Fréttablaðið - 11.03.2016, Síða 18
Aðalfundur
Verslunarmannafélags Suðurnesja
verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Reykjanesbæ,
þriðjudaginn 22. mars nk. kl. 18:00.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins
Stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja
að ég væri að stjórna bekknum. Ég
veit ég á það til að vera svolítið stjórn-
söm. Það eru kostir og gallar við það.
Maður verður svolítið frekur, kannski
er það af því að ég er yngst og maður
þurfti að láta heyra í sér svo einhver
myndi hlusta,“ segir Unnur og hlær.
Útskrifuð úr lagadeild lá leiðin til
Ísafjarðar þar sem hún starfaði sem
fulltrúi sýslumanns auk þess sem hún
sinnti formennsku fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ.
„Ísfirðingum fannst ágætt að fá
utanaðkomandi. Það höfðu þá verið
talsverðar innanflokksværingar í kjöl-
far prófkjörs. Þetta var mikið traust
sem mér var sýnt.“
Ekkert púkkað upp á hina
Hún segir aldrei annan flokk en
Sjálfstæðisflokk hafa komið til
greina. Þar spili uppeldið inn í.
„Pabbi var sjálfstæðismaður. Það
var talað mikið um pólitík. Mágur
minn var framsóknarmaður. Það voru
miklar umræður og horft á kosninga-
sjónvarp og rifist um pólitík heima. Þá
varð ég alveg sannfærð um að ég væri
ekki framsóknarmaður. Á þessum
tíma fyrir austan fjall var nefnilega
ekki til annað en Sjálfstæðisflokkur
og Framsókn. Í Rangárvallasýslu
versluðu sjálfstæðismenn á Hellu og
framsóknarmenn á Hvolsvelli. Við
keyrðum alltaf í gegnum Hvolsvöll
yfir á Hellu til þess að versla. Maður
hafði eiginlega ekki komið inn í kaup-
félagið á Hvolsvelli fyrr en maður var
orðinn unglingur,“ segir Unnur og
skellir upp úr.
„Svona var samfélagið sem maður
ólst upp í. Þú sýndir með fótunum
hvern þú studdir og varst ekkert að
púkka upp á hina. Þetta er auðvitað
tími sem er liðinn, sem betur fer.“
Stundum hefur verið talað um að
konur eigi erfitt uppdráttar innan
flokksins. Hefur þú upplifað það?
„Sjálfstæðisflokkurinn er ekkert
fullkominn. Þar hefur verið erfitt fyrir
konur að hasla sér völl, það er ekki
hægt að neita því. Ég hins vegar kem
úr Suðurkjördæmi og fyrir síðustu
alþingis kosningar voru konur í tveimur
efstu sætunum. Ragnheiður Elín í efsta
sæti og ég í öðru. Ég held að þetta sé í
fyrsta skipti í sögu flokksins sem þetta
er staðan á framboðslista til alþingis-
kosninga. Sýnir að við erum búin að ná
árangri. Við gerðum þetta í prófkjöri, á
eigin verðleikum. Ég vil trúa að þetta sé
hægt en það tekur afskaplega langan
tíma. Ég trúi því að jafnrétti kynjanna
sé sjónarmið sem maður eigi að hafa í
kollinum alla daga. Ég á stelpu og strák
og vil að þau hafi jöfn tækifæri. Ég vil
að dóttir mín geti orðið hæstaréttar-
dómari ef hún vill það.“
Stefnan þarf að birtast í verkum
Unga fólkið er að hverfa frá flokkn-
um. Unnur Brá vill að flokkurinn
horfist í augu við það.
„Við þurfum að taka skilaboðin sem
við erum að fá í skoðanakönnunum
alvarlega. Sérstaklega hvað varðar
unga fólkið. Það segist kjósa aðra
flokka. Það er stórt vandamál fyrir
okkur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf haft mikinn hljómgrunn meðal
ungs fólks. Ég tel að hugmyndafræðin
eigi sóknarfæri í þann hóp vegna þess
að ungt fólk í stórum stíl hefur trú á
frelsi, það vill lítil ríkisafskipti og vill
fá að ákveða hlutina sjálft.“
Hún segir vandann hugsanlega
þann að ungt fólk sjái þessa hug-
myndafræði ekki birtast í verkum
flokksins. „Þegar maður er að vinna
þingstörf gerist það að maður fer á
kaf í verkefnið og gleymir að hugsa
um prinsippið. Það gengur ekki að
láta stjórnast af popúlisma.“
Allt til að komast í fréttir
Unnur segir popúlisma raunar ein-
kenna stjórnmálin þar sem stjórn-
málamenn reyni allt til að fanga
athygli sjónvarpsmyndavéla. „Ég
myndi segja að popúlismi væri
aðalvandamál stjórnmálanna í dag.
Það er bara svo einfalt að komast
í sjónvarp. Ef þú ert niðri á þingi
og tekur orðið í þeim dagskrárlið
sem er störf þingsins þá veistu að
sjónvarpið er þar. Og þú veist að
ef þú segir eitthvað nógu krass-
andi kemstu í kvöldfréttirnar. Það
er ríkt í stjórnmálamönnum að
vilja athygli, stjórnmálamenn eru
egóistar og ég er það líka. Maður
þarf að reyna að hemja þann hluta
af sér,“ segir Unnur og hlær. „Maður
er í þessu til að breyta samfélaginu
til hins betra en hinn púkinn er
alltaf þarna. Stundum tekur hann
stjórnina af þingmönnum. Það er
afskaplega freistandi að komast í
sjónvarpið og þá er það oft út af
einhverjum eða út af setningum sem
eru ekkert byggðar á þekkingu eða
upplýsingum. Það er hættulegt. Svo
er erfitt að snúa til baka þegar þú ert
búinn að segja eitthvað svoleiðis.“
Sérstaklega sé þetta áberandi í
umræðu um flóttafólk. Finnst þér við
þurfa gera betur í flóttamannamálum?
„Já, og við erum að gera betur. Þegar
Hanna Birna var innanríkisráðherra
bjó hún til þverpólitíska nefnd sem
fjallaði um útlendingamál. Það er
vinna sem á sér enga hliðstæðu í
undir búningi löggjafar á Íslandi. Það
að við ákveðum að setjast öll niður
með svona erfitt verkefni sem getur
svo auðveldlega sprungið í hönd-
unum á okkur. Það er svo auðvelt að
ákveða að vera ósammala.“
Frumvarpið er framför
Helgi Hrafn Gunnarsson telur
gríðarlega afturför að taka burt
rétt umsækjanda til að koma fram
fyrir kærunefndina. Er eitthvað til í
þessum orðum Helga?
„Það er ekki þannig að fólk fari inn
í kerfið án þess að nokkur hitti það.
Það er ekki stefnan og væri ekki góð
stjórnsýsla. Þetta frumvarp er framför.
Það er engum til góðs að bíða lengi
eftir niður stöðu. Við erum búin að laga
málsmeðferðina mikið. Útlendinga-
stofnun hefur verið að straumlínulaga
sitt kerfi og hefur gengið vel á undan-
förnum mánuðum, þrátt fyrir mikla
fjölgun umsókna. Við höfum sett meira
fjármagn í málaflokkinn. Svo þurfum
við að halda fólki í starfi þannig að það
geti aflað sér þekkingar og tekið utan
um málin – afgreitt þau af meiri festu
og ákveðni. Þegar álagið var sem mest
var starfsfólk að gefast upp.“
Fyrir okkur sem fyrir utan stöndum
virðast dvalarleyfi stundum geðþótta-
ákvarðanir, t.d. geti það haft úrslita-
áhrif ef málin komast í fjölmiðla.
„Ég trúi því að það sé ekki þann-
ig. Við heyrum ekki af öllum málum
í fjölmiðlum. Við erum ekki með öll
gögn þegar verið er að fjalla um mál
í fjölmiðlum, eðlilega ekki, þar sem
um er að ræða persónuupplýsingar.
Þannig að löggjafinn á að tryggja að
lagaramminn sé skýr. Það sé skýrt
hvaða kröfur sé verið að gera og það
sé hægt að vinna þannig eftir þeim að
það taki ekki áraraðir að fá úrlausn
sinna mála.“
Að slást við félaga og vini
Unnur Brá segir erfitt að eiga góða
vini í pólitík. „Ég á vini og kunningja
í þinginu, en svo kemur að því að þú
þarft að fara í prófkjör. Þá ertu að
slást við félaga þína og samstarfs-
menn. Einlægir vinir þínir eru ekk-
ert endilega í þínum flokki. Ég á vini
á ýmsum sviðum í þinginu og marga
kunningja. Vináttan ristir kannski
ekki alltaf mjög djúpt því það getur
komið að því að þú þarft að vera á
móti viðkomandi eða hreinlega
hjóla í hann í prófkjöri.“
Er fólk með allar klær úti í prófkjör-
um? „ Nei, þú velur hvernig þú kemur
fram. Ég hef ekki lent í leðjuslag í próf-
kjörum. Ég hef fundið að fólk hefur
upplifað að ég hjóli í það. Þegar maður
er að bjóða sig fram t.d. í sama sæti og
einhver sem maður þekkir vel. Það er
sárt og það er gríðarlega sárt örugg-
lega að tapa í prófkjöri. Það gæti hent
hvern sem er.“
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
Bjarni Benediktsson, og Unnur Brá
hafa ekki alltaf verið sammála. Opin-
berlega hafa þau skipst á skoðunum
um Icesave og viðskiptaþvinganir
Rússa, svo dæmi séu tekin. Hvernig
er samband þitt við Bjarna? „Það er
ágætt. Það var kannski mest í Icesave
Unnur Brá segir gríðarlega mikilvægt að flóttafólk þurfi ekki að bíða í áraraðir eftir að fá úrlausn sinna mála. FréttABlAðið/Ernir
Ég var þannig í minni pólitík, meira að hugsa um
minn frama og var inni í kassanum. Það er afskap-
lega leiðinlegt. Þú ferð að tala eins og aðrir vilja, þá ertu
líklegri til að fá að vera inn í aðalklíkunni, fá eitthvert emb-
ætti, en þá ertu ekki þú sjálfur og þá líður þér ekkert vel.
↣
1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r18 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð
1
1
-0
3
-2
0
1
6
0
4
:4
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
B
C
-2
2
E
C
1
8
B
C
-2
1
B
0
1
8
B
C
-2
0
7
4
1
8
B
C
-1
F
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
0
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K