Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 31

Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 31
Þannig fara saman hagsmunir kröfuhafa og greiðenda en markmiðið er að innheimtan sem slík raski ekki viðskiptasambandi fyrirtækis og viðskiptavina þess sem eiga í tímabundið í erfið- leikum með að standa í skilum. Davíð Gíslason Lögfræðistofur 11. mars 2016 Kynningarblað Momentum | ÓK lögmenn | Lögmenn Laugavegi 3 | Innkasso Löginnheimta | „Útvistun innheimtu felur í sér mikið hagræði en þannig geta fyrirtæki einbeitt sér að kjarnastarfsemi,“ segir Davíð. Innheimta eðlilegur hluti allrar starfsemi Mikil viðhorfsbreyting hefur orðið í þjóðfélaginu síðustu ár með út- vistun innheimtu enda felst mikið hagræði í því að geta útvistað slíkri starfsemi til sérfræðinga og einbeitt sér að kjarnastarf- semi. „Þannig fara saman hags- munir kröfuhafa og greiðenda en markmiðið er að innheimtan sem slík raski ekki viðskiptasambandi fyrirtækis og viðskiptavina þess sem eiga tímabundið í erfiðleik- um með að standa í skilum,“ segir Davíð Gíslason, framkvæmda- stjóri Momentum en starfsfólk Momentum veitir upplýsingar og ráðgjöf um hvernig best er að haga innheimtumálum fyrirtækja og stofnana. Sveigjanleiki í fyrirrúmi Milliinnheimtuferli Momentum er mjög sveigjanlegt en ferlið er sér- stakt fyrir hvern og einn kröfu- hafa og þannig hefur kröfuhafi mjög mikið svigrúm til að laga innheimtuferlið að þörfum sinna viðskiptavina. „Þannig fer fjöldi innheimtubréfa, símhringinga og tímalengd milli aðgerða eftir óskum kröfuhafa og mati hans á þörfum viðskiptavina hans. Kröf- ur sem eru í innheimtu hjá Mo- mentum lifa áfram í bankakerfinu og eru því sýnilegar í heimabanka greiðenda. Kröfuhafar geta ráðið því hvort kröfur fari sjálfvirkt til innheimtu hafi þær ekki verið greiddar á eða eftir eindaga eða valið að senda einstakar kröfur til Momentum eftir því sem þeim þykir sjálfum viðeigandi,“ útskýr- ir Davíð. Hagkvæm og auðveld rafræn samskipti Mikil þróun hefur orðið á síðustu misserum í rafrænum samskiptum milli banka, rekstraraðila og inn- heimtufyrirtækja sem auðveldar uppgjör, upplýsingaflæði og öryggi við milliinnheimtu. „Fyrir nokkr- um árum var farið að bjóða upp á beina rafræna skiptingu greiðslna við uppgjör krafna í milliinn- heimtu, en þetta skiptigreiðslu- kerfi er til mikilla hagsbóta fyrir alla aðila. Það þýðir að þegar krafa er greidd er henni skipt upp í bankanum og fær kröfuhafi strax höfuðstól og dráttarvexti kröfunn- ar inn á sinn reikning en Moment- um fær áfallinn kostnað inn á sinn reikning. Momentum meðhöndlar þess vegna aldrei peninga kröfu- hafa heldur koma þeir beint inn á reikning kröfuhafa eins og um hverja aðra greidda kröfu væri að ræða. Í þessu felst mikil hagræð- ing bæði fyrir innheimtuaðila og kröfuhafa, sem ekki þurfa lengur að sækja skilagreinar til Moment- um,“ segir Davíð. Enginn kostnaður kröfuhafa Kröfuhafi greiðir að sögn Dav- íðs engan kostnað af þjónustu Mo- mentum, engin árgjöld eða annan fastan kostnað. „Þá greiðir kröfu- hafi heldur engin skráningargjöld krafna, hlutfall af höfuðstól kröfu eða kostnað við að nýta sér skipti- greiðslukerfið. Almenn stefna Mo- mentum er sú að kostnaður af inn- heimtum lendi á þeim sem stofn- uðu til hans með því að greiða ekki kröfu á umsömdum tíma, en dreifist ekki almennt á alla við- skiptavini kröfuhafa. Þannig er tryggt að þeir sem standa skil á greiðslum á tilsettum tíma geti notið bestu kjara í viðskiptum sínum við kröfuhafa.“ Lausnamiðuð innheimtuþjónusta „Hjá Momentum og Gjaldheimt- unni er lögð mikil áhersla á að koma fram af lipurleik og virðingu í innheimtunni sjálfri og freista þess í lengstu lög að semja um frá- gang mála við greiðendur, en sú aðferðafræði skilar að okkar mati betri árangri til lengri tíma litið,“ segir Davíð. Öflugur þjónustuvefur Allir kröfuhafar fá aðgang að að- gangsstýrðu vefsvæði sem veitir yfirsýn yfir kröfur sem eru í inn- heimtu. Þar er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar svo sem um stöðu krafna, samskipti við greið- endur, senda inn athugasemdir eða upplýsingar, taka út ýmsar skýrslur um innheimtuna og svo framvegis. Momentum býður jafn- framt upp á beintengingar við öll helstu bókhaldskerfi til hagræð- is fyrir kröfuhafa sem auðveldar mjög alla vinnslu. „Útrás“ á landsbyggðinni Mikil aukning hefur að sögn Dav- íðs verið á verkefnum Momentum og Gjaldheimtunnar enda hefur nálgun fyrirtækjanna að inn- heimtustarfsemi fallið vel í kramið hjá viðskiptavinunum. „Moment- um og Gjaldheimtan hafa um ára- bil haft hluta af starfsemi sinni á Siglufirði og er það dæmi um að fyrirtækin vilji stuðla að meiri ná- lægð við þá aðila sem verið er að þjónusta á landsbyggðinni. Í sam- ræmi við það hefur fyrirtækið nú sett á fót starfsstöðvar á Sauðár- króki og Selfossi og er opnun fleiri starfsstöðva á landsbyggðinni nú til skoðunar.“ Sveigjanleg alhliða innheimtuþjónusta með lægri kostnað að leiðarljósi Momentum innheimtuþjónusta veitir alhliða þjónustu við innheimtu, allt frá útgáfu greiðsluseðils til löginnheimtu. Momentum, sem tók til starfa árið 2000, er í eigu þriggja lögmanna sem einnig starfrækja löginnheimtufyrirtækið Gjaldheimtuna, sem var stofnuð árið 2003. Momentum sinnir frum- og milliinnheimtu en Gjaldheimtan löginnheimtu. Hjá fyrirtækjunum starfa um það bil 30 starfsmenn, þar af fimm lögmenn. Höfuðstöðvar félaganna eru að Suðurlandsbraut 18 en auk þess starfrækir Momentum starfsstöðvar á landsbyggðinni. 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -2 2 E C 1 8 B C -2 1 B 0 1 8 B C -2 0 7 4 1 8 B C -1 F 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.