Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 38
38 Annáll 30. desember 2011 Áramótablað
19. Nóvember – Bein lína DV.is„Þjóðin er of þung… ég líka.“
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
um ofþyngdarvandamál þjóðarinnar í Beinni
línu á DV.is.
20. Júlí – DV„Þegar
ég var ungur
maður þá vann
ég nokkur ár á
Kleppi þar sem
ég kynntist
mörgum væn-
isjúkum mann-
eskjum og
stundum á
Útvarpi Sögu
fannst mér ég vera kominn á gamla
staðinn aftur.“
Haukur Holm fréttamaður um tímann sem
hann starfaði á Útvarpi Sögu.
21. Desember – dv.is„Ég, sem er bara ráðherra með
meðalgreind.“
Utanríkis-
ráðherrann
Össur Skarp-
héðinsson
svaraði
Guðna
Ágústssyni
og sagði
skrýtið að
hann skyldi
ekki gera sér
grein fyrir að
innan Evr-
ópusam-
bandsins
ætti hefðbundinn landbúnaður möguleika á
stórsókn. Benti Össur á stóraukna eftirspurn
eftir lambakjöti og skyri innan sambands-
landanna.
22. Maí – DV„Ég tala nákvæmlega eins og
mér sýnist.“
Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri
grænna, þegar hann var gagnrýndur fyrir að
kenna Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur við
fasisma.
23. Apríl – DV„Ég er ógeðslegur.“
Vöðvafjallið og rithöfundurinn Egill „Þykki“
Einarsson varð að lita hár sitt svart fyrir hlut-
verk í kvikmyndinni Svartur á leik.
24. September – DV„Hvernig ég ráðstafa mínu
einkalífi er mitt einkamál.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir tilkynnti í haust
að hún ætlaði að hætta á þingi og hefja nám
í siðfræði. Hún fékk full laun út mánuðinn en
eftir það biðlaun sem samsvarar þing-
fararkaupi eða 520.000 krónur á mánuði.
Ákvörðun Þórunnar um að fara í nám kostaði
íslenska skattgreiðendur milljónir króna.
24. Febrúar – Pressan„Sorrý að ég skuli vera til.“
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður brást
viðkvæmur við gagnrýni á pistil sem hann
skrifaði um menningu og svaraði henni með
þessum orðum.
25. Febrúar – RÚV„Það er bara eins og að saga
af sér fótinn til að missa nokkur
kíló.“
Svar borgarstjóra þegar hann var spurður
hvort ekki hefði verið hægt að skera niður
á stöðum svo sem í yfirstjórn borgarinnar
í stað þess að láta niðurskurðinn bitna á
börnunum.
26. Mars – DV.is
„Maður er
ekkert að
fara til út-
landa til þess
að lesa
Biblíuna.“
Jón Hilmar Hall-
grímsson, Jón
stóri, um ferð
sína til Þýska-
lands þar sem
hann eyðilagði
hótelherbergi og
lyftu.
27. Febrúar – Pressan„Taktu þennan samning og
troddu honum.“
Lára Björg Björnsdóttir rithöfundur skrifaði
um Icesave-samninginn og setti niður nokkra
punkta sem hún bað lesendur að íhuga áður
en til kosninga kom.
28. Ágúst – DV„Ég man bara eftir þessu eins
og þetta hefði gerst í gær. Ég flaug á
hurðina og hálfrotaðist. Ég var bara
lítill. Ég var örugglega bara í leik-
skóla.“
17 ára drengur lýsti heimilisofbeldi sem fjöl-
skyldan bjó við af hálfu föðurins í viðtali í DV.
29. Júní – Borgarstjórnarfundur í Reykjavík
„Mér fannst óþarfi hjá borgarfull-
trúa Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að
vera að hnýta eitthvað í Davíð Odds-
son og hans borgarstjóratíð.“
Hanna Birna setti út á Jón Gnarr og sagði
að aldrei áður hefði borgarstjóri látið
umræðuna snúast eins mikið um sjálfan sig,
sína líðan og sína hagi nema ef vera skyldi
borgarstjóri sem hún vildi ekki nefna en ekki
hefði þótt mjög mikilfenglegt hversu mikið
hann var fókuseraður á sjálfan sig.
30. Janúar – RÚV„Nú fer lyftan niður, hún fór
upp í dag.“
Þingmenn Vinstri grænna voru þögulir að
loknum löngum þingflokksfundi en orðin hér
fyrir ofan voru það eina sem Ásmundur Einar
Daðason þingmaður hafði til málanna að
leggja eftir þennan sáttafund innan VG.
31. Janúar – DV
„Þetta er eins
og myndar-
legt kjafts-
högg í andlit-
ið.“
Ástrós Gunn-
laugsdóttir
stjórnlagaþing-
maður þegar hún
heyrði af úrskurði
Hæstaréttar. Hún var ein þeirra sem keyptu
auglýsingar í kosningabaráttunni og notuðu
til þess eigið sparifé.
32. Júní – Alþingi„Nei, þá verðum við að
minnsta kosti að afnema stjórnar-
skrána fyrst.“
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
sagði hugmyndir um að mikill afsláttur á
lánasöfnum gömlu bankanna hefði átt að
ganga til lántakenda, hefðu verið úr lausu
lofti gripnar.
33. Júlí – DV„Munurinn á Tómasi og Ómari
er líka sá að Ómar talaði linnu-
laust.“
Andri Freyr Viðarsson um bolabítinn Tómas
og fjölmiðlamanninn Ómar Ragnarsson.
Andri sagði Tómas vera snyrtilegri en Ómar.
34.Júlí – eidur.is„Morgunblaðið er ekki lengur
virðulegt, – það var það ef til vill
fyrir löngu síðan.“
Fyrrverandi ráðherrann og sendiherrann
Eiður Guðnason lét Moggann heyra það
og sagði að blað sem lætur fréttaval
stjórnast af hagsmunum eigenda sinna eiga
slíkt lýsingarorð ekki skilið.
35. Desember – visir.is„Reglur eiga kannski ekki
alltaf við, eins og í þessu fárviðri
sem gekk yfir, það er ekki hægt að
miða við þær aðstæður sem þá voru
uppi.“
Gunnar Birgisson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs-
bæjar lét þessi orð falla eftir að hann, ásamt
öðrum stjórnarmönnum, var ákærður fyrir
ólögmætar lánveitingar sjóðsins og blekk-
ingar.
36. Júní – DV.is„Réttarhöldin eru skrípaleik-
ur.“
Geir H. Haarde vísaði öllum ákæruatriðum
á bug í landsdómsmálinu. Hann sagði að
réttur hans hefði ítrekað verið brotinn,
meðal annars með því að skipa honum ekki
verjanda strax og að með þingfestingunni
myndu fyrstu pólitísku réttarhöldin á Ís-
landi hefjast. Með landsdómsmálinu væru
valdhafar að nýta sér tækifæri til að ná sér
niðri á gömlum pólitískum andstæðingi.
37. Janúar – DV„Nei. Lilja Mósesdóttur fer
villur vegar ef hún telur að það sé
niðrandi að líkja henni við burðuga
hryssu með strok í augum og sjálf-
stæðan vilja.“
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra við
DV um gagnrýni Lilju en hún taldi dýralíking-
ar ráðherrans í sinn garð niðurlægjandi. Lilja
brást mjög harkalega við ummælum Össurar
á Facebook-síðu sinni og taldi niðurlægjandi
að vera líkt við hryssu.
38 Nóvember – Kastljós„Systir mín er fullkomlega
einlæg í öllum sínum lýsingum. Hún
lýgur ekki orði.“
Skúli Ólafsson sagði að Guðrún Ebba væri
fórnarlamb falskra minninga. Hann taldi
það afar sennilegt að lýsingar hennar, hversu
nákvæmar sem þær voru, ekki raunverulegar
lýsingar, heldur falskar minningar sem hefðu
orðið til og héldu áfram að verða til.