Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 8
menning „Staða safnsins er veru- lega slæm og hefur verið það allan tímann í tíð þessarar ríkisstjórnar – því er sýnt mikið afskipta- og metn- aðarleysi,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminjasafns- ins, sem hefur um árabil barist fyrir því í samstarfi við borgaryfirvöld og einkaaðila að grunnsýning safnsins yrði sett upp í Perlunni með aðkomu stjórnvalda. Sú vinna mætti frá upp- hafi tómlæti Illuga Gunnarssonar ráðherra og annarra innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins, að sögn Hilmars. Reykjavíkurborg tilkynnti fyrir helgi að gengið yrði til samninga við Perlu norðursins ehf. um leigu á Perl- unni en félagið hyggst setja upp veg- lega náttúrusýningu í húsinu. Áætlað er að stofnkostnaður sýningarinnar verði hátt í tveir milljarðar króna. Hluthafar eru Landsbréf/ITF1, Perlu- vinir ehf. og Saltland ehf. & Lappland ehf. Hilmar segir að safnið sé í stór- undarlegri stöðu nú þegar nátt- úrusýning einkaaðila í Perlunni er fyrirséð. Eins og frá stofnun þess er safnið án eigin húsnæðis til sýningar- halds, og nú eru einkaaðilar að fara að rækja lögbundnar skyldur höfuð- safns þjóðarinnar. Náttúruminja- safnið kemur vissulega óbeint að þessari vinnu með faglegri ráðgjöf, en samningur liggur fyrir um slíkt við Perluvini. Hvað það þýðir í fram- haldinu, telur Hilmar ekki ljóst. Hilmar hefur bent á að Náttúru- minjasafnið sé skilgreint sem ein af lykilstofnunum landsins á sviði miðlunar og fræðslu í náttúrufræð- um og lögum samkvæmt á stofnunin að hafa sömu stöðu og hin höfuð- söfnin tvö, Þjóðminjasafn Íslands og Listasafn Íslands. Stöðu sinnar vegna sem fræðslu- og menntastofnanir á vegum ríkisins hafa höfuðsöfnin sérstöðu og hlutverki þeirra verður ekki sinnt af einkaaðilum nema að takmörkuðu leyti. „Það eru gríðarleg vonbrigði að ríkisvaldið skuli ekki styðja ein- hverja aðkomu safnsins að þessu verkefni á þessum tímapunkti,“ segir Hilmar en bætir við að það sé svo sem í takt við áherslur ríkisstjórnar- innar varðandi einkavæðingu sam- félagslegrar þjónustu. „Alla vega hefur ráðherra hafnað þeirri leið að ríkið annist þetta, en líka að safnið komi að verkefninu með öðrum. Ráðherra verður að gefa upp hvert hann er að stefna með þetta safn. Ég hef óskað eftir fundum með honum um málefnið en hefur lítið orðið ágengt,“ segir Hilmar sem hefur áður bent á að árlegt rekstrarfé síðastliðin níu ár hefur að jafnaði numið um 25 milljónum króna – á verðlagi hvers árs, en á sama tíma hafa launavísi- tala, neysluvísitala og byggingarvísi- tala hækkað um 45 til 52 prósent og framlögin dragast því jafnt og þétt saman allt tímabilið. Ríkisendurskoðun hefur í tví- gang, fyrst árið 2012 og aftur í maí 2015, fjallað um málefni Náttúru- minjasafnsins og bent Alþingi á að fjárheimildir til höfuðsafnsins séu óásættanlegar og hindri safnið í að uppfylla lögbundnar skyldur sínar. svavar@frettabladid.is Höfuðsafn í stórfurðulegri aðstöðu Forstöðumaður segir stöðu Náttúruminjasafns Íslands stórundarlega nú þegar einkaaðilar setja á fót náttúrusýningu í Perlunni. Hann segir menntamálaráðherra hafa sýnt safninu algjört tómlæti. Safnið sé húsnæðislaust og fjársvelt.  Lögbundnar skyldur eins þriggja höfuðsafna Íslands eru nú í höndum einkahlutafélags. fréttabLaðið/gva Hefur aldrei getað sinnt lögbundnum skyldum l Náttúruminjasafn Íslands er eitt þriggja höfuðsafna landsins auk Listasafns Íslands og Þjóð- minjasafns Íslands og starfar samkvæmt lögum um Náttúru- minjasafn Íslands og Safna- lögum. l Í Náttúruminjasafnslögum segir: „Hlutverk Náttúruminjasafns Ís- lands er að varpa ljósi á náttúru Íslands, náttúrusögu landsins, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd, auk þess að varpa ljósi á samspil manns og náttúru og á náttúru landsins í alþjóðlegu samhengi. […] Safnið skal miðla fræðslu um íslenska náttúru til skóla, fjölmiðla og almennings. Safnið annast rann- sóknir á starfssviði sínu. l Í Safnalögum segir: „Með söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum, sýningum og annarri miðlun er það hlutverk safna að tryggja menningar- og náttúruarf Íslands, varpa ljósi á menningar-, náttúru- og lista- sögu landsins, styrkja safnkost og heimildasöfnun innan síns sérsviðs og gera safnkost sinn og heimildasöfn aðgengileg almenningi og fræðimönnum. Í starfi sínu skulu söfn hafa að leiðarljósi að auka lífsgæði manna með því að efla skilning á þróun og stöðu menningar, lista, náttúru eða vísinda.“ Ráðherra verður að gefa upp hvert hann er að stefna með þetta safn. Ég hef óskað eftir fundum með honum um málefnið en hefur lítið orðið ágengt. Hilmar J. Malm- quist, forstöðu- maður Náttúru- minjasafns Íslands Birting viðauka við grunnlýsingu Útgefandi: Reitir fasteignafélag hf., kt. 711208-0700, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík Reitir fasteignafélag hf. hefur birt viðauka við grunnlýsingu dagsetta 3. desember 2015 sem birt var í tengslum við útgáfuramma skuldabréfa. Viðaukinn er dagsettur 10. mars 2016 og inniheldur upplýsingar sem félagið hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýs- ingaskyldu frá birtingu grunnlýsingarinnar. Viðaukinn er staðfestur af Fjármálaeftirlitinu og skoðast sem hluti af grunnlýsingunni. Viðaukinn er birtur á vefsíðu útgefanda, www.reitir.is/fjarfestar. Grunnlýsinguna og við- aukann má nálgast á vefsíðunni á gildistíma grunnlýsingarinnar og hjá útgefanda á skrif- stofu félagsins í Kringlunni 4-12 í Reykjavík. Reykjavík, 11. mars 2016 Stjórn Reita fasteignafélags hf. Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000 Bandaríkin Leiðtogar Bandaríkj- anna og Kanada heita því að lönd þeirra hafi forystu um að draga úr notkun kolefna. Justin Trudeau, forsætisráð- herra Kanada, og Barack Obama Bandaríkjaforseti skýrðu frá þessu í Washington í gær. Þeir segjast með þessu vilja fylgja eftir samkomulaginu, sem tókst á alþjóðlegu loftslagsráð- stefnunni í París í lok síðasta árs. „Báðir leiðtogarnir líta svo á að Parísarsamkomulagið hafi mark- að tímamót í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsbreytingum og við að tryggja hagvöxt með nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa,“ segir í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu. Trudeau er í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum, fyrstur kana- dískra forsætisráðherra í nærri tvo áratugi. „Það var kominn tími til,“ sagði Obama þegar hann tók á móti Trud eau, og tók fram að þeir hefðu svipað viðhorf til heimsins. Trudeau tók undir þetta og hugði gott til glóðarinnar: „Nú skulum við taka til hendinni við að móta okkar sameiginlegu framtíð.“ Obama á minna en ár eftir í embættinu en Trudeau var kosinn fyrir fáeinum mánuðum. Bæði löndin hafa lengst af staðið sig illa í loftslagsmálum. – gb Ætla að hafa forystu í loftslagsmálum trudeau er fyrsti forsætisráðherra í 19 ár sem boðið er í opinbera heimsókn til bandaríkjanna. fréttabLaðið/EPa 1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U d a g U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 B C -5 4 4 C 1 8 B C -5 3 1 0 1 8 B C -5 1 D 4 1 8 B C -5 0 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.