Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2011, Side 103
n Völvan sér Ríkisútvarpið eiga dap-
urt ár í vændum. Niðurskurður og
deilur innanhúss sveipa þessa öldnu
stofnun skýjum ósættis og depurðar.
Páll Magnússon sætir harðri gagnrýni
en víkur ekki úr starfi þrátt fyrir ítrek-
aðar áskoranir.
n Dagskrárstjóri RÚV,
Sigrún Stefánsdóttir,
lætur af störfum og fer
á eftirlaun. Skipun eft-
irmanns hennar veldur
harðvítugum deilum
og völvan sér starfsmenn
Ríkisútvarpsins togast á um
bunka af undirskriftum með og á
móti. Helst er það fundið nýjum dag-
skrárstjóra til foráttu að hafa verið
tengdur stjórnmálaflokki fyrr á árum.
n Á miðju ári verður mikið fjaðra-
fok í kringum Kastljósið þegar viðtal
við ungan afbrotamann er stöðvað
rétt fyrir útsendingu. Í ljós kemur að
viðkomandi er flæktur í viðamikinn
innflutning á fíkniefnum og hugðist
skýra frá bakhjörlum sínum í beinni
útsendingu. Menn skiptast í tvær
fylkingar um þessa ákvörðun en lög-
fræðingarnir ráða og enginn fær að
segja neitt. Inn í þessar deilur dregst
nafn þekkts athafnamanns sem áður
hefur komið við sögu slíkra mála.
Þegar sá er handtekinn síðar
á árinu stendur Kastljós-
ið eftir með pálmann í
höndunum.
n Ástarævintýri innan
veggja Sjónvarps-
ins kemst í hámæli á
árinu og koma starfs-
menn Kastljóss einnig þar
við sögu. Þykir mörgum sem þar sé
gengið nærri mörkum þess smekk-
lega en enginn missir vinnuna og
allir hafa af nokkra skemmtun. Gár-
ungar kalla Kastljósið Náttborðs-
lampann eftir að þetta mál verður í
fréttum.
n Morgunblaðið og útgáfa þess á
undir högg að sækja á árinu eins og
verið hefur. Tilraun til uppstokkunar
verður gerð á árinu og við þær breyt-
ingar stígur Davíð Oddsson til hliðar
og Karl Blöndal tekur við starfi
ritstjóra. Vongóðir útvegs-
menn í Vestmannaeyjum
halda áfram að veita fé
til útgáfu blaðsins en
þessar varnaraðgerðir
stoða lítt því áskrifend-
um fækkar jafnt og þétt.
n Fréttatíminn verður í
fréttum á nýju ári þegar óeining
verður á ritstjórninni vegna fyrir-
hugaðrar sölu. Hlutafé allvænt frá
Mr. Jenkins er nú uppurið og fáeinir
liðsmenn í hópi eigenda vilja selja
frekar en safna skuldum en aðrir
vilja halda skipinu áfram á
floti. Þetta ósamkomulag
verður öðrum fjölmiðlum
að fréttaefni á nýju ári.
Völvan sér Jón Kaldal,
ritstjóra blaðsins,
í erfiðri stöðu og
þegar Fréttatíminn
að lokum sameinast
Fréttablaðinu snýr hann
aftur í stól ritstjóra við hlið
Ólafs Stephensen.
n Völvan sér Björn Inga Hrafnsson í
skugga fjárhagserfiðleika. Vefpress-
an, fyrirtæki í hans eigu, berst fyrir
lífi sínu vegna eftirmála umdeildrar
myndbirtingar í tengslum við saka-
mál Gillz á aðventunni. Völvan sér
lykilstarfsmenn yfirgefa turninn í
byrjun árs og skömmu síðar skiptir
fyrirtækið um eigendur og verður
það síst til þess að auka vinsældirn-
ar. Völvan sér Björn Inga ganga ber-
serksgang á ritstjórn, kasta hlutum
til og sópa lausamunum af borðum,
æpandi á samstarfsmenn sína.
n Í kringum þrotabú Vefpressu
sveima áhugasamir fótgönguliðar
þeirra sem vilja gjarnan hafa ítök
í fjölmiðlum. Völvan sér Brynjólf
Helgason, fyrrverandi Lands-
bankamann, í forystu þeirra. Að
lokum fer þó svo að Vefpressan
kemst í eigu 365-samsteyp-
unnar. Þá fer mörgum að þykja
nóg um stöðu þeirrar sam-
steypu á markaðnum og kæra
til Samkeppnisstofnunar.
n Stöð 2 mun eiga erfitt uppdráttar
á nýja árinu eins og fleiri fjölmiðlar.
Hún lætur hægt og rólega undan síga
í samkeppninni við RÚV og áhorf á
fréttir og Ísland í dag mælist í
sögulegu lágmarki á vordög-
um. Gripið verður til hreins-
ana og umskipta og þykir
það takast misjafnlega vel.
Í þeim sviptingum hverfur
Logi Bergmann af skjánum og
birtist sjónvarpsáhorfendum
aftur í nýju hlutverki hjá keppi-
nautnum í Efstaleiti. Þar birtist Logi
með nokkra hatta og völvunni
sýnist einn þeirra vera merktur
Eurovision.
n Egill Helgason heldur sínu
striki sem áhrifamesti þátt-
arstjórnandi sem Ísland hefur
átt. Þjóðin flissar annað veifið
að hégómagirni Egils þegar hann
segir frá samtölum sínum við erlenda
fjölmiðla og frægt fólk en við höldum
áfram að elska hann. Egill mun eiga
feiknargóða spretti á árinu
og sum viðtölin í Silfri Egils
vekja verðskuldaða athygli
allrar þjóðarinnar.
n Bókmenntaþátturinn Kiljan heldur
áfram að sæta gagnrýni frá konum
sem telja hlut kvenna fyrir borð bor-
inn. Egill verst af hörku og reynir að
vera kurteis við konur og tekst það
næstum alltaf.
n Arnþrúður Karlsdóttir á Útvarpi
Sögu á ekki sérlega gott ár í vændum.
Deilur um meintar greiðslur fyrir
viðtöl og umfjallanir varpa skugga
á orðstír stöðvarinn-
ar. Ítrekaður brott-
rekstur starfsfólks
sem ákveðinn er í
skyndingu verður
einnig að fréttaefni
í öðrum miðlum.
n Eins og stundum áður
verða þessar umræður óþægilega
persónulegar og lífsstíll Arnþrúðar
kemst meira í sviðsljósið en stundum
áður. Völvan sér Útvarp Sögu ein-
angrast æ meir eftir því sem líður á
árið og ský þreytu og vonbrigða ligg-
ur yfir henni.
6 Völvuspá 2012 30. desember 2011 Áramótablað
n Völvan sér fjárhagsvandræði
íþróttafélaga í kastljósinu á nýju ári. Í
ljós kemur að nokkur félög eru í raun
svo illa stödd fjárhagslega að þeim
er ekki heimilt að taka þátt í keppni,
til dæmis í Pepsi deild karla. Margir
verða til þess að heimta að hið opin-
bera, það er sveitarfélög, hlaupi und-
ir bagga en því er mótmælt kröftug-
lega enda fá sveitarfélög aflögufær.
n Völvan sér stórt og fornfrægt
íþróttafélag í Reykjavík verða gjald-
þrota á árinu. Mannvirki þess standa
auð meðan deilur geisa um ábyrgð-
ina. Að lokum rennur starfsemi þess
saman við annað félag
mörgum til mikillar ar-
mæðu.
n Völvan sér Eið Smára
Guðjohnsen í tengslum
við knattspyrnufélagið
Val á nýju ári en einnig í
kastljósinu vegna fjármála
sinna. Eiður og Sveppi vinur
hans lenda í fréttum á árinu þegar
Eiður fjármagnar uppá tæki þar sem
Sveppi sækir á ný mið.
n Völvan sér Kolbein
Sigþórsson sem nú
leikur með Ajax í
Hollandi rísa upp á
stjörnuhimin knatt-
spyrnunnar og verða
næsta eftirlæti Íslend-
inga í annars döpru lands-
liði þeirra.
n Íslenska landsliðið í handbolta
verður niðurlægt í upphafi árs í
Serbíu og völvan sér Ólaf Stefáns-
son hvergi í landsliðshópnum
svo hann hættir líklega. Guð-
mundur Guðmundsson þjálfari
sést tárfellandi í kúlu völv-
unnar.
n Eini Íslendingur-
inn sem stendur sig
frábærlega í sinni
íþrótt á nýju ári er
Gunnar Nelson. Völv-
an sér hann samt tapa
sínum fyrsta bardaga á nýja árinu
en fyrir utan það heldur ferill hans
áfram að rísa og blómgast og hann
á gott ár í vændum.
n Guðjón Þórð-
arson, hinn
gamalkunni
fótbolta-
þjálfari,
verður mikið í
fréttum næsta ár.
Hann mun þjálfa lið
Grindavíkur og það
samstarf endar með
miklum hvelli síðla
næsta sumar. Völv-
an sér Guðjón missa
algerlega stjórn á skapi
sínu í beinni útsend-
ingu sjónvarps og við
það tækifæri grípur hann
til sérstæðra örþrifaráða
svo ekki sé fastar að orði kveðið.
n Völvan sér fremur snautlega þátt-
töku Íslendinga á Ólympíuleikum þar
sem allir íslensku keppendurnir eru
felldir út strax í fyrstu viðureign.
Íþróttirnar
„Á nýja árinu munu Íslendingar fá
staðfest að það er ekkert til sem
heitir slæm fjölmiðlaumfjöllun.
Ferðamenn munu flykkjast til
landsins sem aldrei fyrr. Helsta
ástæðan er gosið í Eyjafjallajökli á
liðnu ári og sú umfjöllun heims-
pressunnar sem fylgdi í kjölfarið.
Árið 2011 verður algert metár á
þessu sviði og verður öngþveiti af
þessum sökum stundum í fréttum á
sumrinu sem í hönd fer.“
n Þetta stóð eins og stafur á bók.
„Sveppi, Sverrir Þór Einarsson,
lendir í miklu hneykslismáli.“
n Sveppi átti í vök að
verjast á árinu vegna
umdeildra auglýsinga
sem hann að lokum
dró til baka. Þær þóttu
brjóta í bága við siðareglur
auglýsenda.
„Völvan sér eldgos á nýju ári og
reyndar frekar tvö heldur en eitt.
Annað þeirra er Grímsvatnagos.“
n Þetta kom fram á vordögum.
„Völvan sér á miðju sumri koma upp
mál þar sem hriktir í samstarfi Besta
flokksins og Samfylkingarinnar.“
n Á miðju sumri gengu mis-
vísandi yfirlýsingar manna
á milli vegna áforma
Guðmundar Steingríms-
sonar um að bjóða fram
með Besta flokknum.
„Völvan sér Hönnu Birnu sæta
mikilli gagnrýni frá eigin flokki
seinnihluta ársins.“
n Þetta rættist í tengslum við for-
mannsframboð Hönnu Birnu.
„Gjaldþrot Helga Björnssonar
söngvara í atvinnurekstri í Berlín
kemst í fréttirnar á nýju ári og Helgi
flytur endanlega heim til Íslands í
kjölfarið og sinnir ferli sínum sem
vinsæll hestasöngvari af alúð.“
n Þetta gekk eftir í
smáatriðum og er Helgi
kominn heim og leikur og
syngur sem aldrei fyrr.
„Völvan sér jarðakaup útlendinga
mikið í sviðsljósinu á nýju ári.“
n Þarf nokkuð að segja Nubo?
„Geirfinnsmálið kemst
enn einu sinni í kastljós
umræðunnar á nýju ári.“
n Sævar Ciesielski lést,
dagbækur Tryggva Rúnars
voru birtar og ný rannsóknarnefnd var
skipuð.
Rættist
í fyrra Fjölmiðlarnir
Vefpressan í basli
Völvan spáir því að lykilstarfs-
menn yfirgefi turninn á næsta ári.
Áskrifendum fækkar enn
Völvan spáir því að Davíð Oddsson
hætti sem ritstjóri á næsta ári.
Félög í vanda?
Félögum verður ekki
heimilt að taka þátt í Pepsi
deild karla vegna bágrar
fjárhagsstöðu.