Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 66
66 Lífsstíll 30. desember 2011 Áramótablað
Skemmtilegar
áramótagrímur
Á áramótunum gera
margir sér glaðan dag og
bregða á leik með skraut-
legar grímur eða hatta.
Hattana þekkja allir en þá
er hægt að fá víða, meðal
annars í vel völdum mat-
vörubúðum og á flugelda-
sölum. Grímur hafa líka
verið vinsælar á áramót-
um og í ár eru það stórar
og skrautlegar fjaðra- og
pallíettugrímur sem eru
hvað vinsælastar. Þær er
meðal annars hægt að fá í
vefversluninni lakkalakk.
com og Söstrene Grene
í Smáralind. Gríman á
myndinni er frá Lakkalakk.
Heitasta tískutrendið:
Jaðigrænar
neglur
Ida Wang, ritstjóri kínverska
Vogue, er með tískutrend-
in á hreinu. Hún klæðist
ávallt Chanel og undan-
farið hafa tískudívur vestra
hermt eftir Idu sem er ávallt
með jaðigrænt naglalakk.
Úrvalið er mikið um þessar
mundir, gráir og gylltir tónar
í grænum litum eru fallegir á
neglurnar.
Þ
að er lítið mál að gera
þessa greiðslur. Það er
samt mikilvægt að vera
með góðar vörur við
höndina, þær geta gert
kraftaverk,“ segir Edda Sif Guð-
brandsdóttir, hárgreiðslukona
á Slippnum á Skólavörðustíg.
DV fékk Eddu til að kenna les-
endum að gera tvær auðveldar
greiðslur fyrir áramótin. „Þessar
eru ekkert mál og henta mörg-
um.“
Edda hefur starfað lengi
í hárgreiðslubransanum og
leggur mikið upp úr því að gera
vel við sína viðskiptavini og
ætlar þess vegna að halda nám-
skeið á næstunni auk þess sem
hún býður upp á tilboð í janúar.
„Ég ætla að halda námskeið
eftir áramót í umhirðu hárs og
greiðslum. Þar kenni ég fólki að
hugsa um hárið og hvernig megi
gera auðveldar greiðslur. Ég er
síðan með tilboð í janúar, fólk
borgar bara í lit en fær klippingu
frítt með. Ég hef haft þetta til-
boð inn á milli til að gera vel við
mína viðskiptavini en ég býð að
sjálfsögðu alla velkomna,“ segir
Edda og hefst svo handa við að
sýna prufugreiðslurnar.
Hárið burstað
vel í gegn og svo
hvirfill tekinn frá.
Allt hárið sett í
stíft tagl fyrir utan
hárið sem er tekið
frá. Sjá mynd 1.
1 2
3
Tvær auðveldar
áramótagreiðslur
Túpera hvirfilsvæðið og
gott er að nota duft frá
Label.M. „Það er eiginlega algjört
„möst“. Það gefur
svo góða fyllingu
og það er mun
auðveldara að
eiga við hárið
þegar duftið er
komið í,“ segir
Edda Sif.
Tagl með tvisti
Duftið sett í
Skipta hvirfilsvæði í tvo
bunka og setja yfir hvorn
annan. Setja svo endana
í kringum teygju og
spenna endana niður.
4
tagl með tvisti
Auðveld og flott
greiðsla.
Snúður að aftan
Taka
skiptingu
meðfram
hliðunum.
1
Snúa upp á báðum megin
og festa svo að aftan. Gott
er að setja tvær spennur í kross
hverja yfir aðra þá helst það lengur.
Gera þetta báðum megin.
2
Taka
hárið sem
er út af
og vefja
því í bollu
þannig
úr verði
snúður.
3
Festa snúðinn
með ömmuspennum.
4
Greiðslur: Edda Sif Guðbrandsdóttir
Módel: Helga Kristín
förðun: Vigdís Margrétar
Jónsdóttir frá Mood School of
Make Up með Mac vörum.
stílisering: Hulda Halldóra
Tryggvadóttir
snúður að aftan „Það er
hægt að leika sér endalaust
með þessa greiðslu. Það
er til dæmis hægt að hafa
skiptingu í miðju eða á
hlið. Bara um að gera að
vera óhræddur að prófa sig
áfram,“ segir Edda Sif.
M
y
n
D
ir
s
iG
tr
y
G
G
u
r
a
r
i
Krossaæði
Krossar eru mjög vinsæl-
ir í fylgihlutatískunni um
þessar mundir. Þetta kirkj-
unnar tákn þykir nefnilega
aldeilis hámóðins og má
sjá það víða. Allt frá stórum
og miklum krosshálsmen-
um yfir í fíngerðari krossa
og jafnvel nokkra saman
á hálsmeni, stundum eins
eða mismunandi týpur
saman. Hringir með kross-
um á og eyrnalokkar eru
líka vinsælir.