Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Side 24
24 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
árið 2008 en hann hafði þá unnið
að verkefninu frá árinu 2004, sam-
kvæmt því sem hann sagði í við-
tali við DV í fyrra. Um 1.100 millj-
óna króna veð hvíla á jörðinni sem
vatnsverksmiðja Jóns stendur á.
Hrægammasjóðir
eiga bankana
Júní
n Mikil umræða
varð um eignar-
hald erlendra
vogunarsjóða á
Íslandsbanka og
Arion banka síð-
astliðið sumar.
Í júní var greint
frá nöfnum
nokkurra þeirra
vogunarsjóða
sem keypt hafa skuldabréf íslensku
bankanna af erlendum fjármálafyr-
irtækjum eftir hrunið 2008 með það
fyrir augum að hagnast á því. Meðal
þessara sjóða eru York Capital, TGP
Investments L.L.C., Anchorage
Capital Partners og Arrowgrass. Um-
ræðan um eignarhald vogunarsjóð-
anna var mjög hatrömm og sagði
Ólafur Arnarson bloggari, sem fyrstur
nafngreindi sjóðina í færslu á Press-
unni, að þeir sjóðir sem um ræddi
sérhæfðu sig í að græða á óförum
annarra: „Allir þessir tíu sjóðir eru
í hópi hrægamma fjármálaheims-
ins. Þeir sérhæfa sig í því að hagnast
á óförum annarra.“ DV fjallaði um
nokkra þessara sjóða og benti meðal
annars á að margir þeirra sérhæfðu
sig einmitt í því að kaupa skulda-
bréf hruninna fjármálafyrirtækja
með það fyrir augum að margfalda
ávöxtun sína. Þessi umræða vakti
nokkurn óhug hjá landanum sem
fannst vont til þessa að hugsa að
vogunarsjóðir ættu íslensk fjármála-
fyrirtæki. Þessi umræða er vitanlega
enn í gangi þar sem vogunarsjóð-
irnir eiga ennþá óbeina eignarhluti í
bönkunum.
Lánabók
Byrs opnuð
Júlí
n „Ég var bara í
eðlilegum við-
skiptum við
Byr; með ósköp
venjuleg verk-
efni sem ég fékk
fjármögnuð og
ekkert meira um
það að segja…
Ég er hvorki
hluthafi þarna eða eitt eða neitt. Ég
er bara óbreyttur maður sem labba
inn í þennan banka og fæ lán af því
ég var með góð verkefni í fasteigna-
viðskiptum,“ sagði Ellert Aðalsteins-
son, 41 árs fjárfestir og margfaldur
Íslandsmeistari í leirdúfuskotfimi,
sem komst óvænt í fréttir DV þegar
blaðið opnaði lánabók Byrs í júlí.
Ellert og eignarhaldsfélög honum
tengd voru þriðji stærsti skuldari
Byrs í nóvember 2008 með rúm-
lega 6,1 milljarðs króna skuldir.
Skuldsetning félaga Ellerts var aðal-
lega tilkomin út af fasteignaviðskipt-
um en samkvæmt fasteignaskrá áttu
félög í hans eigu fasteignir í Álfa-
bakka, Borgartúni, Faxafeni, Kringl-
unni og Bergstaðastræti meðal
annars. Skuldir Ellerts við sparisjóð-
inn námu 14 prósentum af eiginfjár-
grunni Byrs og voru því skilgreindar
sem stórar áhættuskuldbindingar
samkvæmt reglum Fjármálaeftir-
litsins.
Eignarhaldsfélög í eigu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og viðskiptafélaga
hans voru annars stærstu skuldar-
ar sparisjóðsins Byrs fyrir íslenska
bankahrunið árið 2008 og þarf það
ekki að koma á óvart. Fjárfestingar-
félag Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans,
Gaumur, og tengd félög, skulduðu
Byr nærri átta milljarða króna í
nóvember 2008. Stærstu einstöku
skuldararnir í félaganeti Jóns Ás-
geirs voru FL Group, sem skuldaði
rúma 3,4 milljarða króna vegna
láns sem félagið tók í lok mars 2008,
og Baugur Group hf., en það félag
skuldaði Byr rúmlega 3,2 milljarða
króna í nóvember 2008. Skuldir til
þessa félagahóps námu rúmum 18
prósentum af eiginfjárgrunni Byrs í
nóvember 2008. Eigið fé Byrs nam
rúmlega 43 milljörðum króna í árs-
lok 2007. Samkvæmt reglum Fjár-
málaeftirlitsins mega lánveitingar til
einstakra viðskiptavina ekki fara yfir
25 prósent af eiginfjárgrunni fyrir-
tækisins. Félög Jóns Ásgeirs voru því
talsvert undir þessu hámarki. Aðrir
hluthafar í FL Group og viðskipta-
félagar Jón Ásgeirs eru sömuleið-
is áberandi á listanum yfir stærstu
skuldara Byrs. Félög í eigu Þorsteins
M. Jónssonar, sem kenndur er við
Vífilfell, og Magnúsar Ármann, sem
yfirleitt er kenndur við eignarhalds-
félagið Imon, eru í fjórða sæti yfir
stærstu skuldara bankans. Skuldir
þessara félaga, Sólstafa, Runns ehf.
og Runns 2. ehf., námu rúmlega
4,5 milljörðum króna í lok nóvem-
ber 2008. Félög í eigu Þorsteins og
Magnúsar voru stofnfjáreigendur
í Byr og var veðið fyrir lánunum í
stofnfjárbréfunum í Byr. Skuldir
þessara félaga við Byr hækkuðu um
rúman milljarð frá því í júlí 2008 og
þar til í nóvember.
Spillingin í Fram-
sóknarflokknum
Ágúst og september
n DV greindi frá
nokkrum nýjum
dæmum um þá
spillingu sem
tíðkaðist meðal
flokksmanna
og innanbúðar-
manna Fram-
sóknarflokks-
ins á árunum
fyrir hrunið. Blaðið sagði meðal
annars frá því að vegna tengsla við
Framsóknarflokkinn hefði fast-
eignafélaginu Landsafli, sem var
í eigu Íslenskra aðalverktaka sem
var einkavætt í pólitískri og ólög-
legri einkavæðingu árið 2003, verið
tryggðar háar leigutekjur með samn-
ingum við opinbera aðila og stofn-
anir á árunum fyrir hrunið. Umræð-
an snerist meðal annars um Borgir
við Norðurslóð á Akureyri en leigu-
takar þar voru ósáttir við of háa leigu
í 25 ára leigusamningnum sem þeir
voru fastir í. Meðal þeirra sem leigja
húsnæði í fasteigninni eru Háskól-
inn á Akureyri, Náttúrufræðistofn-
un Íslands, Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands, Matís og Jafnréttisstofa.
Þá greindi DV frá stórfelldum hagn-
aði framámanna í Framsóknar-
flokknum, Halldórs Ásgrímssonar,
Helga S. Guðmundssonar og Finns Ing-
ólfssonar, af hlutabréfaviðskiptum
á árunum fyrir hrunið 2008. Fjöl-
skyldufyrirtæki Halldórs, Skinney-
Þinganes, hagnaðist til dæmis um
meira en fimm milljarða króna
vegna viðskipta með hlutabréf í
tryggingafélaginu VÍS sem áður var
í eigu ríkisbankans Landsbankans.
Halldór sagðist í samtali við DV ekk-
ert vita um málið. Þá greindi DV
frá því hvernig Helgi S., hægri hönd
Finns, hefði hagnast um tugi millj-
arða króna á hlutabréfaviðskiptum
með bréf í Kaupþingi sem fjár-
mögnuð voru af bankanum. Svipaða
sögu var að segja af Finni en eftir
einkavæðingu bankanna árið 2003
hóf hann umsvifamikil hlutabréfa-
viðskipti í gegnum einkahlutafélag
sitt Fikt ehf. Þá greindi DV einnig frá
gjaldþrotum og afskriftum á skuld-
um eignarhaldsfélaga sem voru í
eigu Finns Ingólfssonar.
Bjarni yfirheyrður
og ákært í
Vafningsmálinu
Október
n DV greindi frá
því í október að
Bjarni Benedikts-
son, formað-
ur Sjálfstæðis-
flokksins, hefði
verið yfirheyrður
hjá sérstökum
saksóknara sem
vitni í Sjóvár- og
Vafningsmálinu svokallaða. Bjarni
tók meðal annars þátt í viðskipt-
unum þegar hann veðsetti eign-
ir félagsins Vafnings fyrir láni hjá
Glitni fyrir hönd föður síns og föður-
bróður, líkt og DV hefur greint. Lánið
var til að eignarhaldsfélag í þeirra
eigu og Milestone gæti greitt upp
lán við bandaríska bankann Morgan
Stanley sem notað hafði verið til að
kaupa hlutabréf í Glitni.
Skömmu fyrir jól ákærði sérstakur
saksóknari tvo starfsmenn Glitnis,
Lárus Welding og Guðmund Hjaltason,
fyrir umboðssvik vegna þátttöku
sinnar í Vafningsmálinu. Um er að
ræða þriðju ákæruna sem sérstak-
ur saksóknari gefur út frá hruninu
2008.
Verktakarisar
halda eignum
Október
n DV greindi
sömuleiðis frá
því í október að
verktakafyrirtæk-
ið BYGG, sem
er í eigu Gunnars
Þorlákssonar og
Gylfa Héðins-
sonar, héldi eftir
fasteignum upp
á milljarða króna þrátt fyrir að fjár-
málafyrirtæki hefðu þurft að af-
skrifa hjá þeim skuldir upp á fleiri
tugi milljarða króna. Meðal þessara
eigna eru Borgartún 27, höfuðstöðv-
ar Icelandic Group, Capacent og
KPMG, en húsið er metið á rúmlega
1.300 milljónir króna, Borgartún
31 og Skógarhlíð 12, þar sem er að
finna höfuðstöðvar endurskoðenda-
skrifstofunnar Pricewaterhouse-
Coopers á Íslandi. Áætlað heildar-
verðmæti þeirra fasteigna sem Bygg
heldur er um 4,4 milljarðar króna
samkvæmt ársreikningi félagsins
fyrir árið 2009. Þetta var niðurstað-
an eftir skuldauppgjör félagsins við
Landsbankann. Á móti tók Lands-
bankinn af þeim verðminni eignir, til
dæmis á Bíldshöfða, í Mörkinni og á
Skúlagötu.
Flugstríðið
á Íslandi
Nóvember
n Heilmikil tíð-
indi voru af flug-
rekstri á Íslandi
um mánaða-
mótin októ-
ber/nóvem-
ber. Þá spurðist
það út að Skúli
Mogensen, sem kenndur er við bólu-
fyrirtækið OZ sem enginn veit al-
mennilega hvað gerði, ætlaði sér að
stofna flugfélag sem bera ætti nafnið
WOW. Inn í umræðuna spilaði að
Matthías Imsland, sem þá var ný-
hættur sem forstjóri Iceland Express,
ætlaði sér að starfa með Skúla. Við
tók heilmikil dramatík í fjölmiðlum
þar sem Iceland Express var ekki sátt
við þetta og fór í mál við Matthías til
að koma í veg fyrir að hann nýtti sér
upplýsingar um starfsemi Iceland
Express í rekstri WOW. Þá greindi
DV einnig frá því að áður en tilkynnt
var um stofnun WOW hefði milli-
liður boðið Skúla að kaupa Iceland
Express af Pálma Haraldssyni.
Braskið í kaup-
félaginu og Gift
Desember
n Í desember
birti DV nokkrar
fréttir um hluta-
bréfaviðskipti
stjórnenda Kaup-
félags Skagfirð-
inga á Sauðár-
króki sem hafa
hagnast umtals-
vert á liðnum
árum á viðskiptum með bréf í fé-
lögum sem tengjast kaupfélaginu.
Þetta eru þeir Þórólfur Gíslason kaup-
félagsstjóri, Sigurjón Rúnar Rafns-
son aðstoðarkaupfélagsstjóri og Jón
Eðvald Friðriksson, forstjóri útgerðar-
félagsins FISK Seafood sem er í eigu
kaupfélagsins. Allir hafa þeir hagnast
um tugi til hundrað milljónir króna á
hlutabréfaviðskiptum, meðal annars
með bréf í FISK Seafood.
Þá greindi DV frá því hvernig um
13 milljarða króna eignir, reiðufé,
Fjárfestingarfélagsins Fells, sem var
í eigu Eignarhaldsfélags Samvinnu-
trygginga í gegnum huldufélagið
Gift, hurfu eftir flóknum leiðum
á Sauðárkróki. Hluti peninganna
virðist hafa lent inni í Kaupfélagi
Skagfirðinga en ekki er vitað hvað
varð um hluta þeirra. Forsvars-
menn Kaupfélags Skagfirðinga hafa
ekki viljað ræða við DV út af málinu.
Meðal þess sem DV greindi frá var
að sérstakur saksóknari hefði skoðað
viðskipti Fjárfestingarfélagsins Fells
auk annarra eftirlitsaðila. Enn er
óupplýst hvað varð nákvæmlega um
eignir Fells.
Í vanda DV greindi frá því í
október að Bjarna hefði verið
yfirheyrður hjá sérstökum
saksóknara sem vitni í Sjóvár-
og Vafningsmálinu svokallaða.
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað