Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Qupperneq 78
78 Sport 30. desember 2011 Áramótablað
n 20 leikir á sex dögum í ensku úrvalsdeildinni n Toppliðið spilar tvisvar
á þremur dögum n Getur Tottenham haldið í við Manchester-liðin?
L
eikmenn liðanna í
ensku úrvalsdeildinni
fengu óvenjumikið frí
yfir jólahátíðina en í
kringum áramótin og
nýárið verður heldur betur
tekið á því. Tvær umferðir
verða leiknar frá 30. desem
ber til 4. janúar og þurfa sum
lið, eins og Manchester City,
að spila tvo leiki á þremur
dögum. Þetta er tíminn sem
liðin með stóru hópana fara
að slíta sig frá minni liðunum
enda ekkert grín að stilla upp
liði sem þarf að spila með
svona stuttu millibili. Man
chester City var á toppnum
um jólin í fyrsta skipti í marga
áratugi en þar sem strák
arnir hans Roberto Man
cini spila ekki fyrr en 2. janú
ar getur Manchester United
hafið árið 2012 sem topplið
ensku úrvalsdeildarinnar nái
það stigi á heimavelli gegn
Blackburn. Meistararnir eru
þó aðeins með einn varnar
mann heilan. Tottenham hef
ur sýnt hvað besta boltann að
undan förnu og er liðið sem
hlutlausi stuðningsmaðurinn
elskar. Harry Houdini ætlar
að bæta við mönnum í janúar
og halda þeim bestu sem
hann er með nú þegar.
Án varnarmanna
á toppinn
Manchester United er hrokk
ið í gírinn eftir martröðina í
Meistaradeildinni og hefur
unnið síðustu fjóra leiki í úr
valsdeildinni með marka
hlutfallinu 16–1. Leikurinn á
nýársdag ætti að vera forms
atriði þegar Blackburn kem
ur í heimsókn en Blackburn,
með varamarkvörðinn Mark
Bunn í fantaformi í sínum
fyrsta leik, náði góðu stigi
á Anfield. Það er þó tölu
verður munur á framherja
sveit Manchester United og
félögunum Luis Suarez og
Andy Carroll hjá Liverpool
sem ekki geta keypt sér mark
þessa dagana.
Það mun líklega ekki koma
að sök gegn Blackburn hversu
fáliðað Manchester Uni
ted er til baka. Eftir að Jonny
Evans meiddist gegn Wigan
er United aðeins með Pat
rice Evra heilan þó United
menn vonist til að Phil Jones
verði klár í slaginn gegn sín
um gömlu félögum. Dimitar
Berbatov skoraði fimm mörk
í þessum leik í fyrra og er
ekki ólíklegt að hann fái aft
ur tækifærið eftir þrennuna
gegn Wigan. United fær líka
hvað mestu hvíldina um ára
mótin því eftir leikinn á gaml
ársdag spilar það ekki fyrr en
4. janúar gegn Newcastle sem
hefur verið í frjálsu falli und
anfarið.
Stórleikurinn í
Manchester
Stórleikur umferðanna
tveggja um áramótin er leik
ur Manchester City og Liver
pool sem fram fer á Borgar
leikvanginum í Manchester.
City gerði jafntefli gegn WBA
í síðustu umferð en það var í
fyrsta skiptið sem liðið skor
aði ekki mark í leik á tíma
bilinu. Þegar liðin mættust á
Anfield í nóvember gerðu þau
1–1 jafntefli þar sem Liver
pool var miklu betri aðilinn
en tókst ekkert frekar en fyrri
daginn að klára leikinn með
sigri.
Verkefnið verður erfitt fyr
ir Manchester City því að
eins tveimur dögum fyrir
leikinn gegn Liverpool þarf
það að ferðast enn norðar
til Sunderland og spila tvo
leiki á aðeins 48 klukkutím
um. Liverpool aftur á móti
spilar fyrst allra liða, í dag,
föstudag, gegn Newcastle
á heimavelli. Fær liðið því
meiri hvíld og þarf ekki að
ferðast langt í leikinn gegn
City þriðja janúar.
Markaskorun er þó það
sem Liverpool hefur mest
ar áhyggjur af en Kenny
Dalglish hefur enn og aftur
komið floppinu Andy Carroll
til varnar: „Ég held að Andy
Carroll sé meira vandamál
í ykkar augum en nokkurra
annarra,“ sagði Dalglish við
fjölmiðla á blaðamannafundi
í vikunni. „Þið eruð alltaf að
spyrja hvort hann verði í byrj
unarliðinu. Ég skil það samt
núna því hann er að fara að
spila gegn Newcastle. Andy
leggur mjög hart að sér bæði
innan og utan vallar. Hann er
bara enn að aðlagast lífinu hjá
nýju félagi, nýjum venjum og
nýjum leikstíl,“ sagði Dalglish
en Carroll hefur aðeins skor
að fjögur mörk á árinu fyrir
Liverpool.
Lundúnaliðið Tottenham
er komið í ham
Liðið sem er í hvað mestri bar
áttu við Manchesterliðin um
titilinn er Tottenham. Nú síð
ast lagði Tottenham baráttu
glaða Norwichmenn með
tveimur flottum mörkum frá
Gareth Bale sem er aftur að
stimpla sig inn sem einhver
albesti vængmaður heims.
Það verður erfitt fyrir Totten
ham að halda Bale en Harry
Redknapp er staðráðinn í að
halda Walesmanninum.
„Við værum búnir að selja
hann ef hann væri til sölu, er
það ekki?“ segir Red knapp
um Bale. „Það eru aðeins
Barcelona, Real Madrid og
Manchester City sem hafa
efni á honum. Bale er alveg
ótrúlegur knattspyrnumaður.
Hann er með allt sem þarf til
og algjörlega gallalaus. Hann
getur skallað, er nautsterkur,
getur rakið boltann og skot
ið. Mestu máli skiptir þó að
hann er frábær drengur,“ seg
ir Redknapp.
Tottenham á enn inni leik
til góða á Manchester Uni
ted sem er í öðru sætinu og
getur þá minnkað bilið nið
ur í fjögur stig. Um áramótin
mætir Tottenham Swansea á
útivelli á gamlársdag og svo
á það heimaleik tveimur dög
um síðar gegn WBA. Nokk
uð snúnir leikir en í því formi
sem Tottenham er í eiga sex
stig að vera meira en mögu
leiki.
Dagskráin
um áramótin
Föstudagur 30. desember
19.45 Liverpool - Newcastle
Laugardagur 31. desember
12.45 Man. United - Blackburn
15.00 Arsenal - Blackburn
15.00 Bolton - Úlfarnir
15.00 Chelsea - Aston Villa
15.00 Norwich - Fulham
15.00 Stoke - Wigan
15.00 Swansea - Tottenham
Sunnudagur 1. janúar
12.30 WBA - Everton
15.00 Sunderland - Man. City
Mánudagur 2. janúar
15.00 Aston Villa - Swansea
15.00 Blackburn - Stoke
15.00 QPR - Norwich
15.00 Úlfarnir - Chelsea
17.30 Fulham - Arsenal
Þriðjudagur 3. janúar
19.45 Tottenham - WBA
19.45 Wigan - Sunderland
20.00 Man. City - Liverpool
Miðvikudagur 4. janúar
20.00 Everton - Bolton
20.00 Newcastle - Man. United
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Ekkert frí
um áramót
„Ég held að
Andy Carroll
sé meira vandamál
í ykkar augum en
nokkurra annarra.
Stíft prógramm City
spilar tvo leiki á þremur
dögum. Mynd ReuTeRS
Magnaður
Gareth Bale hefur
verið í rosalegu
formi. Mynd ReuTeRS