Són - 01.01.2014, Page 114
112 anna ÞorBjörg ingólfsdóttir
þá var ekki reyrt fast að og bragform þululjóðanna er auk þess vel lukkuð
tilraun til að brjótast út úr reglufestu hefðbundins skáld skapar að ný-
rómantískum og módernískum hætti.
Frumsömdu barnaþulurnar eru eðlilegt framhald af þulu ljóðum um-
ræddra skáldkvenna. En má ekki líta á þululjóðin og barna þulurnar sem
eðlilega þróun, endurnýjun og endursköpun gömlu þulnanna í takt við
nýjar hugmyndir í ljóðagerð fremur en sérstaka bókmennta grein? Er
annars nokkur róttækari munur á þulu ljóðum og þulum síðari alda annars
vegar en á síðmiðalda þulum og fornum þulum hins vegar? Ég hygg að
fæstir nú til dags geri sér grein fyrir því að það sé munur á þululjóðum
tuttugustu aldar og gömlum þulum, enda eru gömlu þulurnar senni lega
að mestu horfnar af vörum manna. Flestir munu þó kannast við þær
þulur eða þulubrot, sem er að finna í Vísna bókinni því hún er senni lega
til á velflestum heimilum.
Í ljósi þess sem hér hefur verið rætt er spurning hvort ekki sé ástæða til
að bæta við þriðja þulu flokknum og kalla hann einfaldlega nútíma þulur
eða að minnsta kosti kenna hann við tuttugustu öldina eins og Yelena
Sesselja Helgadóttir gerir raunar þegar hún talar um þululjóð tuttugustu
aldar (2003). Tillaga að skilgreiningu nútíma þulna26 gæti hljóðað ein-
hvern veginn svona: Kveð skapur eftir nafn greinda höfunda og fremur
lítið um efnislegar tilvísanir í gamlar þulur, þjóðlegan kveðskap eða
sögur. Þulurnar eru mislangar, ekki undir reglubundnum bragarháttum
og oftast án erinda skila. Hrynjandin er tiltölulega óregluleg. Stuðla-
setning er að mestu hefð bundin og rímið er oftast runurím en stundum
víxl rím eða blanda af þessu tvennu. Efni er fjölbreytt; það byggir yfir leitt
á einni megin hugmynd og í barnaþulunum er oftast sögð saga.
Óprentaðar heimildir
Lbs. Landsbókasafn – Háskólabókasafn. Handritasafn
Lbs. 587 4to VII.
Handrit Guðfinnu Þorsteinsdóttur á Handritasafninu eru án safnmarks.
Lbs. Guðfinna Þorsteinsdóttir. Kvæðabók I.
Lbs. Guðfinna Þorsteinsdóttir. Dagbók 8, 28. febrúar 1958; 21. maí 1958.
Lbs. Guðfinna Þorsteinsdóttir. Dagbók 11, 9. október 1963.
26 Mér finnst reyndar þessi heiti, fornar þulur, þulur síðari alda og nútímaþulur vera fremur
óskýr. Í huga nútímafólks gætu síðmiðaldaþulur allt eins verið fornar. Nútímaþulur eru
heldur ekki lýsandi heiti á þulum sem orðnar eru aldargamlar og tuttugustualdar þulur
er rangnefni á þeim þulum sem ortar eru á þessari öld.