Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Blaðsíða 86
86 Fólk 30. desember 2011 Áramótablað
Hneykslismál
stjarnanna
Stjörnurnar eiga sínar slæmu
stundir eins og við hin og eiga það
til að fara út af sporinu - enda
bara mannleg. Þessar stjörnur
lentu í bobba árið 2011.
Arnold Schwarzenegger
Framhjáhald og lausaleiksbarn
Hasarleikarinn og fyrrverandi ríkisstjóri Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum,
Arnold Schwarzenegger og leikkonan Maria Shriver skildu á árinu. Þau til-
kynntu um skilnaðinn í maí og sögðust skilja í góðu. Fljótlega spurðist þó út að
ástæðan væri ekki bara deilumál og kulnuð ást. Skilnaðarorsökin ku hafa verið
framhjáhald kappans með konu sem hafði starfað fyrir fjölskylduna lengi,
Mildred Patriciu Beana. Það var ekki bara meint framhjáhald sem fór með
hjónabandið heldur líka ávöxtur framhjáhaldsins, sonur sem í dag er rúmlega
10 ára. Í kjölfarið komu fram fleiri sögur af meintu framhjáhaldi kappans
og þurfti hann í kjölfarið að hætta við fyrirhuguð verkefni, meðal annars
þáttaröðina Governator.
Charlie Sheen
Með tígurblóð í æðum
Segja má með sanni að árið 2011 hafi ekki beint verið besta
árið í lífi leikarans Charlie Sheen. Charlie skráði sjálfan sig í
meðferð í enda janúar eftir að hafa verið lagður inn á spítala
með alvarlega kviðverki daginn áður. Eftir að hann kom úr
meðferðinni mætti hann í fjölda viðtala þar sem hann lét
furðulega og talaði illa um framleiðanda þáttanna Two and
a Half Men, Chuck Lorre auk þess sem hann lét AA-samtökin,
Thomas Jefferson og fyrrverandi eiginkonu sína Brooke
Mueller heyra það. Hann kallaði Chuck Lorre meðal annars
trúð, heimskan lítinn mann og orm í beinni útsendingu.
Hann toppaði þetta svo með því að fara í morgunþáttinn
Good Morning America þar sem hann heimtaði hærri laun.
Nokkrum dögum eftir viðtalið gafst fjölmiðlafulltrúi Sheen
upp og hætti. Hann var ekki sáttur við það, sagði að hann
gæti ekki hætt því hann væri rekinn. Í mars sótti fyrr-
verandi eiginkona og barnsmóðir Sheen, Brooke Mueller, um
nálgunarbann á hann og fékk fullt forræði yfir tvíburasonum
þeirra en lögreglan fjarlægði þá af heimili Sheen. Eftir að
Sheen var rekinn úr Two and a Half Men þá hóf hann útsend-
ingu á sínum eigin þætti frá heimili sínu þar sem hann bjó
þá með tveimur konum í einu. Þátturinn bar nafnið Sheeń s
Korner og svo var hann líka öflugur á samskiptavefnum
Twitter þar sem hann bjó til fræga frasa eins og „Winning“ og
„Bi-Winning“ og sagðist vera með tígurblóð.
Christina Aguilera
Handtekin fyrir
að vera drukkin
Söngdívan Christina Aguilera var hand-
tekin 1. mars fyrir að vera undir áhrifum
áfengis á almannafæri og kærastinn
hennar var á sama tíma handtekinn fyrir
að keyra drukkinn. Ástand söngkonunnar
var mjög slæmt þegar hún var handtekin,
svo slæmt að hún vissi hvorki í þennan
heim né hinn. Reyndar sást æ oftar til
Aguilera í þessu ástandi á árinu sem senn
er á enda. Hún var til að mynda í mjög
slæmu ástandi í fertugsafmæli Jeremy
Renner í janúar og hegðun hennar á
Super Bowl fyrr á þessu ári þótti nokkuð
vafasöm. Hennar nánustu munu vera
áhyggjufullir vegna aukinnar drykkju
hennar og vilja að hún skrái sig í meðferð.
Lindsay Lohan
Mikið um að vera
Lindsay Lohan komst enn á ný á forsíður blaðanna á
árinu. Hún byrjaði árið í meðferð á hinu fræga Betty
Ford-meðferðarheimili. Hún gerði allt vitlaust þar, fór í
dagsleyfi og þegar hún kom til baka þá neitaði hún að
blása í áfengismæli. Hún var einnig sökuð um að hafa
stolið síma af hjúkrunarkonu þar og veitt henni áverka
um leið. Það olli miklum usla þegar hún var sökuð
um að hafa stolið hálsfesti í strandbænum Venice en
þjófnaðurinn náðist á myndband. Hún heldur þó fram
sakleysi sínu en það hefur ekki enn verið dæmt í málinu.
Nicholas Cage
Handtekinn
eftir rifrildi
Leikarinn Nicholas Cage komst
í fréttirnar á árinu þegar hann
var handtekinn fyrir að ráðast á
eiginkonu sína. Leigubílstjóri varð
vitni að því þegar Cage og eiginkona
hans, Alice, voru að rífast úti á götu
í New Orleans. Rifrildið fór úr bönd-
unum og leigubílstjórinn hringdi
á lögregluna þegar hann sá Cage
ýta við eiginkonu sinni. Cage var í
kjölfarið handtekinn en á endanum
látinn laus gegn hárri tryggingu.
Justin Bieber
Meintur sonur Biebers
Á haustmánuðum sakaði kona að nafni Mariah Yater ungstirnið Justin
Bieber um að vera faðir nokkurra mánaða sonar síns og heimtaði að hann
færi í faðernispróf. Aðdáendur Biebers fengu áfall enda stjarnan aðeins 17
ára. Ásakanirnar reyndust ekki á rökum reistar og Yater dró þær til baka.
Asthon Kutcher
Framhjáhald Kutchers
Asthon Kutcher tók við Charlie Sheen í þáttunum Two
and Half Men á árinu. Skömmu síðar fóru að heyrast
sögur af meintu framhjáhaldi hans við unga konu á 6 ára
brúðkaupsafmæli hans og eiginkonunnar, Demi Moore.
Fyrst um sinn létu hjónin, sem þekkt eru fyrir mikinn
aldursmun, eins og ekkert væri en seinna á árinu sendu þau
frá sér tilkynningu þess efnis að þau myndu skilja.
Sinead O´Connor söng: „Not-hing compares to you“ og nú snúa gárungar laglínunni upp
á hana sjálfa því Sinead hefur ekki
elst vel og samanburðurinn við
yngri árin er allt annað en góður.
Söngkonan, sem er nú 44 ára
og Íslandsvinur frá því að hún
mætti á Iceland Airwaves, hefur
vakið athygli fyrir klæðaburð
sinn og framkomu. Sérstaklega
þótti hún hafa sýnt afburðaslæma
tískuvitund á tónleikum á Írlandi
fyrr í sumar.
Sinead O´Connor
Versti
saman-
burðurinn
Á tónleikum
Mönnum er
brugðið þegar
þeir sjá hversu
mikið Sinead
hefur breyst.
Á öllum helstu slúðurmiðlunum eru greinar um leikkonuna Roo-ney Mara. Greinar á borð við: 10
atriði sem þú þarft að vita um Rooney
Mara og Hver er Rooney Mara?
Rooney landaði einu feitasta hlut-
verki ársins og lék „goth“-tölvuhakk-
arann Lisbeth Salander í bandarískri
endurgerð á kvikmyndinni Karl-
mönnum sem hata konur eftir sam-
nefndri sögu Stieg Larson. Hún er án
efa nýstirni ársins og stimplaði sig
rækilega vel inn í Hollywood-brans-
ann.
Nýstirni ársins
Allir vilja
þekkja hana
Ung og fögur
Sinead þegar
hún var ung.