Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 11.03.2016, Blaðsíða 21
Þórlindur Kjartansson Í dag Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535 PEUGEOT 308 kostar frá kr. 3.190.000 Þó Peugeot 308 hafi hlotið fjölda verðlauna út um allan heim þá eru það ekki bara verðlaunin sem skera hann frá samkeppninni. Ómótstæðilegir aksturseiginleikar, gott rými fyrir bæði farþega og farangur, eyðslugrannar og endingargóðar vélar*, hvort sem er dísil eða bensín, með eldsneytiseyðslu frá 3,1L/100km og CO2 útblástur frá 82g/km, þá eru þetta eiginleikar sem einfaldlega er erfitt og nær ómögulegt að keppa við. Komdu og prófaðu Peugeot 308 hjá okkur í Vatnagörðunum, bíl sem á sér ekki jafningja. PEUGEOT 308 SPARNEYTIÐ LJÓN Á VEGINUM CO2 82g - ELDSNEYTISEYÐSLA 3,1L/100km * Endalaust ENDALAUS GSM 1817 365.is Ef ég kemst að því að einhver hefur skipt gjöf sem ég gaf þá verð ég móðgaður. Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að þetta er fáránlegt; en ég ræð ekki við þetta. Þetta getur valdið togstreitu, sérstak- lega eftir að ég áttaði mig á því að ég ætti í raun og veru ekki að láta þetta í ljós, heldur að segja að fyrra bragði (með samanbitnar varir): „Þú bara skiptir þessu ef þú vilt.“ Ef ég gef bók, þá ætlast ég til þess að hún sé lesin; ef ég gef flík þá vil ég að hún sé notuð og ef ég gef einhver tæki eða gagnlegan hlut þá vil ég fljótlega skýrslu um hversu mikið hann er notaður. Ef ég gef mynd eða skrautmun þá er ég friðlaus þangað til ég get með eigin augum séð að sá hlutur sé kominn upp á góðan stað á heimili þess sem fékk gjöfina. Þetta er líka ástæða þess að ég hef aldrei sjálfur skilað eða skipt gjöf. Ekki einu sinni ef ég fæ tvö eintök af sama hlutnum, flíkur í vitlausri stærð eða muni sem ég hef engan smekk fyrir. Fyrir mér snúast gjafir ekki um það hvort einhver hafi látið af hendi peninga af skyldurækni, heldur að einhver hafi gefið sér tíma til þess að hugsa um hvað gæti glatt. Allt frá því ég lærði að skrifa hef ég skrifað fremst í allar jólabækurnar ártalið og upplýsingar um hver gaf og bók sem ég hef fengið gefna hef ég aldrei hent. Markaðsmarr í gjafapappír Hins vegar hef ég aldrei haft neinar sér- stakar taugar til ýmis konar gjafavöru sem mér hefur verið rétt á ráðstefnum eða vörukynningum. Þær eru gefnar í kynningar- og auglýsingaskyni og hafa þar af leiðandi ekkert sérstakt tilfinninga- legt gildi. Þó finnst mér oft gaman að sjá það þegar fyrirtæki leggja sig fram um að styrkja menningarlega viðburði og íþróttamót, eins og til dæmi flugelda- sýninguna á Menningarnótt í Reykjavík sem Orkuveita Reykjavíkur studdi lengi með miklum myndarbrag. Ég hafði gaman af flugeldasýningunni, en lét það svo sem ekki hafa nein áhrif á það hvort ég væri í viðskiptum við Orkuveituna; það var nokkurn veginn sjálfgefið. Ég man líka eftir því að hafa fengið Nýja- Testamentið að gjöf frá Gideónhreyfing- unni þegar ég var í grunnskóla. Mér þykir enn vænt um að sjá ljósbláa kjölinn í hill- unni og vita til þess að góðviljað fólk lagði það á sig að safna fyrir henni og koma í skólann til þess að gefa öllum eintak, jafn- vel þótt Gideónfélagarnir hefðu eflaust vonast til þess að ég yrði duglegri við að lesa bókina og lifa eftir boðskap hennar. Óæskilegar gjafir Sem betur fer er það nokkuð algengt að fólk, samtök og fyrirtæki sýni því áhuga að gera eitthvað gott fyrir umhverfi sitt og meðborgara. Þetta getur þó verið vandasamt þegar kemur að börnum og skólastarfi, eins og Reykjavíkurborg hefur komist að. Fréttir af ofsafenginni tauga- veiklun borgaryfirvalda gegn hvers konar gjöfum til skólabarna hafa á undan- förnum misserum valdið heilabrotum. Frægustu og bestu dæmin eru af augljós- lega saklausum og jákvæðum hlutum sem meirihlutinn í borginni hefur kosið að beita sér harkalega gegn. Eimskip og Kiw- anis mega ekki lengur gefa börnum reið- hjólahjálma á skólatíma í Reykjavík, það mátti ekki gefa tannþráð og tannbursta og heljarinnar fjargviðri var blásið upp til að koma í veg fyrir að góðviljaðir áhugamenn um raunvísindi og stjörnuskoðun gæfu reykvískum börnum sólmyrkvagleraugu. Röksemdir borgarinnar voru ætíð á þá lund að í þessu fælist einhvers konar markaðssetning, þar sem gjafirnar voru merktar. Ætli borgaryfirvöldum hafi þótt líklegt að grunnskólabörn yrðu svo upp- numin af rausnarskap Eimskips að þau heimti í framhaldinu að foreldrar þeirra hætti að kaupa vörur sem eru fluttar með Samskipum; eða verði svo trufluð af þakklæti í garð Hótel Rangár (sem styrkti sólmyrkvagleraugun) að þau tækju ekki annað í mál en að verja sumarfríinu við bakka Rangár í 300 evra lúxus-svítum? Það er auðvitað hægt að sjá fyrir sér að gjafir til skólabarna geti orkað tvímælis og rétt að fara varlega þegar um augljósan markaðslegan tilgang er að ræða. Þó er óþarfi að fara á taugum yfir því. Réttara væri treysta kennurum og skólastjórn- endum til þess að beita dómgreind sinni í hverju tilviki; í stað þess að sýna þeim þá lítilsvirðingu að snupra þá til þess að hlýða embættismönnum og stjórnmála- mönnum í svo léttvægum málum. Menningarleg markaðssetning Sem betur fer mun ein almenn undanþága gegn markaðsstarfi í skólum vera til stað- ar. Framleiðendur efnis í barnabækur hafa hingað til fengið leyfi til þess að stunda markaðsstarf, kynningar og markaðsrann- sóknir gagnvart markhópi sínum inni í skólunum. Persónulega finnst mér það allt í lagi, og hefði ekki áhyggjur þótt fleiri hefðu slíka undanþágu. Meirihlutanum í borginni finnst eflaust saklausara að verið sé að kynna menningarlega hluti heldur en „ómenningarlega“. Í því ljósi væri fróðlegt að sjá hvort meirihlutanum þætti tilefni til að endur- skoða þá stefnu sína ef Hannes Hólm- steinn Gissurarson tæki sig til og skrifaði barnabók og færi í heimsóknir til að lesa upp úr henni í skólum borgarinnar. Bókin gæti heitið „Allt í vaskinn“ og fjallað um framtakssöm ungmenni sem hefja fram- leiðslu á límonaði en lenda svo í klóm skattayfirvalda eftir að hafa vanrækt að skila vsk-skýrslum í upphafi starfseminn- ar. Svo komast þau að því að skattheimtu- mennirnir ætla að nota peningana þeirra til þess að niðurgreiða samkeppnina í Mjólkursamsölunni og upphefst frá því mikið ævintýri þar sem hið góða sigrar að lokum. Ætli meirihlutinn í borginni yrði ekki bara sallarólegur með það? Sér æ gjöf til gjalda? Bragi Ingason Einar Árnason Guðjón Steinsson Hilmar B. Jónsson Karl Finnbogason Ragnar Guðmundsson Sigurvin Gunnarsson Jón G. Sigurðsson Þann 11. nóvember 2015 fór hópur af eldri félögun Klúbbs matreiðslumeistara í heimsókn til nýja heimaslátur- hússins að Seglbúðum hjá Erlendi Halldórssyni og konu hans. Þessi ferð var okkur mikið forvitnis- efni enda höfðum við fylgst með áhuga á opnun þessa fyrsta löglega heimasláturhúss á landinu. Erlendur og kona hans sögðu hina ótrúlegu raunasögu sem þau þurftu að ganga í gegnum til að fá atvinnuleyfi. Þessi raunasaga er reyndar svo ótrúleg að það er að okkar áliti kraftaverk að þau hafi ekki einfaldlega gefist upp. Þarna er rekið sláturhús sem getur skaffað vöru sem hefur verið látin kólna í tveimur stigum og síðan hanga í kæli í fjóra sólarhringa fyrir frystingu. Seglbúðir geta skaffað nafn á bæjum sem kjötið kemur frá, sem æ fleiri gefa mikið fyrir. Hvort sem um lamb eða stórgripi er að ræða. Hin sláturhúsin í landinu geta ekki einu sinni lofað því að lambið sem þú kaupir sé nýslátrað eða meira en ársgamalt. Sem við höfum því miður persónulega reynslu af. Nú er búið að loka fyrir dreifingu frá húsinu og eftir því sem undir- ritaðir hafa lesið í fjölmiðlum og eftir viðtal við Erlend eru ástæð- urnar að mestu leyti misskilningur byggður að stærstum hluta á því að ekki hafi fengist leyfi til að taka út húsið af eftirlitsaðilum á tíma sem verið var að setja inn línu fyrir stórgripi og engin slátrun í gangi í langan tíma. Við, þessir matreiðslumeistarar sem fórum á staðinn og skoðuðum aðstöðuna, skorum á yfirvöld í viðkomandi greinum og ráðherra að ganga í að taka málið föstum tökum og koma á sáttum svo hægt verði að reka staðinn á þann frá- bæra hátt sem húsið er byggt fyrir. Við fögnum því að einhver hafi riðið á vaðið með að reisa svona sláturhús sem að okkar mati er að gera hlutina hárrétt. Því miður erum við ekki svo vissir um þær aðferðir sem viðhafðar eru í flest- um af stóru sláturhúsunum, þar sem hraðinn á slátrun og verkun er orðinn svo mikill að það er farið að koma niður á gæðum. Er eitthvað óeðlilegt að gerast varðandi Seglbúðir? Fyrir mér snúast gjafir ekki um það hvort einhver hafi látið af hendi pen- inga af skyldurækni, heldur að einhver hafi gefið sér tíma til þess að hugsa um hvað gæti glatt. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F Ö s T u d a g u R 1 1 . m a R s 2 0 1 6 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -4 5 7 C 1 8 B C -4 4 4 0 1 8 B C -4 3 0 4 1 8 B C -4 1 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.