Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 38

Fréttablaðið - 11.03.2016, Side 38
Morgunmaturinn? Það er oftast smoothie, brauð með avókadói og kaffi – og svo ör- lítið meira kaffi. Uppskriftin að góðri helgi? Að fara á milli og skoða skemmtilegar hönnunarsýn- ingar. Koma svo við á kaffi- húsi með góðum vinum. Já, og sofa út. Hvers konar hönnun er í mestu uppáhaldi? Það er vönduð hönnun sem endist lengi og eldist vel. Uppáhaldsvefsíðan? Þessa dagana er það hönnunar- mars.is þar sem nálgast má allar upplýsingar um Hönn- unarMars 2016. Hvaða bækur eru á nátt- borðinu? Um þessar mund- ir eru það Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur og Vertu úlfur eftir Héðin Unnsteins- son. Ég mæli eindregið með báðum þessum bókum. Helstu verkefnin á meðan HönnunarMars stend- ur yfir? Verkefnin í kring- um svona stóra hátíð eru ansi mörg en mín snúa aðallega að því að ritstýra dagskrár- bæklingnum og dagskránni á vefnum ásamt kynningar- málum. Ertu búin að plana sumarfrí- ið? Ég ætla að starta sumrinu snemma með því að skreppa til Phoenix í Arizona eftir að HönnunarMars lýkur. Það ætla ég að fá smá sól í kropp- inn og skoða litríka kaktusa. Elín ÞorgEirsdóttir Er ritstjóri dagskrár- bæklingsins og HEfUr yfirUMsjón MEð kynn- ingarMálUM HönnUn- arMars sEM nú stEnd- Ur yfir. Lífsstíll Elínar ÞorgEirs- dóttur Flestir hafa heyrt fjöldann allan af ráðum um hvernig best er að lifa heilbrigðu lífi – borða hollt, hreyfa sig og svo framvegis. Þetta hljómar allt- af jafn einfalt en auðveldara er um að tala en í að komast. Leyndarmálið á bak við það hvernig bæta eigi lífsstíl- inn er að gera það hægt og rólega, gera smáar og fáar breytingar í einu. Hér má finna nokkrar góðar leiðir að bættum lífsstíl. nægUr svEfn Ónógur svefn gerir fólk þreytt og pirrað og getur valdið einbeiting- arskorti. Nokkrar rannsóknir sýna að átta tímar á sólarhring í svefn sé passlegt en það er mjög einstak- lingsbundið og getur verið allt frá sex tímum upp í tíu. MorgUnMatUr Staðgóður morgunmat- ur er gott vega- nesti út í dag- inn. Það þarf ekki að taka langan tíma að græja sér eitthvað hollt að borða á morgnana og meira að segja er hægt að útbúa morgunmatinn kvöldið áður og taka hann með sér í vinnuna. HrEyfing Snjallt er að sameina fjöl- skylduna á heilbrigð- an máta og fara út og hreyfa sig, fara út að ganga, hjóla, skíða eða synda. Þann- ig má slá marg- ar flugur í einu höggi. Hollráð UM HEilsU – góð vísa Er Ekki of oft kvEðin Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir ölskyldunnar og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næringar- ríkan mat frá grunni eins og það vildi gera, m.a. til þess að forðast aukaefni og of mikinn sykur. Þannig að fljótlega varð okkar næsta verkefni að búa til heilsurétti án aukaefna, viðbætts sykurs, eins og maturinn væri í raun matreiddur í eldhúsinu heima, en samt hægt að kaupa tilbúna úti í búð. Við höfum útbúið þrjá nýja heilsurétti, Grænmetislagsagna, Gulrótarbu og Indverskar grænmetisbollur. Bragðgóðir réttir, fullir af þarflegum næringarefnum. Bestu kveðjur, Berglind og Siggi. Hollusturettir 1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r12 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -4 A 6 C 1 8 B C -4 9 3 0 1 8 B C -4 7 F 4 1 8 B C -4 6 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.