Fréttablaðið - 11.03.2016, Síða 54

Fréttablaðið - 11.03.2016, Síða 54
Edda Björgvins, ein ástælasta gamanleikkona þjóðarinnar, kemur fram í Austurbæ kvöld. FréttABlAðið/Anton Brink Hvað? Hvenær? Hvar? Föstudagur 11. mars 2016 Tónlist Hvað? Kim Rune Hagen Hvenær? 22.00 Hvar?  Glaumbar Norski stórsöngvarinn Kim Rune Hagen kemur fram á tónleikum á Glaumbar í kvöld ásamt hljóm- sveit. Kim Rune er að gera það gott í Noregi og komst til dæmis í undanúrslit í The Voice í Noregi á síðasta ári og lenti í 3. sæti í norska Idolinu árið 2007. Kim Rune og hljómsveitin ætla meðal annars að leika ýmsa fönk- og poppslagara, í bland við sálar- og R&B-tónlist. Allir velkomnir. Hvað?  Belleville Hvenær?  21.00 Hvar?  Café Haïti Belleville sérhæfir sig í musette- tónlist, sem leikin var á harmón- íkuböllum í Frakklandi á fyrri hluta 20. aldar og af mestum krafti í hinu rómaða Belleville-hverfi í París. Hljómsveitina skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (gítar og söngur), Olivier Moschetta (bassi) og Rut Berg Guðmundsdóttir (harmon- ikka). Aðgangseyrir: 1.500 Hvað?  Bubbi & Dimma Hvenær?  20.30 Hvar?  Háskólabíó Samstarf Bubba Morthens og hljómsveitarinnar Dimmu þarf vart að kynna en skemmst er að minnast frábærra tónleika þeirra í Eldborgarsal Hörpu í mars á þessu ári. Fyrir jólin kom út tvö- faldur CD/DVD tónleikapakki sem tekinn var upp á þeim tónleikum og hefur diskurinn fengið feikna- góðar viðtökur. Hvað?  DJ Silja Glömmi Hvenær?  21.00 Hvar?  Boston Hvað?  Rokktríó Jonna Ólafs Hvenær?  22.00 Hvar?  Hressó Fundir Hvað?  Frjáls sala áfengis? Hvenær?  17.00 Hvar?  Háskólinn í Reykjavík, M101 Á mælendaskrá eru: Skafti Harðar- son, formaður Samtaka skatt- greiðenda, Rafn Steingrímsson, 2. varaformaður SUS og forsvars- maður www.vinbudin.net, Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, og Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar. Hvað?  Öðruvísi á litinn – ytra útlit, innri hugsun Hvenær?  12.00 Hvar?  Þjóðminjasafn Íslands Hvað segir útlit, klæðaburður, litarháttur og fas um einstakling- inn? Hvernig lesa aðrir í útlit okkar og hvaða áhrif hefur það á hvernig þeir flokka okkur og geta sér til um viðhorf okkar og tilfinningar? Hvaða þættir móta okkur raun- verulega sem einstaklinga og hvað segir litarháttur um það hvernig við erum raunverulega „á litinn“? Í erindi sínu ætlar Svava Bern- harðsdóttir, víóluleikari og heims- hornaflakkari, að segja frá reynslu sinni og svara þessum áleitnu spurningum. Hvað?  Annað sjónarhorn á flótta- mannavandann í Evrópu Hvenær?  12.00 Hvar?  Háskólinn í Reykjavík Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, opnar mál- stofuna. Egill Ólafsson tónlistar- maður kynnir þýska rithöfundinn og baráttumanninn Heins Ratz. Heinz Ratz fjallar um stöðu flótta- manna í Þýskalandi og hvernig hann hefur leitast við að rjúfa einangrun og styrkja stöðu þessa þjóðfélagshóps með djarfri og persónulegri aðferð. Helga Vala Helgadóttir, héraðsdómslögmaður og leikkona, flytur erindið: Hvers virði er manneskjan? Málstofan Hvað? Hvenær? Hvar? Mánudagur 4. mars 2016 er öllum opin og aðgangur er ókeypis. Hvað?  Málstofa - Krakkar fíla leiksvæði Hvenær?  17.00 Hvar?  Kjarvalsstaðir Félag íslenskra landslagsarkitekta stendur fyrir málstofu um hönnun, mikilvægi vandaðra leikskólalóða og framtíð þeirra í borgarlands- laginu. Á málstofunni munu ein- staklingar úr margvíslegum áttum fjalla um þeirra sýn á útisvæði leikskóla. Uppákomur Hvað? Willow Project - Hönnunarmars Hvenær? 10.00 Hvar?  Sjóminjasafnið í Reykjavík Þriðja árs nemar í vöruhönnun í Listaháskóla Íslands setja upp sýninguna The Willow Project. Verkefnið Willow Project eða Úr viðjum víðis var unnið í áfang- anum „Stefnumót hönnuða við skógræktarbændur“ í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur. Áhersla var lögð á að umbreyta víðinum á margvíslegan máta og búa þannig til fjölbreytt hráefni með ólíka eiginleika. Hvað?  Íslensk húsgögn og hönnun Hvenær?  10.00 Hvar?  Hafnarhús – Listasafn Reykjavíkur Íslenskir húsgagnaframleiðendur sýna nýjungar í framleiðslu þar sem hönnun og gott handbragð haldast í hendur. Hönnuðir og framleiðendur hafa um árabil átt árangursríkt samstarf og á sýning- unni gefst almenningi kostur á að sjá það allra nýjasta frá þeim. REYKJAVÍK 5:50 BROTHERS GRIMSBY 8, 10 TRIPLE 9 8 ZOOTROPOLIS 2D 3:40, 5 ÍSL.TAL ZOOTROPOLIS 2D 5:55 ENS.TAL FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8, 10 DEADPOOL 10:25 ALVIN OG ÍKORNARNIR 3:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar -T.V., Bíóvefurinn KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKA GODS OF EGYPT KL. 8 - 10:40 LONDON HAS FALLEN KL. 8 - 10:10 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 3D KL. 5:40 ZOOLANDER 2 KL. 5:40 GODS OF EGYPT KL. 5:20 - 8 - 10:40 GODS OF EGYPT VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40 LONDON HAS FALLEN KL. 8 - 10:20 LONDON HAS FALLEN VIP KL. 3 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 2D KL. 3:20 - 5:40 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 3D KL. 3:20 - 5:40 ZOOTROPOLIS ENSKT TAL 2D KL. 3 - 8:20 ROOM KL. 8 - 10:40 ZOOLANDER 2 KL. 5:40 - 8 HOW TO BE SINGLE KL. 10:20 DIRTY GRANDPA KL. 10:40 ÚBBS! NÓI ER FARINN... ÍSLTAL KL. 3 STAR WARS 2D KL. 5 GÓÐA RISAEÐLAN ÍSLTAL 2D KL. 3:20 GODS OF EGYPT KL. 5:20 - 8 - 10:40 LONDON HAS FALLEN KL. 5:40 - 8 - 10:20 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 2D KL. 5:30 ROOM KL. 8 - 10:30 ZOOLANDER 2 KL. 5:40 - 8 HOW TO BE SINGLE KL. 10:20 GODS OF EGYPT KL. 8 - 10:40 LONDON HAS FALLEN KL. 5:40 - 8 - 10:20 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 2D KL. 5:40 ROOM KL. 5:30 - 8 - 10:30 GODS OF EGYPT KL. 8 - 10:40 LONDON HAS FALLEN KL. 10:10 THE BROTHERS GRIMSBY KL. 8 ZOOTROPOLIS ÍSLTAL 3D KL. 5:40 ALVIN OG ÍKORNARNIR 4 ÍSLTAL KL. 5:50 EGILSHÖLL TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á biAMS Sýnd með íslensku og ensku tali “A VERY STRONG ACTION THRILLER” TIFFANY SMITH - FANDANGO “DEFINATELY A NAIL BITER” GINA PICCALO - LOS ANGELES TIMES óskarsverðlaun Besta leikkona í aðalhlutverki - Brie Larson EIN ALLRA FLOTTASTA ÆVINTÝRAMYND ÁRSINS GERARD BUTLER NIKOLAJ COSTER-WALDAU GEOFFREY RUSH Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is „ÍSLENSK LOVE ACTUALLY“ -HARMAGEDDON STANSLAUST FYNDIN!“ -T.V., BÍÓVEFURINN „BESTA SKEMMTUN Í MÖRG ÁR!“ FORSÝNINGAR UM HELGINA BESTA MYNDIN MISSTU EKKI AF FYNDNUSTU MYND ÁRSINS „BESTA ÍSLENSKA BÍÓMYNDIN SÍÐAN MEÐ ALLT Á HREINU“ - GULLI HELGA HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 Phoenix 18:00 The Witch / Nornin 18:00, 20:00, 22:00 Son of Saul // Saul fia 17:45 B-movie: lust & sound in West-Berlin 1979-1989 20:00 The Look of Silence 20:00 Spotlight 22:00 Concussion 22:15 1 1 . m a r s 2 0 1 6 F Ö s T U D a G U r34 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 1 -0 3 -2 0 1 6 0 4 :4 0 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 B C -4 0 8 C 1 8 B C -3 F 5 0 1 8 B C -3 E 1 4 1 8 B C -3 C D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 1 0 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.