadaginn.
HAFNARFJÖRÐUR
SAUÐÁRKRÓKUR HÚSAVÍK
AKUREYRI
ÞORLÁKSHÖFN
VESTMANNAEYJAR
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
S T A R F S M E N N T U N
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Sími 422 2440 - GSM 899 7807 - Fax 467 1203
Marel veltir í heild um 112 milljörðum króna á ári. Fyrirtækið fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir.