Víkurfréttir - 13.12.2012, Síða 44
fimmtudagurinn 13. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR44
JólablaðIð 2012
Knattspyrnumaðurinn Gestur Gylfason fór eins og margir Íslendingar til Noregs eftir að hrunið
skall á í leit að atvinnu og betra lífi. Gestur er að vinna
við smíðar í Jölster í vestanverðum Noregi en hann
fór af landi brott síðla sumars 2010. Marko Tanasic
vinur Gests og fyrrum leikmaður Keflvíkinga, er
að þjálfa knattspyrnulið bæjarins en hann útvegaði
Gesti vinnu svo hann ákvað að slá til. Gestur segir
að ekki hafi mikið verið að hafa vinnulega séð heima
fyrir og þarna sá hann frábært tækifæri. „Marko
vantaði einhvern svona rudda í vörnina og ég var til-
valinn í það hlutverk,“ segir Gestur og hlær.
Gestur hefur gert garðinn frægan með bæði Keflvík-
ingum og Njarðvíkingum en hann á að baki farsælan
og langan feril í knattspyrnunni. Ferlinum er þó hvergi
nærri lokið. „Ég er fyrirliði hjá liðinu hérna og hef
verið síðan ég kom út. Þannig að það þýðir ekkert
fyrir mig að hætta þessu núna,“ segir Gestur glettinn.
Liðið í bænum heitir Jölster IL og leikur í 4. deildinni í
Noregi en þar er liðum skipt upp eftir svæðum í neðri
deildum. „Meðan maður meiðist ekki þá er maður í
þessu. Ég hef sloppið vel undanfarið og ekkert meiðst
síðan ég kom hingað út.“ Auk þess að spila með karla-
liðinu þá sér Gestur um að þjálfa kvennalið félagsins og
hann er þessa stundina að ná sér í þjálfararéttindi og
hyggur jafnvel á frama á þeim vettvangi.
Er ekkert á heimleið á næstunni
Gestur er mjög sáttur í starfi sínu í en hann segir starf
smiðsins vera afar fjölbreytt í Noregi og auk þess eru
launin góð. „Ég kvarta ekkert yfir laununum hérna
og það er nóg að gera,“ segir Gestur sem býst ekki við
því að vera á heimleið á næstunni. „Það þyrfti eitthvað
rosalega gott að koma upp ef það ætti að verða,“ en þó
kemur Gestur reglulega í heimsókn til Íslands enda
fjölskyldan öll þar.
Áður hefur Gestur reynt fyrir sér í Noregi en það var
árið 1995 þegar hann lék knattspyrnu með Ströms-
godset í Drammen í rúmlega ár. Það var því frekar
auðveld ákvörðun fyrir hann að taka stökkið núna
þegar tækifæri gafst til enda líkaði honum dvölin vel
í fyrra skiptið.
Gestur fylgist vel með gangi mála heima í Reykjanesbæ
en hann er í góðu sambandi við fjölskyldu og vini.
Hann heyrir reglulega í fyrrum liðsfélögum úr fótbolt-
anum og veit alltaf hvað er um að vera í boltanum.
Gestur býr í Skei í Jölster en þar búa um 400 íbúar en
í nánasta umhverfi búa um 3000 manns. Gestur býr á
neðri hæðinni hjá eldra fólki sem hefur reynst honum
afar vel og segir hann að bærinn sé frekar rólegur.
„Þetta hentar manni alveg því maður er kominn á þann
aldur að maður er ekki að djamma eða neitt slíkt. Svo
er verið að æfa mörgum sinnum í viku og nóg að gera í
vinnunni,“ en Gestur er hugsanlega að auka við sig og
taka að sér aukavinnu fyrir bændur á svæðinu. Annars
er venjulegur vinnudagur þannig að byrjað er að vinna
um 7:30 eða 8:00 og deginum lýkur um klukkan 15:30.
Veðurfar er nokkuð ólíkt því sem Suðurnesjamenn
eiga að venjast en Gestur segir nokkuð snjóþungt vera
í Jölster á veturna. Þarna rignir líka meira en í Bergen
að sögn Gests og þá er nú mikið sagt.
Norðmenn lífsglaðari en Íslendingar
Að hans mati eru ekki allir svo heppnir að fá svona
tækifæri og hafa góða vinnu. Gestur er á því að hann
hefði sjálfsagt farið heim aftur hefði ekki gengið svona
vel að aðlagast öllu umhverfinu og auk þess finnst
honum gott að hafa nóg að gera í vinnunni. Tungu-
málið vefst ekki fyrir Gesti en hann byrjaði einfald-
lega að tala málið um leið og út var komið og daglega
umgengst hann fólk sem hjálpar honum að læra norsk-
una. Hann ber Norðmönnum vel söguna. „Ég myndi
segja að yfirhöfuð væru Norðmennirnir mun ánægðari
en við Íslendingar. Hér upplifi ég allt annað viðhorf
gagnvart lífinu og allir eru mjög hressir.“ Ef maður
nennir líka að vinna og leggja hart að sér þá taka Norð-
menn vel á móti manni, við erum varla útlendingar
í þeirra augum.“ Hann segir að fólk hafi það gott á
þessum slóðum en stundum blöskrar honum verðlagið
í Noregi.
Hvað ætlar Gestur annars að vera lengi í boltanum?
„Ég tek alveg 1-2 ár til viðbótar ef ég held mér heilum.
45 ára er fínn aldur til að hætta þessu,“ segir Gestur
hress að lokum.
Hætti 45 ára
í boltanum
- Gestur Gylfason er enn á fullu og hefur það gott í Noregi
Gestur þeysist um hafflötinn á sjóþotu.
Knattspyrnuvöllurinn í Jölster.