Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Blaðsíða 17
Annáll 17Áramótablað 30. desember 2011
September
Hestaníðingar
í Kjós
n Slösuð hryssa fannst í Laxárdal í
Kjós. Við skoðun dýralæknis komu í
ljós áverkar undir taglrót. Var hryss-
an bólgin, blóðug og skorin, greini-
lega af mannavöldum. Þetta var
þriðja tilfellið þar sem slíkir óeðlileg-
ir áverkar fundust á hryssu úr sama
hestahólfi í Kjósinni. Þremur dögum
síðar bárust fréttir af annarri hryssu í
Kjós sem beitt hafði verið sams kon-
ar níðingsskap. Hestaníðingarnir eru
enn ófundnir.
Sagði sig úr
landsliðinu
vegna Manuelu
n „Undanfarið ár hef ég
verið í baráttu utan
fótboltavallarins og
því miður hef ég af
þeim sökum ekki
getað gefið hundrað
prósent af mér til
landsliðsins,“ sagði
Grétar Rafn Steinsson,
atvinnumaður í fótbolta,
þegar hann tilkynnti fjölmiðlum að
hann myndi ekki gefa kost á sér í ís-
lenska landsliðið. Ástæðan var erf-
iður skilnaður við fegurðardrottn-
inguna Manuelu Ósk Harðardóttur.
11 ára drengur
svipti sig lífi
23. september
n Sá voveiflegi atburður átti sér stað
í Sandgerði þann 23. september að
11 ára drengur, Dagbjartur Heið-
ar Arnarsson, svipti sig lífi. Hann
hafði mátt þola einelti frá 6 ára aldri.
Hann glímdi við þunglyndi og ein-
hverfueinkenni, var viðkvæmur og
þoldi illa breytingar og áreiti. Mikil
sorg ríkti í Sandgerði vegna málsins.
Thelma tilkynnti
Jónínu Ben til
lögreglu
n Thelma Ás-
dísardótt-
ir, ráðgjafi
fórnarlamba
kynferðisof-
beldis, sagðist
hafa fengið
hótunarsímtal
frá Jónínu Benedikts-
dóttur, eiginkonu Gunnars Þor-
steinssonar í trúfélaginu Krossinum.
Tilefni símtalsins var að Thelma
veitti sjö konum, sem sökuðu Gunn-
ar um kynferðisofbeldi, ráðgjöf.
Thelma tilkynnti lögreglu um
atvikið. Jónína þvertók fyrir að
hafa hótað Thelmu.
Greifynja
kærði morð-
tilraun í Selá
n Ítalska greifynjan Raimonda
Lanza Branciforte di Trabia lagði
fram kvörtun til sýslumannsins á
Seyðisfirði og bað hann um að rann-
saka morðtilraun gegn sér. Sagði
hún að Yasuji Sugai, japanskur út-
gefandi og veiðimaður, hefði reynt
að drekkja henni í Selá í Vopnafirði
í júlí. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
sagði að málið yrði rannsakað.
Níðingur
gekk laus
n Barnaníðingur í Vestmannaeyj-
um gekk laus í um það bil eitt ár eftir
að myndir sem hann tók af átta ára
stjúpdóttur sinni komust í hendur
lögreglu í fyrrasumar. Á heimili hans
fundust tæplega níu þúsund ljós-
myndir og rúmlega 600 hreyfimyndir
sem sýndu börn á kynferðislegan og
klámfenginn hátt. Ekki var farið fram
á gæsluvarðhald yfir manninum sem
var handtekinn klukkan níu að kvöldi
og látinn laus aftur um miðnætti.
Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði
manninn í gæsluvarðhald nú í sumar
og Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð.
Maðurinn var dæmdur í sjö ára fang-
elsi fyrir brot gegn þremur stúlkum.
Þrýst á biskup að
hætta
n Prestafélag Íslands bauð Karli
Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, og
Pétri Hafstein, forseta kirkjuþings,
á sinn fund þar sem fjallað var um
niðurstöður rannsóknarnefndar-
innar. Prestar sem þar voru saman-
komnir tjáðu sig milliliðalaust við
biskup og sumir gengu svo langt að
segja að Karli bæri að segja af sér
vegna málsins.
Athvarf fyrir
þolendur man-
sals og vændis
n Stígamót stofnuðu athvarf fyrir
þolendur mansals og vændis. Húsið
fékk nafnið Kristínarhús til minning-
ar um konu sem var Stígamótakon-
um mikill innblástur í baráttunni
gegn vændi og ofbeldi.
Október
„Ég vil sofna
að eilífu“
n Elsa Margrét Víðisdóttir, móðir
Gabríels Víðis níu ára nemanda í Ár-
bæjarskóla, greindi frá einelti sem
sonur hennar varð fyrir í skólanum.
Gabríel Víðir glímir við margvísleg
vandamál, svo sem ódæmigerða
einhverfu, ADHD, þroskaröskun,
lina vöðva og málstol. Honum leið
orðið svo illa að hann bað móður
sína um öll lyfin sín og sagði: „Ég vil
sofna að eilífu.“
Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Ár-
bæjarskóla, sagðist ekki geta tjáð
sig um málefni einstaklinga en í
skriflegu svari sem hann sendi sagði
hann að tekið væri á eineltismálum
með öflugum hætti. Málið var til
umfjöllunar hjá menntasviði borgar-
innar og félagsþjónustunni í Árbæn-
um en því lauk með því að Gabríel
Víðir var færður til um skóla.
Dæmdur fyrir að
njósna um Siv
28. október
n Skilnaður Sivjar Friðleifsdóttur al-
þingismanns og Þor-
steins Húnboga-
sonar komst
aftur í fjölmiðla
þegar hún
kærði hann fyr-
ir njósnir. Hann
var dæmdur
sekur um að hafa
komið ökurita fyrir í
bifreið sem hún hafði til umráða og
þannig fylgst með ferðum hennar.
Upp komst um Þorstein þegar Siv
furðaði sig á því hvernig Þorsteinn
gæti vitað allt um ferðir hennar og
lét skoða bílinn. Við leit í bílnum
fannst ökuritinn.
Gunnar Rúnar
dæmdur í
16 ára fangelsi
13. október
n Hæstiréttur dæmdi Gunnar Rúnar
Sigurþórsson í 16 ára fangelsi fyrir
morðið á Hannesi Þór Helgasyni.
Gunnar Rúnar hafði áður verið úr-
skurðaður ósakhæfur í Héraðsdómi
Reykjaness. Taldi dómurinn Gunnar
Rúnar vera sakhæfan og að fullu
ábyrgan gjörða sinna.
Páll ráðinn til
Bankasýslunnar
n Páll Magnússon, bæjarrit-
ari Kópavogs, var ráðinn forstjóri
Bankasýslu ríkisins. Ráðningin
var harðlega gagnrýnd og stjórn
Bankasýslunnar baðst lausnar frá
störfum vegna málsins. Páll var að-
stoðarmaður iðnaðar- og viðskipta-