Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Page 52
52 30. desember 2011 Áramótablað „Hér er um frábæra og einlæga ferða- og þroskasögu að ræða“ „Ómögulegt að hætta að spila hann“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Götumálarinn eftir Þórarinn Leifsson Skyrim á PS3 Tónlistarmenn ársins Tilnefningar til íslensku tónlistar- verðlaunanna skerptu á tilfinningu flestra um þá sem sköruðu fram úr á árinu. Engum kom á óvart að Mugison hafi fengið flestar tilnefningar, sex að tölu. Hann skarar ekki einungis fram úr á sviði tón- listar að mati dr. Sólveigar Ólafsdóttur, hann er samein- ingartákn og einnig tákn fyrir auðmýkt og handverk en hann vinnur sjálfur plötuumslög sín í höndunum og kom þjóðinni á óvart þegar hann hélt ókeypis þakkartónleika. Lay Low fær tilnefningar líka með vel unna plötu sína þar sem hún byggir á ljóðum skáldkvenna og sveitin Of Monsters and Men kemur sterk inn sem og nýliði ársins sem er tónlistarkonan Sóley. Sýning ársins „Bókamessan í Frankfurt er ekki staðurinn til að njóta bóka heldur kaupa þær og selja,“ sagði Auður Jónsdóttir rithöfundur í grein sem hún skrifaði árið 2007 þegar undir- búningur var hafinn að því að Íslendingar yrðu þar í brennidepli árið 2011 og líkti messunni við tískuhátíð og jafnvel heimilissýningu eins og frægt var á sjöunda áratug síðust aldar. Hannes Lárusson myndlistarmaður segir bókamessuna skýrt dæmi um iðnvæðingu listanna. Enda er takmark forleggjara og útgáfu- fyrirtækja fyrst og fremst eitt: Að selja bækur. Sýningin þótti ganga vel og uppgangur íslenskra rithöfunda og framavonir hafa líkast til aukist mjög. Útgáfufyrir- tækið Amazon Crossing lagðist í útgáfu á íslenskum verkum í tilefni sýningarinnar. Rithöfundar ársins Rithöfundar áttu gott uppskeruár 2011. Bókamessan í Frankfurt virðist hafa keyrt metnaðinn í fjórða gír og útgáfa bóka var með mesta móti í ár. Gerður Kristný og Bergsveinn Birgisson eru tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norður- landaráðs fyrir hönd Íslands, Gerður Kristný fyrir ljóðabók sína Blóðhófnir og Bergsveinn fyrir Svar við bréfi Helgu. Tilkynnt verður um verðlauna- hafann í Reykja- vík í vor og svo verða verð- launin afhent á Norður- landaráðsþingi haustið 2012. Heimildamynd ársins Myndirnar Iceland Volcano Erup- tion og Into the Volcano sem Anna Dís og Jóhann unnu í samstarfi við National Geographic Channel hafa farið sigurför um heiminn. 390 milljónir hafa séð þá fyrri og fyrir þá mynd fékk teymið Emmy-til- nefningu. En nú nýverið voru myndirnar gefnar út á DVD hér á Íslandi þar sem Íslend- ingum gefst tækifæri að sjá þessar einstöku heimildamyndir. Það eru þau Anna Dís Ólafsdóttir, Jóhann Sigfússon og Hinrik Ólafsson sem unnu þessar myndir sem minna helst á vísindaskáldsögu Jules Vernes, Að miðju jarðar. Leikkona ársins Unnur Ösp Stefánsdóttir sýndi einlæga takta í hlutverki sínu í leiksýning- unni Elsku barni í sviðsetningu Leikfélags Reykjavíkur og Borgarleikhúss- ins. Hún sagðist hafa gengið nærri sér í undirbúningi enda fjallað um myrkustu hliðar mannssálar- innar og samfélags- ins. Leikari ársins Arnar Jónsson fyrir hlutverk sitt í leiksýningunni Lé konungi í sviðsetningu Þjóð- leikhússins. Umtöluð var á árinu aðkoma dýrra leikstjóra að stórum sýningum beggja leikhúsanna. Benedict Andrews kom frá Ástralíu og leikstýrði Lé í Þjóð- leikhúsinu og er víst væntan- legur aftur til landsins. Dansari ársins Gunnlaugur Egilsson hefur aukið hróður sinn mjög sem dansari. Hann dansar með ballettnum konunglega í Stokkhólmi og var í ár verðlaunaður á Grímunni fyrir hlutverk sitt í danssýningunni Bræðrum í sviðsetningu Pars Pro Toto í sam- starfi við Listahátíð í Reykjavík og Þjóðleikhúsið. Sjónvarpsþáttur ársins Fáir þættir hafa komið jafn- skemmtilega á óvart og Pressa gerði fyrir tveimur árum. Saka- mála- þáttur úr heimi blaða- manna, vel gerður og trúverð- ugur. Því var mikil pressa á Pressu 2 að standa sig en sýningar hafa nú staðið yfir undanfarnar vikur og lýkur veislunni á páskadag. Pressa 2 hefur gengið mun lengra inn í glæpaheiminn í þáttunum og verður að segjast að það kemur vel út. Pósturinn stendur enn fyrir sínu og er blaða- mennskan að stærstum hluta trúverðug enda hafa framleið- endur, handrits- höfundar og leik- endur kynnt sér störf blaðamanna vel í undirbúningi fyrir þættina. Best á árinu 2011 Menningarárið 2011 er senn á enda og því um að gera að rýna í þá gerjun sem hefur átt sér stað á árinu. Hafa orðið einhverjar breytingar á menningarneyslunni eftir hrun? Hvers vegna kaupum við minna af lífsstílsbókum í ár? Erum við hætt að þræta um Hörpu? Fyrir hvað stendur bygging eins og Harpa? Hvert stefnum við og hvað þarf að breytast? Sól- veig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar, og Hannes Lárusson rýna í menningarlíf landans og skyggnast örlítið fram á við. Hvert stefnum við? H annes Lárusson er einn listamanna sem ollu nokkru fjaðra- foki á árinu. Hann var einn þriggja sýn- ingarstjóra á listasýningunni Koddu þar sem verkið Falleg- asta bók í heimi varð umdeilt og var fjarlægt tímabundið af sýningunni. Hann segir árið hafa einkennst af iðnvæðingu listgreina og þeirri íslensku hvítu lygi að við séum með heimsyfirráð í ýmsum geirum lista, svo sem bókmenntum. Iðnvæðing sköpunarinnar „Ég ætla ekki að vera mjög já- kvæður þegar ég horfi til baka yfir árið. Það sem ég held að við höfum upplifað á þessu ári er að listir eru orðnar hluti af velsmurðum iðnaði undir merkjum sköpunar á mjög víðum grundvelli. Þetta er í raun fyrsta árið þar sem við upplifum þessa iðnvæðingu (list)sköpunarinnar í ómeng- aðri mynd,“ segir Hannes. „Í þessu samhengi má benda á Hörpuna og málatilbúnað- inn í kringum þá byggingu, Bókamessuna í Frankfurt og starfsemi menningarstofnana sem gæta fyrst og fremst hags- muna ríkjandi afla í pólitík, í viðskiptum og í þjóðfélaginu almennt. Viðhalda ímynd- um og hugmyndafræði, sem í grunninn er hugmyndafræði (ný)frjálshyggjunnar, oftast ómeðvitað og í átaklausu and- varaleysi. Gagnrýni er horfin úr ís- lensku listsamfélagi. Ég get nefnt eitt skýrasta dæmið um þetta, dæmi sem allir eiga auðvelt með að skilja. Bók- menntagagnrýni er orðin hluti af iðnaði, en um leið einhvers konar saklaus og jákvæður leikur. Vandi bókmenntagagn- rýnenda er fyrst og fremst hvernig þeir geta toppað sjálfa sig í lausagangi jákvæðninn- ar. Einna helst að menn detti niður á einkunnina „nálgast fullkomnun“. Þetta er hluti af normalíseringunni í þjóð- félaginu. Það eru gefnar út til- tölulega fáar bækur á ári og ekkert eðlilegra en að 30 þeirra fái fimm stjörnur eða meira af fimm mögulegum. Sama er upp á teningnum í öðrum listgreinum. Ég veit ekki hvort þetta er uppgjöf eða hvort menn eru komnir í sjálfheldu í hálfvolgu tómarúmi og viti í rauninni ekki lengur hvern- ig hægt er að vera „gagnrýn- inn“. Við þessi skilyrði er eins og það sé orðinn eins konar samkvæmisleikur að kaffæra hver annan í hrósi, jákvæðni og smjaðri. Það er að minnsta kosti stílbrot að þykjast vera með gagnrýna sýn við þessi skilyrði og hamlar gegn nátt- úrulegum framgangi sköpun- ariðnaðarins. Hálfvolg logn- molla er að færast í aukana og virðist vera að festast í sessi sem hluti af normalíséringu Hvít lygi og bleik ský Hannes Lárusson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.