Fréttablaðið - 11.03.2016, Page 46

Fréttablaðið - 11.03.2016, Page 46
Í dag 19.40 Juventus - Sassuolo Sport 3 19.50 Breiðab. - Víkingur Ó. Sport 4 19.50 Reading - C. Palace Sport 2 20.00 Valspar Championsh. Golfst. 21.00 Körfuboltakvöld Sport 01.00 Memphis - N. Orleans Sport Tölur frá Algarve- mótinu í Portúgal 23 Fengu tækifæri í byrjunarliðinu hjá Frey Alexanderssyni á Algarve-mót- inu. Andrea Rán Snæfeld Hauksdótt- ir var sú síðasta og skoraði í sinum fyrsta byrjunarliðsleik á mótinu. 6 Skoruðu fyrir íslenska liðið á mótinu. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Elín Metta Jensen, Sandra María Jessen, Hólm- fríður Magnúsdóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir skoruðu allar. 4 Byrjuðu flesta leiki á mótinu. Anna Björk Kristjánsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir voru allar þrisvar sinnum í byrjunarliðinu. 3 Báru fyrirliðabandið á mótinu. Margrét Lára Viðarsdóttir var fyrirliði í tveimur leikjum og þær Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjars- dóttir í hinum. Liðin sem mætast í átta liða úrslitum Domino’s-deildar karla Meistarar með stæl KR-ingar fengu afhentan deildarbikarinn í Domino’s-deild karla í gær en þá fór lokaumferð deildarkeppninnar fram. Brynjar Þór Björnsson fyrirliði lyftir hér bikarnum í Breiðholti en KR valtaði yfir ÍR í gær. FRéttABLAðið/ViLHELM Fótbolti Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðs- ins, fór sáttur heim frá Algarve-mót- inu í Portúgal með bronsverðlaun í farteskinu eftir sigur á Nýja-Sjálandi í bronsleiknum á miðvikudags- kvöldið. Þrátt fyrir að Ísland hafi verið hársbreidd frá því að komast í úrslitaleik mótsins segir Freyr að margt jákvætt hafi einkennt leik íslenska liðsins og að þjálfarateymið hafi náð flestum sínum markmiðum sem það setti sér fyrir mótið. „Fyrst og fremst var ég ánægður með hversu góð frammistaða liðsins var heilt yfir og hversu gott hugar- far leikmenn voru með. Við þjálfar- arnir fengum jákvæð svör við þeim spurningum sem við höfðum og erum með mun skýrari sýn fyrir liðið eftir mótið,“ segir Freyr sem segir að leikmenn hafi náð að bregð- ast vel við þeim lagfæringum sem hann vildi gera á leik liðsins. „Við vorum svo heppin að fá að spila við lið sem höfðu mismunandi leikstíl og leikfræði og náðum við að bregðast mjög vel við aðstæðum hverju sinni,“ sagði Freyr en Ísland vann Belgíu og Danmörku í fyrstu tveimur leikjunum en tapaði svo fyrir Kanada. Styrkti mína sannfæringu „Eftir leikinn gegn Kanada, þar sem við áttum fremur dapran fyrri hálf- leik, mættum við Nýja-Sjálandi sem spilar svipaðan fótbolta. Þar áttum við skínandi góðan fyrri hálfleik og náðum að leysa það sem við gerðum ekki vel gegn Kanada.“ Það var stutt á milli leikja á mót- inu í Portúgal og eins og sjá má á meðfylgjandi tölum notaði Freyr stóran hóp leikmanna. „Það styrkti þá sannfæringu sem við höfðum um hversu góða breidd við erum með í okkar hópi. Allir tóku sínum hlutverkum fagnandi og voru með sitt á hreinu. Aldursbilið í hópnum er einnig mjög gott og spannar mörg ár. Það er mjög góður aldur á íslenska landsliðinu.“ Undirbúningur fyrir stórmót Ísland hefur verið fastagestur á Al garve-mótinu undanfarin ár og Freyr segir að mikilvægi þess sé gríðarlega mikið fyrir íslenska landsliðið. „Það er eitt og sér ákveðin próf- raun fyrir liðið að vera saman, dag og nótt, í ellefu daga. Það er í raun ekki hægt að fá betri æfingu fyrir stórmót,“ segir hann. „Þá eru leik- irnir allir í virkilega góðum gæða- flokki og öll lið sem við mætum ýmist betri en við eða jafn góð.“ Hann segir einnig gott að geta dreift álaginu á milli leikmanna. „Það þýðir að við eigum nú hóp 30-35 leikmanna sem við treystum fyllilega til að spila með landsliðinu, sem er afar dýrmætt.“ Horfum bjartsýn til framtíðar Ísland vann fyrstu þrjá leiki sína í undankeppni EM 2017 í haust en liðið mætir næst Hvít-Rússum ytra þann 12. apríl. Ísland mætir svo Skotum, sem er einnig með fullt hús stiga, ytra 3. júní og gæti sá leikur ráðið miklu um toppbaráttu riðils- ins og sæti á EM 2017 í Hollandi. Ísland hefur verið þátttakandi á síðustu tveimur Evrópumeistara- mótum og Freyr er ánægður með hversu vel hafi gengið að móta nýja kynslóð sem taki við af brautryðj- endunum sem komu Íslandi á sitt fyrsta stórmót fyrir sjö árum. „Við getum horft bjartsýn til framtíðar. Við eigum stóran hóp ungra leikmanna sem hafa sýnt að þeir geta staðið í lappirnar og gripið sín tækifæri. Þetta eru leikmenn sem eiga bara eftir að verða betri. Þegar fyrsta kynslóðin, sem kom okkur fyrst á EM, hverfur endanlega þá er ný kynslóð tilbúin.“ eirikur@frettabladid.is Ný kynslóð verður tilbúin Ísland vann bronsverðlaun á sterku Algarve-móti í Portúgal þetta árið og er Freyr Alexandersson ánægður með útkomuna. Hann segir liðið á góðum stað og vel í stakk búið að tryggja sér sæti á EM 2017 í Hollandi. Við eigum stóran hóp ungra leik- manna sem hafa sýnt að þeir geta staðið í lappirnar og gripið sín tækifæri. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Domino’s-deild karla Haukar - Höttur 87-66 Haukar: Brandon Mobley 28/16 frák., Kári Jónsson 18, Kristinn Jónasson 11. Höttur: Tobin Carberry 29/11 frák., Hreinn Gunnar Birgisson 11, Eysteinn Ævarsson 8. Þór - Snæfell 88-82 Þór: Vance Hall 27, Halldór Hermannsson 14, Ragnar Bragason 10. Snæfell: Sherrod Wright 29/15 frák., Sigurður Þorvaldsson 23, Austin Bracey 15. Stjarnan - Keflavík 73-71 Stjarnan: Al’lonzo Coleman 24, Marvin Valdimarsson 15, Justin Shouse 13. Keflavík: Magnús Már Traustason 18, Jerome Hill 14, Reggie Dupree 11. ÍR - KR 69-96 ÍR: Sveinbjörn Claessen 11, Sæþór Kristjáns- son 10, Björgvin Ríkharðsson 8. KR: Michael Craion 32, Snorri Hrafnkelsson 12, Darri Hilmarsson 11. FSu - tindastóll 82-114 FSu: Chris Woods 26, Bjarni Gunnarsson 21, Haukur Hreinsson 9. tindastóll: Pétur Rúnar Birgisson 24, Helgi Viggósson 24, Darrel Lewis 12. Grindavík - Njarðvík 100-85 Grindavík: Þorleifur Ólafsson 27, Charles Garcia 21, Ómar Örn Sævarsson 20. Njarðvík: Jeremy Atkinson 28, Haukur H. Pálsson 20, Adam Ásgeirsson 13. Lokastaðan Efst KR 36 Stjarnan 32 Keflavík 30 Haukar 30 Þór Þorl. 28 Tindastóll 28 Neðst Njarðvík 22 Grindavík 18 Snæfell 16 ÍR 12 FSu 6 Höttur 6 Nýjast olís-deild karla Fram - ÍR 22-24 Fram: Stefán Darri Þórsson 7, Garðar Sigur- jónsson 4/2, Sigurður Þorsteinsson 4. ÍR: Ingi Rafn Róbertsson 7, Jón K. Björgvins- son 6, Jón H. Gunnarsson 5. Afturelding - Valur 24-26 Afturelding: Mikk Pinnonen 9, Birkir Bene- diktsson 5, Gunnar Kristinn Þórsson 3. Valur: Elvar Friðriksson 7, Guðmundur Hólmar Helgason 6, Vignir Stefánsson 5. ÍBV - Grótta 24-24 ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 7/1, Andri H. Friðriksson 6, Agnar Smár Jónsson 4. Grótta: Júlíus Þórir Stefánsson 6, Viggó Kristjánsson 5/2, Styrmir Sigurðsson 3. Efst Haukar 39 Valur 34 Afturelding 24 ÍBV 24 Fram 22 Neðst Grótta 22 FH 21 Akureyri 20 ÍR 16 Víkingur 8 Undankeppni EM Sviss - Ísland 22-21 Ísland: Karen Knútsdóttir 6/4, Solveig Lára Kjærnested 5, Ramune Pekarskyte 4, Arna Sif Pálsdóttir. Varin skot: Florentina Stanciu 20/2. Ísland er búið að tapa öllum leikjum sínum í undankeppninni. Evrópudeild UEFA Liverpool - Man. Utd 2-0 1-0 Sturridge, víti (20.), 2-0 Firmino (73.). Basel - Sevilla 0-0 Dortmund - tottenham 3-0 1 og 8 2 og 7 3 og 6 4 og 5 1 1 . M A r s 2 0 1 6 F Ö s t U D A G U r26 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð sport 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -3 1 B C 1 8 B C -3 0 8 0 1 8 B C -2 F 4 4 1 8 B C -2 E 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.