Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Blaðsíða 18
18 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
ráðherra á árunum 1999–2006, sat í
stjórn Landsvirkjunar árin 2007–
2011, þar af sem stjórnarformaður
í eitt ár. Þá var hann varaformaður
útvarpsráðs og síðar stjórnar RÚV
ohf. um fimm ára skeið. Páll mat það
sem svo að með afsögn stjórnar-
innar væru allar forsendur brostnar
fyrir því að hann kæmi til starfa sem
forstjóri stofnunarinnar og kom því
aldrei til starfa.
Anna Björns
benti á glæpa-
foringja
n Íslenska fegurðardrottningin og
fyrirsætan Anna Björnsdóttir komst í
alheimsfréttirnar þegar hún ljóstraði
upp um dvalarstað glæpaforingjans
James „Whitey“ Bulger. Hann hafði
verð á flótta undan lögreglunni í 16
ár. Það var fréttamiðillinn Boston
Globe sem fyrst greindi frá nafni ís-
lensku fyrirsætunnar og í kjölfarið
var jafnvel óttast um líf hennar.
Anna og eiginmaður hennar,
Halldór Guðmundsson, hafa síðustu
ár dvalið meirihluta ársins á Santa
Monica, í næsta nágrenni við heim-
ili Bulgers. Anna áttaði sig ekki því
hver hann var fyrr en hún sá hann
eftirlýstan á erlendri sjónvarpsstöð
þegar hún var stödd á Íslandi. Fyrir
að ljóstra upp um Bulger fékk Anna
tvær milljónir dollara, eða um 235
milljónir íslenskra króna.
Einelti á Alþingi
n Þingmenn lýstu andrúmsloftinu
á Alþingi og inni í þingflokkunum
sem „sjúklegu ástandi“ og sögðu
að þar væri „eineltismenning“ sem
væri „með ólíkindum“. Rætt var við
nokkra þingmenn um vinnuum-
hverfið á þinginu og í þingflokk-
unum. Þeir voru sammála um að
framkoma gagnvart einstaka þing-
mönnum í þeirra eigin þingflokkum
mætti ekki flokka sem neitt annað
en einelti. Einn þingmaður orðaði
það þannig: „Það er bara ein skoð-
un leyfileg.“ Þeir sem væru á öðru
máli en formaður eða þingflokks-
formaður væru kerfisbundið teknir
og einangraðir frá innsta starfi þing-
flokksins og þar með ákvarðanatöku.
Settir út í kuldann.
Alvarlegt
einelti í Garði
n Margrét Eysteinsdóttir greindi frá
alvarlegu einelti sem dóttir henn-
ar, Sigríður Eydís Gísladóttir, mátti
þola í Garði. Þegar Sigríður var 11
ára reyndi hún að svipta sig lífi og í
kjölfarið skipti hún um skóla. 13,3
prósent nemenda við Gerðaskóla í
Garði sögðust verða fyrir einelti oftar
en tvisvar til þrisvar í mánuði og var
það töluvert hærra en á landsvísu.
Að mati skólanefndar Gerðaskóla
voru eineltismál og líðan nemenda
með öllu ólíðandi. Pétur Brynjars-
son skólastjóri sagði einelti ekki
vandamál í skólanum. Honum var
sagt upp störfum í desember.
Banaslys
í Fagradal
n Alvarlegt bílslys varð á veginum
um Fagradal, á milli Reyðarfjarðar
og Egilsstaða, með þeim afleiðing-
um að Þorbjörg Henný Eiríksdóttir,
17 ára frá Eskifirði, lét lífið. Bíll sem
Henný ók lenti framan á vöruflutn-
ingabifreið sem kom úr gagnstæðri
átt, en mikil hálka var á veginum
þegar slysið átti sér stað. Vinkona
hennar komst lífs af.
Þekktur poppari
flæktur í fíkni-
efnamál
n Tveir íslenskir karlmenn voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald vegna
gruns um aðild að langstærsta fíkni-
efnamáli sem kom upp á árinu.
DV greindi frá því að annar
mannanna, sem er 54 ára og nýorð-
inn afi, væri landsþekktur poppari.
Hann hafði aldrei komið við sögu
lögreglu áður.
Fíkniefnin, tugir kílóa af kóka-
íni, amfetamíni, e-töflum og sterum
fundust í gámi merktum innflutn-
ingsfyrirtæki í Reykjavík sem mað-
urinn starfaði hjá. Gámurinn kom
hingað til lands með gámaflutninga-
skipi frá Hollandi.
Hinn maðurinn er á fimmtugs-
aldri og hafði áður fengið dóma
fyrir fíkniefnamisferli. Málið er enn í
rannsókn.
Nóvember
Biskup tilkynnti
afsögn sína
n Karl Sigurbjörnsson biskup til-
kynnti við upphaf kirkju-
þings þann 12.
nóvember að hann
hygðist láta af
embætti næsta
sumar eftir fimm-
tán ára setu í
biskupsstól. Karl
sagði að hann hefði
notið mikillar gæfu í
starfi en að liðið ár hefði verið sárs-
aukafullt og átakamikið í kirkjunni.
Það væri rétt að nýr biskup tæki við
næsta sumar.
Dæmdir fyrir
kynferðisbrot
gegn dreng á
hafi úti
n Fjórir menn voru dæmdir fyrir
kynferðisbrot gegn 13 ára pilti í hér-
aðsdómi. Brotin áttu sér stað um
borð í skipi í sumar en drengurinn
var þar á veiðum með föður sínum.
Mennirnir voru ákærðir fyrir kyn-
ferðislega áreitni með lostugu athæfi
og að hafa þannig sært blygðunar-
kennd drengsins.
Meintar falskar
minningar
n Skúli Sigurður
Ólafsson, sonur
Ólafs Skúlasonar
fyrrverandi bisk-
ups og bróðir Guð-
rúnar Ebbu sem
sakaði föður sinn um
kynferðislega misnotk-
un í bókinni Ekki líta undan sem
kom út í haust, kom fram í Kastljósi
og sagði að frásögn systur sinnar
stæðist ekki. Áður hafði Skúli sent frá
sér yfirlýsingu ásamt móður þeirra,
Ebbu Sigurðardóttur, og systur sinni,
Sigríði, þar sem sagði að þau könn-
uðust ekki við það að andrúmsloftið
sem lýst væri í bókinni hefði verið á
heimilinu. Skúli sagði jafnframt að
systir hans væri sannfærð um orð
sín og lygi engu. Því teldi hann að
þarna væri um falskar minningar að
ræða.
Lindex-æðið
n Sænska verslanakeðjan Lindex
opnaði verslun í Smáralind og sann-
kallað æði greip um sig. 12.000 versl-
unarglaðir Íslendingar tæmdu versl-
unina og þurfti í kjölfarið að loka
henni í nokkra daga þangað til nýjar
vörur bárust til landsins. Opnun
Lindex á Íslandi var sú langstærsta í
sögu keðjunnar.
Unglingsstúlka
lést í bílslysi
n Hörmulegt bílslys varð á Siglufirði
þar sem þrjár unglingsstúlkur urðu
fyrir bíl með þeim afleiðingum að
ein þeirra, Elva Ýr Óskarsdóttir, lést.
Hún var 13 ára. Önnur stúlka hlaut
alvarleg beinbrot en sú þriðja slapp
með minniháttar áverka.
Jónas Jónasson
lést
n Útvarpsmað-
urinn ástsæli
Jónas Jónas-
son lést eftir
stutta baráttu
við lifrarkrabba-
mein. Jónas starf-
aði við Ríkisútvarpið
frá árinu 1948 og allt þar til í haust.
Hann gegndi meðal annars starfi
dagskrár- og fréttaþular og leikstýrði
fjölmörgum útvarpsleikritum. Þá
skrifaði hann sögur fyrir börn, leikrit
og sönglög. Jónas sagði í viðtali í DV
skömmu áður en hann lést að hann
óttaðist ekki dauðann.
Gillz og kærasta
kærð fyrir
nauðgun
n 18 ára stúlka leitaði til neyðarmót-
töku og kærði síðan par fyrir nauðg-
un. Egill Einarsson, betur þekktur
sem Gillz eða Gillznegger, staðfesti
að um hann væri að ræða þegar
hann sendi frá sér yfirlýsingu þar
sem hann sagðist saklaus af þessum
ásökunum. Sakaði hann stúlkuna
um að hafa sent á sig handrukkara
til að kúga af sér fé og sagðist hafa
falið lögmönnum sínum að kæra
stúlkuna fyrir falskar sakargiftir.
Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni en óvíst er hvort ákæra
verði gefin út. Sýningum á þáttaröð
upp úr bókum Egils var slegið á frest
og sala á nýjustu bókinni var dræm
fyrir jólin.
Á Sogn fyrir að
bana unnustu
n Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
Axel Jóhannsson til vistunar á rétt-
argeðdeildinni Sogni fyrir að hafa
banað unnustu sinni og barnsmóð-
ur, Þóru Elínu Þorvaldsdóttur.
Desember
Myndbirting
Pressunnar
n Þann 7. desember birti vefmið-
illinn Pressan mynd af stúlkunni
sem kærði Gillz og kærustu hans
fyrir nauðgun. Svart strik var sett yfir
augu stúlkunnar en hún þekktist að
öðru leyti. Myndin sýndi stúlkuna
kyssa kærustu Egils á skemmtistað
fyrr um kvöldið en Pressan var harð-
lega gagnrýnd fyrir myndbirtinguna
þar sem málið snýst um nauðgun og
tilgangurinn með myndbirtingunni
var óljós. Auglýsendur tóku auglýs-
ingar út af miðlinum en ritstjórinn
baðst ítrekað afsökunar á myndbirt-
ingunni.
Óli Þórðar úr Ríó
tríó lést
n Einn ástsæl-
asti tónlistar-
maður þjóðar-
innar, Ólafur
Þórðarson, lést
á Grensásdeild
Landspítala þann
4. desember. Sonur
Ólafs, Þorvarður Davíð, veitti föð-
ur sínum alvarlega áverka í árás í
nóvember í fyrra. Fyrir það var hann
dæmdur í 14 ára fangelsi. Ólafur
komst aldrei til meðvitundar eftir
árásina.
Ólafur Þórðarson fæddist á Akur-
eyri árið 1949. Hann átti að baki
langan og glæstan feril með hinum
ýmsu hljómsveitum. Frægastur er
hann líklega fyrir að hafa spilað um
árabil með Ríó tríói en hann spilaði
einnig með hljómsveitum á borð við
Kuran Swing og South River Band,
svo dæmi séu tekin.
Ragna og Ella Dís
fluttu til London
n Í desember fékk Ragna Erlends-
dóttir, móðir Ellu Dísar, tilkynningu
um að til stæði að bera fjölskylduna
út úr húsnæði sínu vegna vangold-
innar leigu. Málinu var þó frestað
fram á nýtt ár. Barnavernd stöðvaði
Rögnu um miðjan desember á Kefla-
víkurflugvelli þegar hún var á leið úr
landi með Ellu Dís því barnalækn-
ar töldu hana of veika til að fljúga.
Ragna lét læknana ekki stoppa sig
og tveimur dögum fyrir jól flaug hún
með alla fjölskylduna til London og
kveðst vera flutt úr landi.
Njósnir Grétars
Rafns
n Dómur féll í
skilnaðarmáli
Grétars Rafns og
Manuelu í Bret-
landi. Manuela
fór fram á fjörutíu
prósent ef tekjum
Grétars en niðurstaðan
varð sú að Grétari var gert að greiða
henni rúmlega einn þriðja af laun-
um sínum mánaðarlega svo lengi
sem hún giftist ekki aftur eða fengi
fasta atvinnu. Þá kom á daginn að
lögfræðingar Grétars Rafns fengu
einkaspæjara til að fylgjast með
ferðum Manuelu. Tilgangurinn með
njósnunum var að staðfesta að hún
væri þegar komin í sambúð og ætti
því ekki að fá mikið af sameigin-
legum eignum og launum Grétars
Rafns. Manuela hugðist því kæra
Grétar Rafn fyrir brot gegn friðhelgi
einkalífsins en féll frá þeim áform-
um eftir umfjöllun um málið í fjöl-
miðlum.
Hrottalegt
hundsdráp á
Þingeyri
n Íbúar á Þingeyri voru slegnir óhug
og mikil reiði greip um sig í þorpinu
eftir að hundshræ fannst á floti í
höfninni. Hundurinn var bundinn
við tvö bílhjól á BMW-felgum sem
fest höfðu verið með reipi í háls-
ól hans. Þá höfðu lappir hundsins
verið bundnar saman og virðist því
einhver hafa drekkt dýrinu að yfir-
lögðu ráði.
Grunur beindist að ákveðnum
einstaklingum en þegar lögregla
ætlaði að hafa hendur í hári þeirra
greip hún í tómt. Svo virtist sem þeir
hefðu yfirgefið þorpið.
Gæðahreinsun
Góð þjónusta
Þekking
Opið: mán–fim 8.00–18.00
föst 8.00–18.30
ÞVOTTAHÚS
Ein elsta starfandi efnalaug hér á landi