Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Blaðsíða 68
68 Lífsstíll 30. desember 2011 Áramótablað
Þ
að gengur þannig fyr
ir sig að í upphafi hvers
árs þá skráir fólk sig í
þetta verkefni sem er að
ganga á eitt fjall í viku.
Þetta er þriðja árið sem þetta er
starfrækt,“ segir Páll Ásgeir Jóns
son hjá Ferðafélagi Íslands. Þar
fer senn af stað í þriðja sinn,
verkefnið 52 fjöll á einu ári. Þar
er gengið á eitt fjall á viku, allt
árið. „Þetta er eins og að kaupa
kort í ræktinni. Við útvegum
þér leiðsögnina og förum með
þig á fjöllin og búum til pró
gramm fyrir fólk en það er svo
undir hverjum og einum kom
ið að mæta,“ segir Páll Ásgeir
en tekur fram að fáir heltist úr
lestinni. „Heimtur eru ótrúlega
góðar. Ég er viss um að við erum
með margfalt betri heimtur en
nokkur líkamsræktarstöð. Það
voru 150 sem skráðu sig í fyrra
og lengi framan af ári voru að
mæta í kringum 120–130 í hverja
göngu. Og ég er sannfærður um
að minnsta kosti 80 manns eru
með 100 prósenta mætingu.“
Undirbúningur skilar árangri
Ásgeir Páll segir það ekki lykil
atriði að vera í toppformi til
þess að geta tekið þátt. „Þetta
er byggt þannig upp að fram
an af þá er verið að ganga á lág
og viðráðanleg fjöll í nágrenni
Reykjavíkur. Síðan smá þyng
ist þetta og nær ákveðnu há
marki í lok maí þegar við göng
um á Hvannadalshnjúk. Fólk
tekur miklum framförum með
an á þessu stendur. Margir eru
í byrjun árs kannski með lítið
þol. Það hefur sýnt sig hjá okk
ur að þessi undirbúningur skil
ar góðum árangri því við höfum
verið að fara með gríðarstóran
hóp upp á Hvannadalshnjúk á
hverju ári.“
Gengið um helgar
Göngurnar er farnar um helgar
þannig að flestir ættu að kom
ast með. „Það er yfirleitt farið á
laugardegi eða sunnudegi, við
reynum að skipta því þannig að
fólk sé ekki alltaf upptekið ann
an daginn. Síðan eru nokkrar
lengri göngur sem eru farnar
yfir helgi og þá í staðinn fær fólk
sex vikna frí yfir sumarið,“ segir
Ásgeir Páll og tekur fram að góð
stemning myndist innan hóps
ins. „Það er fullt af skemmti
legu fólki. Þú lærir að vera úti,
við göngum allt árið og kenn
um sjálfkrafa hvernig þú átt að
vera í fjallgöngum og hvenær
er tímabært að snúa við. Það er
líka mikilvægt að kunna,“ segir
hann.
Ásgeir Páll segir verkefnið
vera á viðráðanlegu verði.„Þetta
eru 1.000 krónur á fjall, 52 þús
und fyrir árið. Það má vel miða
við líkamsræktarkort. Þetta er
góð hreyfing og fólk nær ótrú
legum árangri.“
viktoria@dv.is Gengið á fjöll Hér má sjá hópinn ganga á eitt af fjöllunum 52.
Ganga á 52 fjöll á ári
n Gengið á eitt fjall á viku n Fólk tekur miklum framförum n Kostar þúsund krónur á fjall „Það voru 150 sem
skráðu sig í fyrra
og lengi framan af ári
voru að mæta í kringum
120–130 í hverja göngu
Óskum
landsmönnum
farsældar á nýju
ári og þökkum
áhugann á árinu
sem er að líða.
Starfsfólk
DV og DV.is