Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Síða 43
Kvikmyndir 43Áramótablað 30. desember 2011
Þessar verða í bíó 2012
Prometheus
Leikstjóri: Ridley Scott Leikarar: Noomi Rapace,
Michael Fassbinder, Patrick Wilson, Charlize Theron,
Idris Elba, Guy Pearce Frumsýnd í BNA: 8. júní
n Ridley Scott snýr aftur í heim Alien-
myndanna í þessum vísindatrylli.
Myndin segir frá hópi geimfara sem
fylgja eftir vísbendingum um upp-
runa lífs á jörðunni. Sú för leiðir þá til
myrkustu hluta alheimsins. Myndin
var að miklu leyti tekin upp á hálendi
Íslands og lofar stikla úr myndinni,
sem birtist rétt fyrir jól, mjög góðu.
The Woman in Black
Leikstjóri: James Watkins Leikarar: Daniel Radcliffe,
Janet McTeer, Ciarán Hinds Frumsýnd í BNA: 3. janúar
n Ungur lögfræðingur ferðast til einangraðs
þorps þar sem draugur herjar á þorpsbúa. Daniel
Radcliffe freistar þess að hrista af sér Harry
Potter drauginn í þessari mynd, en stikla fyrir
myndina lofar nokkuð góðu.
The Expendables 2
Leikstjóri: Simon West Leikarar: Sylvester Stallone, Liam
Hemsworth, Jason Statham, Arnold Schwarzenegger, Bruce Willis,
Jean-Claude Van Damme, Terry Crews, Jet Li, Dolph Lundgren, Chuck
Norris, Randy Couture, Scott Adkins Frumsýnd: 24. ágúst
n Harðhausarnir sameinast á ný í framhalds-
mynd Expendables. Í þetta skiptið bætast í
hópinn þeir Arnold Schwarzenegger, Bruce Willis
og hinn goðsagnakenndi Chuck Norris. Alls ekki
amalegt.
John Carter
Leikstjóri: Andrew Stanton Leikarar: Taylor
Kitsch, Lynn Collins, Willem Dafoe Frumsýnd í
BNA: 9. mars 2012
n Byggt á „John Carter of Mars“ eftir
Edgar Rice Burroughs og fjallar um
hermann sem fluttur er til plánet-
unnar Mars og uppgötvar að þar
ráða illgjarnar og villimannslegar
geimverur ríkjum.
Battleship
Leikstjóri: Peter Berg Leikarar: Alexander
Skarsgård, Brooklyn Decker, Liam Neeson Frum-
sýnd í BNA: 18. maí
n Byggð, ótrúlegt en satt, á sam-
nefndu borðspili sem flestir ættu að
þekkja. Jarðneskur skipsfloti berst
við flota af óþekktum uppruna.
Gravity
Leikstjóri: Alfonso Cuarón Leikarar: George Clooney, Sandra
Bullock Frumsýnd í BNA: 21. nóvember
n Alfonso Cuarón gerði síðast hina frábæru Child-
ren of Men og hafa kvikmyndaunnendur beðið í
ofvæni eftir næstu kvikmynd hans. Gravity hefur
verið líst sem „Castaway í geimnum“ og segir frá
geimfara sem verður strandaglópur í geimnum
eftir geimgöngu.
The Dark
Knight Rises
Leikstjóri: Christopher Nolan Leikarar: Christian
Bale, Tom Hardy, Joseph Gordon-Levitt, Gary Oldman,
Morgan Freeman, Michael Caine, Frumsýnd: 20. júní
n Lokakaflinn í þríleik Christophers
Nolan um Batman. Átta árum eftir
atburði síðustu myndar veldur hryðju-
verkamaðurinn Bane usla í Gotham-
borg, og neyðir Leðurblökumanninn til
að koma aftur úr felum.
Men in Black 3
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld Leikarar: Nicholas Hoult, Stanley Tucci,
Ewan McGregor, Ian McShane, Bill Nighy Frumsýnd í BNA: 15. júní
n Þriðja myndin í seríunni segir frá því þegar J (Will
Smith) fer aftur í tímann, nánar tiltekið til 7. áratugar-
ins, þar sem geimvera ógnar framtíð mannkynsins.
Háaleitisbraut 68
sími 568 4240
Fimleika-
fatnaður
Fimleika og jazz
fatnaður í miklu úrvali
Skór, töskur o.m.fl.
Ástund dance
Helstu myndir
ársins 2011
Drive
The Artist
The Descendants
Moneyball
Midnight in Paris
Hugo
War Horse
Margin Call
The Tree of Life
The Help
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN