Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 40
Sandkorn Á rið 2012 verður undirlagt af heiftarlegri varnarbaráttu hinna ákærðu. Tveir hópar eru í varnar- baráttu. Annar þeirra berst fyrir því að stjórnmálamenn losni undan lagalegri ábyrgð á störfum sínum, ólíkt starfsmönnum í öðrum stéttum með minni völd og ábyrgð. Hinn krefst þess að menn sem sölsa undir sig milljarða eða hundruð millj- óna króna í flóknum fléttum í viðskipt- um verði teknir mýkri tökum en súpu- þjófar og smákrimmar. Þeir sem veita pólitíska uppgjörinu mótstöðu verða sem fyrr núverandi og fyrrverandi forysta Sjálfstæðisflokksins og samfylkingarfólk, sem telja má með- sekt í sofandahætti og vanhæfni ríkis- stjórnarinnar fyrir hrun. Árið 2012 mun hefjast á tilraun Bjarna Benediktssonar til að afturkalla málið gegn Geir Haarde, áður en yfirheyrslur hefjast. Áróðurs- stríðið gengur út á að láta fólki líða eins og að í þessu tilfelli sé stórundarlegt að fylgja lögunum, og jafnvel mannvonska. Í áróðursstríði útrásarvíkinga verður haldið áfram að gera sérstakan sak- sóknara torkennilegan. Á þessu ári sak- aði Sigurður G. Guðjónsson lögmað- ur Ólaf Þór Hauksson saksóknara um að „gera [menn] að glæpamönnum“: „Hann er búinn að rústa lífi fjölmargra einstaklinga og fjölskyldna þeirra,“ sagði hann. Það er vel þekkt á Íslandi að kvartað sé undan því að fjölmiðlar segi frá meintum glæpum fólks, en í tilfelli efnahagsglæpa tekur krafan um vett- lingatök út yfir allan þjófabálk. Þeir sem standa í stafni í áróðurs- stríðinu gegn uppgjörinu vita að með- aumkun almennra borgara er þeirra helsta sóknarfæri. Þess vegna tala þeir opinberlega um að fjölskyldum hinna grunuðu líði illa. Fólk er almennt góð- hjartað og vill ekki að öðrum líði illa. Meðaumkunin verður stundum grund- vallaratriðum eins og réttlæti og sann- leika yfirsterkari. Það gleymist oft að á bak við vanlíðan brotamanna og fjöl- skyldna þeirra er enn meiri vanlíðan alls þess fólks sem þarf að gjalda fyrir gjörðir þeirra. Líklegt er að Brynjar Níelsson, for- maður Lögmannafélagsins, haldi áfram að kvarta undan því að fjölmiðlar kom- ist yfir upplýsingar um mál. Rétt eins er líklegt að Bubbi Morthens kvarti áfram yfir því að fjallað sé um ákveðið fólk í fjölmiðlum og bloggarinn Ólafur Arnar- son líki rannsóknum og yfirheyrslum við „fjölmiðlasirkus“. Hluti af fórnarlambsvæðingu hinna ákærðu er að afskræma sérstakan sak- sóknara og aðra sem senda grunaða yf- irstéttarbrotamenn fyrir dóm. Aðgerðir þeirra verða skýrðar með ógeðfelldum eiginleikum eins og hefnigirni, van- hæfni, klaufaskap, heimsku, fégræðgi og athyglissýki. Reynt verður að út- mála þau sem vont fólk sem rústar lífi fjölskyldna til að fullnægja ógöfugum hvötum sínum. Skilningslitlir dómarar verða þrösk- uldur í uppgjörinu. Efnahagsbrot eru flóknari en súpuþjófnaður, þótt þau skipti milljónfalt meira máli. Sú til- hneiging dómara, að taka yfirstéttarfólk öðrum tökum en lágstéttarfólk, er líka þekkt. Efsta lag samfélagsins axlar bara sína ábyrgð ef það neyðist til þess. Ef fólk fyllist meðvirkni í þau fáu skipti sem jakkafataklæddur maður þarf að taka ábyrgð á gjörðum sínum, mun ábyrgðin lenda á því sjálfu. Árið 2012 verður prófsteinn á alla sem móta sér skoðanir á þjóðfélagsmálum. Ráðgjafi Pálma n Álitsgjafinn Ólafur Arnarson var ekki par hrifinn þeg- ar DV sagði frá því að hann hefði þegið flugfar og flug- vallarskatta til Lundúna af Iceland Ex- press og þar með Pálma Haraldssyni. En ekki er víst að þetta séu einu fjárhagslegu tengsl hans við Pálma. Ólafur neitaði til að mynda að svara því hvort hann hefði verið Pálma innan handar gegn gjaldi. Óljóst er þó í hverju sú ráðgjöf hefði átt að felast en Ólafur hefur látið hlý orð falla um Pálma og Iceland Express á opinberum vettvangi. Ljóst er að hægt er að meta slíkan stuðning til fjár. Að sama skapi hafa þeir sem hallað hafa orði á félag Pálma fengið að finna til te- vatnsins frá Ólafi. Öflugur bróðir n Dularfulli gámurinn sem geymdi búslóð Skafta Jóns- sonar sendiráðsstarfsmanns er enn hulinn mikilli dulúð. Ekki fæst uppgefið nákvæm- lega hvað í innihaldi hans réttlætti að 75 milljónir króna af almannafé færu í að bæta vatnstjón sem varð á inni- haldi gámsins. Skafti sendi fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem hann talaði almennt og á tilfinningalegum nótum um tjón sitt og eiginkonu sinnar. Til ráðgjafar Skafta í málinu er bróðir hans og einn þekkt- asti lögmaður Íslands, Gestur Jónsson, sem er hvað þekkt- astur fyrir afar sterka vörn í Baugsmálinu. Biðraðir á Íslandi n Það virðist vera mjög mis- munandi hvernig fólk hefur það fjárhagslega á Íslandi. Birtingarmyndir þessa mis- munar eru gjarnan í biðröð- um. Þannig má augljóslega lesa neyðina út úr biðröðum fyrir utan Fjölskylduhjálp Ís- lands þar sem fátækt fólk leitar eftir lífsbjörg. Andstæð- una er að finna í biðröðum fyrir utan lúxusverslanir á borð við Lindex. Strax eftir jól myndaðist mikil biðröð fyrir utan Epli.is sem selur tölvur og hágæðatæknivörur. Þar var allt annað fólk á ferð en það sem leitar nauðþurfta. Furðulegt par n Mogginn, undir ritstjórn Davíðs Oddssonar, á það til að taka skrýtna spretti út undan sér. Þannig gerði blaðið út- tekt á pörum ársins þar sem Tobba Marinós og Karl Sigurðs- son voru ofarlega á blaði. Einnig var Anna Mjöll Ólafsdóttir nefnd til sögunn- ar með hinum aldraða Cal Worthington. Svo kom stóru- ndarleg greining þar sem „parið“ Jón Ásgeir Jóhannes- son og Ari Edwald var nefnt undir þeim formerkjum að það „slitnaði ekki seðillinn milli þeirra“. Þykir þar grilla í kímni Davíðs. Það er Védís sem sér enn um þetta. Við kynnt- umst á N1. Árni Sigfússon varð afi í annað sinn þegar Védís Hervör eignaðist sinn annan son. – DV Vala Grand er yfir sig ástfangin af Eyjólfi S. Kristinssyni. – DV 2012: Ár uppgjörs Á Íslandi er traust almennings á stjórnvöldum í sögulegu lág- marki en 90% kjósenda treysta ekki stjórnmálastéttinni og fjór- flokknum. Það eru 5 til 10% almenn- ings sem taka virkan þátt í stjórn- málum en við getum ekki eingöngu smíðað kerfi í kringum þessa fáu, við verðum að sníða það að hinum 90% sem vilja láta sig pólitík varða, þó ekki nema væri bara stundum. Íslend- ingar kippa sér ekki upp við að koma upp alls kyns aðstöðu fyrir áhugafólk t.d. fótbolta- og golfvöllum, sund- laugum og söfnum o.s.frv. sem eru ekki eingöngu ætlað atvinnumönn- um og verða Íslendingar að fara eins að í pólitík. Við verðum að stokka upp kerfið og finna nýjar lausnir og opna verður hið lýðræðislega ferli. Þjóðfélag okkar þarfnast þátttöku al- mennings vegna mikilvægra mál- efna sem eru að hrjá þjóðfélagið í dag t.d. efnahagslífið, félagslega kerfið og umhverfið o.s.frv. Til þess að leysa þetta vandamál vill stjórnmálahreyf- ingin Hægri grænir, flokkur fólksins vopna alla kosningabæra landsmenn með spjaldtölvum. Ávinningurinn með því að virkja alla kosningabæra landsmenn í þjóðfélagsumræðuna er margvíslegur. Mætti hafa rafræn- ar kosningar t.d. í félög, sveitarfélög, stjórnir lífeyrissjóða og verkalýðsfélög og síðast en ekki síst þjóðaratkvæða- greiðslur. Íslendingar hafa nú þegar komið sér upp rafrænum skilríkjum, sem tryggir persónuvernd. Rafræn skilríki bjóða upp á mikið hagræði sem einfaldar aðgengi og eykur öryggi í samskiptum. Verslun og viðskipti, samskipti og upplýsingaöflun, dreifing mynda, bóka og tónlistar á netinu hefur gjör- breytt lífi fólks. Heimurinn er við fingurgómana á neytandanum. Fa- cebook, Twitter, Google, Amazon, Skype, Ebay o.s.frv. hafa gjörbylt heimsmenningunni og umgengnis- háttum. Rúsínan í pylsuendanum er sú, að þar sem Íslendingar þyrftu um 275.000 spjaldtölvur á ca. tveggja ára fresti, að hægt væri framleiða spjaldtölvurnar á Íslandi. Þetta hefði einnig í för með sér tæknibyltingu og mundi örugglega auka áhuga fólks með góðar „app“ hugmyndir sem eins og margir vita er gríðarlega stórt viðskiptatækifæri í nýjum „app“ notendaheimi. Með þessu mætti skapa hundruð ef ekki þúsundir starfa við hátækniiðnað á Íslandi. Hagvöxtur framtíðarinnar byggir á hátækni, hraða, aðgangi að upplýs- ingum og hæfileikum til að nýta þær. Frí þráðlaus nettenging og háhraða- net verður að vera í þéttbýliskjörn- um og á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er framtíðin og Íslendingar með eitt elsta löggjafarþing veraldar eiga að vera brautryðjendur í þróun beins lýðræðis í heiminum. Allt sem til þarf er hugdjörf framtíðarsýn. Spjaldtölvur fyrir alla„Mætti hafa rafrænar kosning- ar t.d. í félög, sveitarfélög, stjórnir lífeyrissjóða og verkalýðs- félög og síðast en ekki síst þjóðarat- kvæðagreiðslur. Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 40 30. desember 2011 Áramótablað Kjallari Guðmundur Franklín Jónsson „Áróðursstríðið gengur út á að láta fólki líða eins og að í þessu tilfelli sé stórundarlegt að fylgja lögunum. Leiðari Jón Trausti Reynisson jontrausti@dv.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.