Ægir

Volume

Ægir - 01.04.2013, Page 56

Ægir - 01.04.2013, Page 56
56 Wise hefur undanfarin ár lagt mikinn kraft á að þróa eina af mest seldum vörum sínum, WiseFish, sem flestir ættu nú að vera farnir að þekkja bæði innanlands sem erlendis og er um þessar mundir í mikilli sókn á erlendum mörkuðum. Ný útgáfa er í vinnslu sem verður umbylting og samræmd nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV 2013 sem kom út á Íslandi fyrir skömmu. WiseFish er sérsniðin lausn fyrir sjávarútveginn, byggð á Dynamics NAV við- skiptahugbúnaði sem er í notkun hjá um hundrað þús- und fyrirtækjum í heiminum. Lausnin hentar öllum stærð- um fyrirtækja og er hönnuð til að sinna þörfum sjávarút- vegsfyrirtækja. WiseFish spannar alla virð- iskeðju sjávarútvegsins og inniheldur: gæðastjórnun, birgðir og vöruhús, fiskeldi, útgerð og kvóta, vinnslu og sölu og útflutning. Hvort starfsemi fyrirtækisins nær til allra sviða virðiskeðjunnar eða sérhæfir sig í ákveðnum sviðum er WiseFish hentug lausn. Kerfið hefur beina tengingu við Innova hjá Mar- el og Trackwell sem sendir upplýsingar beint frá sjó. Von er á nýrri útgáfu, Wise Fish 7.0, næsta haust sem er hlutverkamiðuð og sniðin af störfum hvers og eins hvað varðar sýn og að- gengi að upplýsingum. Sókn á erlendum mörkuðum Wise er í mikilli sókn á er- lendum mörkuðum og hefur sótt fjölda sýninga víðs vegar um heiminn til að kynna lausnir sínar. Má þar helst nefna Convergence í New Orleans, Boston Seafood Show, European Seafood Ex- position í Brussel og North Atlantic FishFair í Færeyjum. Nýlega kom sendinefnd á vegum Háskólans á Akureyri til Íslands þar sem helstu full- trúar nýsjálensks sjávarútvegs kynntu sér lausnir sem ís- lensk sjávarútvegsfyrirtækja eru að nýta sér í dag. Þeir heimsóttu fjölmörg fyrirtæki til að afla sér upplýsingar um nýjustu lausnir og tækifæri í hugbúnaði, tækni, vinnslulín- um og nýtingu íslensks sjáv- arfangs. Wise í samstarfi við Marel Þróun á WiseFish og aukning á erlendum mörkuðum Þ J Ó N U S T A

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.